Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1995, Side 26

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1995, Side 26
Molar til meltingar ýðing sem beztra hjálpartækja fyrir fatl- aða er óumdeilanlega af- ar mikilvæg. Nær alls stað- ar er um virka og jákvæða þróun að ræða í gerð hjálp- artækja og þau verða æ betri og fullkomnari og aðlagast enn betur hinum margleitu þörfum sem fyrir hendi eru. Tryggingastofnun ríkis- ins kemur eðlilega mest að þessum málum öllum hvað aðstoð við fatlaða varðar, en Heyrnar- og talmeina- stöðin og Sjónstöð íslands koma að þörfum þeirra sem þæreigaaðþjóna. Enauð- vitað er og verður vonandi Tryggingastofnunin sá aðili, sem mikilvirkasturer í þessum efnum og greiðsluhlutdeild stofnun- arinnar í hjálpartækjum skiptir mjög marga öryrkja afarmiklu. Þegar fjárveit- ingareru skertartil stofnun- arinnar eða henni gert að spara á þessu sviði, þá fara menn þar í forsvari eðlilega að huga að ákveðnum þrengingum á heimildum þeim sem fyrir hendi eru eða þá að dregið er úr greiðsluhlutfalli stofnunar- innar. Jafnan fylgir þessu sú hætta að flatur niður- skurður fjárhæða til þessa þáttar þýði það að um of sé þrengt að þar sem í engu má skerða. Yfirleitt reyna menn þó þar á bæ að haga breyting- um þannig að þeir gjaldi sízt sem mest þurfa á að halda. Fyrir allnokkru var bæði gerð nokkur breyting á hjálpartækjalista og í kjölfarið einnig um sumt breytt um vinnureglur. Þetta vakti hörð viðbrögð víða og ekki síður þótti mörgum, sem einnig hefði vinnureglum um viðhald og viðgerðir hjálpartækja verið breytt um of á verri veg. Það fer ekki á milli mála að þennan þátt má í engu skerða, enda vitað að hjálpartæki fær enginn sér til gamans, heldur vegna brýnnaþarfa. Þvertámóti þarf hjálpartækjalisti Tryggingastofnunar ríkis- ins á stöðugri endurskoðun og endurnýjun að halda og sem bezt samvinna við samtök fatlaðra hlýtur þar að vera höfuðnauðsyn. Hinn meginþátturinn snýr að verði hjálpartækja sem er afar hátt og að því er margir segja óeðlilega hátt. Þar veit ég að vel hefur verið unnið af ýmsum að fá fram eðlilega verðlækkun ýmissa hjálpartækja m.a. af Tryggingastofnun ríkisins en heldur hægt hefur þó miðað. Auðvitað gera menn sér ljóst, að mikil þróun- arvinna og kostnaður henni samfara liggur oft að baki og hlýtur að koma fram í verði hjálpartækja, en engu að síður segja það fróðir menn í þessum málum að mjög algengt sé, að hjálp- artæki séu óeðlilega dýr. Hvar sem við Asgerður og Ólöf komum inn á stofn- anir og heimili Styrktar- félags vangefinna á liðnum vetri var kvartað yfir ofur- háu verði hjálpartækja og að þeirra sögn sem þar greindu frá, óútskýrðu okurverði á stundum. An þess að neinn allsherjar- dómur sé upp kveðinn yfir verðlagningu og álagningu þá er ljóst, að hér þarf að hyggja vel að og leita allra leiða til lækkunar sem eðli- leg getur talizt. En auðvitað er það ótví- ræð samfélagsleg skylda að tryggja fötluðum nauðsyn- leg hjálpartæki á þann veg að auðvelt sé við að ráða. Skyldi því þá ekki gleymt í leiðinni, að svo tekjulágur er þessi hópur almennt að öll viðbótarútgjöld í þess- um efnum eru þessu fólki illviðráðanleg eða jafnvel oftar óviðráðanleg. En jafnhliða því sem samtök fatlaðra eiga á eitt að leggj- ast um að þarna tryggi hið opinbera sem allra mest réttlæti þurfa þau einnig að knýja á um það að hjálpar- tæki séu á eðlilegu og sanngjörnu verði, því eng- inn ætti að hljóta óeðlilegan hagnað af slíku. **** Annars staðar hér í blað- inu er greint frá úthlut- un úr Framkvæmdasjóði fatlaðra nú á þessu ári og skal ekki fjölyrt um hana semslíka. Vissulegaerþað mikið vandaverk að velja og hafna hverju sinni, því ævinlega verða einhver þau verk útundan sem allir stjórnarmenn eða einstakir vildu gjaman sjá vel veitt til. Aherzlumunur er svo ævinlega til staðar, en sem betur fer hefur það gilt frá upphafi sjóðsins, að allt hefur verið gert sem unnt er til að ná sameiginlegri lend- ingu, niðurstöðu sem allir gætu unað við, þó margt hefðu þeir viljað sjá á annan vegvera. En í allri umræð- unni um ákvarðanir Stjóm- arnefndar um málefni fatl- aðra, sem úthlutar fé Fram- kvæmdasjóðs, gleymist nær alltaf hverjar skorður henni eru settar, hver skil- yrði eru sett fyrir úthlutun hverju sinni. Nú ætla ég ekki sem beinn þátttakandi þarna að fara að firra mig neinni ábyrgð. En ég tek | þá bara beint dæmi. Agæt- ur forystumaður eins félags okkar hafði við mig sam- band og kvartaði eðlilega yfir því að sambýli fyrir tiltekinn hóp einstaklinga hefði verið hafnað af Stjórnarnefnd og þar með mér að sjálfsögðu. Þessu var haldið fram af ábyrgum aðilum. An þess ég fari frekar út í þetta einstaka mál, sem væri verðugt við- fangsefni út af fyrir sig, þá var það einfaldlega svo að til þessa tiltekna sambýlis var engan rekstur að finna á fjárlögum og því kom verkefnið ekki til greina af okkar hálfu, okkur var ein- faldlega ekki heimilt að ráðstafa fé til þessa. Og af hverju í ósköp- unum munu ýmsir spyrja og það vitanlega að vonum. Aður fyrr og lengstum raunar var það svo að fé var veitt úr Fram- kvæmdasjóði til stofnfram- kvæmda og síðan kom fjárveitingavaldið með nauðsynlegan rekstur í kjölfarið. En nú um hríð hefur öldin verið önnur og Stjórnarnefnd fengið þau fyrirmæli félagsmála- ráðuneytis að veita einung- is til þeirra verkefna sem annað tveggja hefðu ekki nýjan rekstur í för með sér eða þá að fjárlög hvers yfir- standandi árs fælu í sér rekstrarheimild. A þetta létum við einu sinni reyna við ráðherra fé- lagsmála og úthlutuðum til tveggja afar knýjandi verk- efna, en fengum afsvar um hæl, því enginn fyrirfyndist reksturinn. Síðan hefur þessi regla gilt og við orðið að lúta henni við litla hrifn- ingu. Og enn var svo við út- hlutun þessa árs, þó að vísu 26

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.