Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1995, Qupperneq 32

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1995, Qupperneq 32
LOFSVERT FRAMTAK LÖGREGLUMANNS Formáli ritstjóra: Ifyrsta tölublaði Lögreglumannsins á þessu ári rákumst við á afar forvitnilegt viðtal við Sigurð R. Þórarinsson lögreglumann urn samskipti lögreglu við heyrnarlausa og einkar lofsverðu framtaki hans í framhaldi ákveðins atburðar, sem hann mun greina okkur frá. Við fórum þess á leit við Sigurð að fá frásögn hans af þessu öllu svo fleiri mættu njóta, hver kveikjan að þessu öllu saman hefði verið, táknmálsnám hans og hversu það gekk svo og um framhaldið m.a. tilsjónarmannsstarf hans með ungum heyrnarlausum manni. Frá- sögn Sigurðar fer hér á eftir og er honum vel þakkað liðsinnið, svo og ekki síður framtak hans sem fágætt er, því miður. Við spyrjum fyrst að því hvaða atburður þetta var sem hafði þessi áhrif að hann fór að nema táknmál? Gefum nú Sigurði orðið: Kveikjan að því að ég fór að læra táknmál var, að morgun einn fyrir mörgum árum, vorum við þrír lögreglumenn í eftirliti, er við rákumst á mann, lítils- háttar ölvaðan. Er við ætluðum að greiða götu mannsins kom í ljós að hann talaði annað tungumál en við, var auðsjáanlega heyrnarlaus. Er við komum með manninn á lögreglustöðina tók við það sama. Enginn talaði hans tungumál og ákvað varðstjórinn að láta manninn gista í fangageymslu þar sem hann gat ekki gefið neinar upplýsingar um hver hann væri. Datt mér þá í hug að láta manninn hafa blað og blýant og varð það til þess að maðurinn komst í hús hjá sínu fólki, enda ástæðulaust að loka hann inni þar sem hann hafði ekkert brotið af sér. Við athugun á ferðum mannsins kom í ljós að hann hafði lengi nætur reynt að fá leigubifreið, en án árangurs þar sem hann gat ekki tjáð sig eins og heyrandi gerir. Eg skammaðist mín dálítið, bæði fyrir hönd lögreglunnar og annarra og er ég sá í blaði nokkru seinna auglýst tákn- málsnámskeið ákvað ég að gera eitthvað í málinu og lét skrá mig. Það hefur verið alveg sérstaklega ánægjulegt og uppbyggjandi nám á allan hátt. Mér hefur tekist að ljúka átta námskeiðum hjá Samskiptamiðstöðinni, fór reyndar á tvö námskeiðin tvisvar. etta hefur gert mér kleift að skyggnast dálítið inn í heim hins heymarlausa og er sá heirnur ekki síður athyglisverður en heimur hins heyrandi. Á meðan á þessum námskeiðum stóð kom til mín Sigurlaug Hauksdóttir félags- ráðgjafi, en við höfum fylgst að á námskeiðunum. Bað Sigurlaug mig um að gerast liðsmaður fyrir heyrnarlausan mann, er stundaði nám í Hótel- og veitingaskóla Islands. Tók ég það að mér, en með hálfurn huga þó, þar sem sjálfstraustið var ekki upp á marga fiska. Svo þegar Sigurlaug kom með þennan unga mann heim til mín vorum við báðir jafn stressaðir í fyrstu. Þarna hitti ég fyrst einn af mínum beztu vinum í dag, Rúnar Þ. Ingólfsson. Hefur Rúnar gert mér fært að ná betri tökum á táknmálinu og á hann miklar þakkir skyldar. Eftir því sem ég bezt veit er Rúnar eini heymarlausi kokkurinn á Islandi í dag. I framhaldi af reynslu minni og kynnum af heyrnarleysi, jókst áhugi minn á að auka við þekkingu mína. egar ég svo sá auglýst að hefja ætti kennslu í táknmáli og táknmálstúlkun við Háskóla Islands, sá ég mér leik á borði og sótti um. Var mér hafnað þar sem ég hef ekki stúdentspróf. Urðu það mér mikil vonbrigði, þar sem ég geri mér Ijóst hversu mikilvægt það er fyrir heyrnarlausa að eiga málsvara innan lögreglunnar, á þeirra eigin tungumáli. Það er því álit mitt að kenna ætti táknmálsgrunn í öllum grunn- og framhaldsskólum, svo og Lögregluskólaríkisins. Það er stórkostlegt til þess að vita hvað er að gerast í málum fatlaðra í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Það sem einna helzt vantar er að við Islendingar viðurkennum, í orði og á borði, táknmálið sem móðurmál þess heyrnarlausa. Táknmálið er bæði blæbrigðaríkt og þokkafullt. Sigurður H. Þórarinsson Sigurður H. Þórarinsson 32

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.