Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1995, Blaðsíða 29
lokagreiðslu til Sjálfsbjargar - lands-
sambands - vegna viðhalds 12 millj.
kr.
Eins og þessi upptalning hér á
undan felur í sér, þá er þar sam-
tals um að ræða upphæðina 511 millj.
kr. rúmar. Eftir var óráðstafað við
fyrstu úthlutun sem fór til staðfest-
ingar ráðherra upphæð sem nam rúm-
um 7 millj. kr. en áætlað var að taka
síðar upp þráðinn og ná þá að úthluta
til ýmissa smærri verkefna sem áður
voru skilin útundan eða þá til viðbótar
því sem þegar hefur verið sett á ein-
staka liði. Ritstjóri gerir sér m.a. vonir
um það að Vinnustaðir ÖBI sem hafa
aukið vel við sig, en fengið afar litla
utanaðkomandi aðstoð til þess fái
hvatningarframlag gott. Máske verður
unnt að gera fyrir því grein hér í beinu
framhaldi og væri það vel .
Ritað í marz.
H.S.
HLERAÐ
í HORNUM
Skoti nokkur spurði Astrala að því,
hvort ekki væru margir Skotar í
Ástralíu og fékk þá þetta svar: “Jú,
það er sko meira en nóg af Skotum, en
okkar aðalplága eru nú kanínurnar”.
Skólastjóri einn sem kenndi guðfræði
fór í heimsókn til landsins helga og fór
í ferð út á Galíleuvatnið og gjaldið fyrir
ferðina varalltof hátt að hans áliti. Þeg-
ar hann hafði borgað sagði hann eins
og upphátt við sjálfan sig: “Ja, ekki er
ég hissa, þó Jesús hafi gengið á
vatninu”.
Tveir Irar voru í byggingavinnu. Ann-
ar þeirra, Pat, hrópaði til félaga síns:
“Varaðu þig Mick, múrsteinninn er að
detta”. En of seint, og múrsteinninn
hitti Mick og sneið af honum eyrað.
Mick féll við og blæddi óskaplega, en
Pat kallaði: “Taktu því rólega Mick,
ég skal finna eyrað og svo fer ég með
þig á sjúkrahús og læknarnir sauma
það á aftur”. Hann finnur svo eyrað
og kemur sigrihrósandi með það til
Micks sem liggur í blóði sínu. Mick
horfir á eyrað og segir svo: “Þetta er
ekki eyrað af mér, asninn þinn. Það
var sígaretta á bak við eyrað á mér”.
Frá síðustu sýningu Hala-hópsins.
Allra meina bót
Hala- leikhópurinn fékk verðuga umfjöllun í síðasta Fréttabréfi og frá
því greint þá, að á döfinni væri uppfærsla á leikritinu Allra meina
bót eftir þá bræður Jón Múla og Jónas Ámasyni. Ritstjóri þykist eftir þá
umfjöllun skulda Hala - hópnum örlitla umsögn, þó síðbúin sé. Fyrst af
öllu vil ég segja þeim, sem að Hala - hópnum standa að ótrauð eiga þau
áfram að halda, þau eflast og styrkjast við hverja raun og Allra meina bót
var enn ein staðfestingin á því, hvern tilverurétt hópurinn á og þó oft hafi
vel verið leikið verð ég að segja, að sýning þessi var þó sú jafnbezta hjá
hópnum og er þá bara talsvert sagt. Allra meina bót er vitanlega þannig
verk, að það beinlínis kallar á áhuga og leikgleði og krefur um góða túlkun
og er auðvitað fyrst og síðast svo ofurskemmtilegt, að hver sem að kemur
nýtur þess að mega leggja þar að lið. Það þekki ég mætavel af eigin raun.
En að sjálfsögðu þarf meira en áhugann og ánægjuna, leikhæfileikamir
hljóta rfkulega að koma inn í myndina líka og það var einmitt það sem
gerðist hjá Hala - leikhópnum í marz sl. Við hjónin höfðum kvöldið áður
farið í leikhús og séð atvinnuleikara fara á kostum og því kviðum við
nokkuð samanburðinum. Sá kvíði var með öllu ástæðulaus, svo ágæt og
heilsteypt var frammistaðan, leiksigur heildar sem einstakra leikara.
Leikdómur á þetta samt ekki að vera, aðeins frásögn, yljuð hlýrri þökk
fyrir ágæta skemmtan ásamt með einlægri hvatningu um að halda fram
ótrauð til nýrra áfangasigra.
Aðalhlutverk voru í öruggri túlkun þeirra Jóns Eiríkssonar, Kolbrúnar
Daggar Kristjánsdóttur, Árna Salómonssonar, BaldvinsJóns Sig-
urðssonar og Kristins Guðmundssonar og að öðrum alls ólöstuðum þá
fóru þau á sérstökum kostum Kolbrún Dögg og Jón Eiríksson, jafnvíg í
leik sem söng. Hlutur leikstjóra í sýningu sem þannig líður svo Ijúflega
fram og með listfengum sprettum er auðvitað afar góður og Edda V.
Guðmundsdóttir greinilega vandað vel til verka og sinnt öllum af sérlegri
alúð, næmt auga fyrir öllum smáatriðum sem heildaráferð fer ekki framhjá
neinum. Steindór Hjörleifsson leikari hefur verið gerður að heiðursfélaga
í Hala - leikhópnum, enda að vonum svo ötull velgjörðamaður hópsins
sem hann hefur verið; m.a. safnað fyrir Ijósaborði og búnaði fyrir hópinn
sem ómetanlegt er. Það mun næsta öruggt að Hala - hópurinn mun ekki
láta hér við sitja, heldur halda hiklaus áfram við metnaðarfull verkefni.
Megi þeirn félögum famast vel í framtíðinni sem hingað til.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
29