Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1995, Síða 31
Af stjórnarvettvangi
Fulltrúar Styrktarfélags vangefinna á aðalfundi.
Sjá ferðasögu frækna á bls. 6.
Fundur var haldinn í stjórn
Öryrkjabandalags íslands þriðju-
daginn 11. apríl sl. og að þessu sinni í
Hátúni 12, sal þeim sem Dagvist
Sjálfsbjargar var áður, en nú er það
Reykjavíkurdeild Sjálfsbjargar sem
hefur þennan sal. Fundurinn hófst kl.
16.45.
Formaður, Ólöf Ríkarðsdóttir,
setti fund og stjórnaði honum og bað
fólk fyrst að kynna sig. Nýliðar tveir
voru á stjórnarfundi: Björn Her-
mannsson frá Félagi heyrnarlausra og
Helgi Hjörvar frá Blindrafélaginu.
Skýrsla formanns var fyrst á
dagskrá. Formaður greindi fyrst frá
fallegum borðfána Öryrkjabanda-
lagsins sem prýddi borð og er hinn
álitlegasti ásýndum. Næst sagði Ólöf
að þyrfti að vinna veglegan útifána
fyrir bandalagið. Hún fór svo yfir
helztu mál sem að hefði borið frá
síðasta stjórnarfundi.
Fyrst greindi hún frá tilraunum til
að koma fram breytingum á
frumvarpi til stjórnskipunarlaga í þá
veru að tryggja betur áherzlur á jafn-
rétti fatlaðra. Ekki tókst þessi sam-
eiginlega tilraun bandalagsins og
Þroskahjálpar, þrátt fyrir stranga fundi
þeirra Asgerðar og Astu B. með þing-
nefndarmönnum. Ólöf kvað staðfest-
ingu komna utan að um aðild Öryrkja-
bandalagsins að svonefndu Helios II-
verkefni, en þar yrði Helgi Hróðmars-
son okkar ágæti fulltrúi.
Þá ræddi hún allnokkuð um funda-
röð þá í marzbyrjun úti í Kaup-
mannahöfn sem þær Ásgerður sóttu,
svo og Haukur Þórðarson einnig að
hluta. Frá þessu öllu munu þær
Ásgerður skýra í þessu blaði svo
óþarft er að rekja frekar hér.
Ólöf sagði einnig frá ágætri ferð
þríeykisins á vettvang Styrktarfélags
vangefínna, sem af er saga nokkur hér
í blaðinu.
Hún minnti félögin á að taka virk-
an þátt í þeirri stefnuskrárvinnu sem
framundan væri, því nauðsyn bæri til
að öllu yrði vel til skila haldið í
áherzluatriðum og öll sjónarmið yrði
að viðra og virða.
Að lokum benti hún fundarfólki á
bók um skilmælin skýru um aðgengis-
mál, sem nýútkomin væri. Bókin
heitir á íslenzku: Norræn nálgun.
Á borðum lá einnig nótnablað
með lagi Áma Bjömssonar tónskálds
við ljóð Kristjáns frá Djúpalæk: Mitt
faðirvor. Lag og ljóð tileinkuð fötluðu
fólki á Islandi og er gjöf til
Öryrkjabandalags Islands.
Framkvæmdasjóður fatlaðra var
svo næst á dagskrá. HelgiSeljan
fjallaði fyrst um hin lögskipuðu
hlutverk sjóðsins svo og þau sem
“bandormurinn” -tímabundin lög frá
Alþingi, hefðu lagt á sjóðinn.
Hann fór nokkuð yfir þá sögu sem
sjóðurinn ætti sér -16 ár til baka og
fullyrti að fjárfestingar þessa sjóðs
hefðu farsælli reynzt en margar aðrar
í samfélaginu á sama tíma. Spurn-
ingin nú sem fyrr um fjárfestinga-
áherzlur sjóðsins og eðlilegt að spurt
væri um hlut fötlunarhópa í því sam-
hengi.
Hann fór svo yfir úthlutun þessa
árs sem er óvenjumikil að umfangi,
sér í lagi vegna þess hversu erfðafjár-
sjóður hefði skilað miklu inn f sjóð-
inn. Helztu verkefni eru vegna út-
skriftar af Sólborg á Akureyri, út-
skrifta af Kópavogshæli, nýrra sam-
býla og skammtímavistana í Reykja-
vík og Reykjanesi að ógleymdu
framlagi til hins nýja húsnæðis Starfs-
þjálfunar fatlaðra, sem taka á í notkun
í haust.
Frekari liðveizla fær sinn drjúga
skerf svo og viðhaldsframkvæmdir
auk margra ótalinna liða. Nokkrar
umræður urðu um sjóðinn og stöðu
hans að loknu spjalli Helga.
Þá var komið að gjaldkera banda-
lagsins, Hafliða Hjartarsyni, að
gera grein fyrir tillögum fram-
kvæmdastjórnar um styrkveitingar til
félaga bandalagsins og annarra, sem
grein er gerð fyrir annars staðar í blað-
inu.
Að loknum góðum skýringum
Hafliða var tillaga framkvæmda-
stjórnar um styrkupphæðir samþykkt
samhljóða.
Undir liðnum: Önnur mál las Ólöf
og kynnti mótmælaályktun Sjálfs-
bjargar á Akureyri vegna reglugerðar
heilbrigðisráðherra um hversu kjara-
samningarnir síðustu væru reiknaðir
inn í bætur almannatrygginga, en þar
munar mjög umtalsverðu eftir út-
reikningum Sjálfsbjargarmanna.
Framkvæmdastjóm var falið að ganga
í þetta mál.
Að lokum var svo sýning á mynd-
bandi sem fengið var að láni hjá
finnsku öryrkjasamtökunum. Syst-
kinin (Sister and her brother) heitir
myndin og er heit ádeila á viðhorf til
ýmissa fatlana og fatlaðra yfirleitt, en
færð í hinn hárfína skopbúning, sem
hvetur til umhugsunar um leið og
áhorfið verður líflegra.
Fundi var slitið um kl. 18.30.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJAB ANDALAGSINS
31