Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1995, Side 45
Meira úr fórum Guðmundar
Guðmundurfræðslustjóri Magnússon
á Reyðarfirði sendi mér syrpu nokkra
s.s. seinasta blað bar með sér. Hér
bætir hann við vísum frá hagyrðinga-
móti á Hallormsstað:
Einn við höfum góðan gest
greindan flestir telj’ann.
Eg hugsað gæti mér hann sem prest
Helga vin rninn Seljan.
Ymsir héma orðum raða
er oftast vel í stuðla falla.
Heiðra vil ég Hallormsstaða-
hagyrðinga marga og snjalla.
Og svo fylgir ein gömul og góð frá
landsfundi Alþýðuflokksins, þegar
Vilmundur heitinn Gylfason sagði að
flokkurinn væri eins og vagn sem
nokkrir asnar drægju án þess að vita
hvað í honum væri. Þá varð Guð-
mundi að orði, en hann sat landsfund-
inn:
Frá Námssjóði
Sigríðar
Jónsdóttur
A þessu vori verður í fyrsta sinn
úthlutað styrkjum úr Námssjóði
Sigríðar Jónsdóttur og verður fyrir því
gerð grein í næsta blaði. Styrkir verða
veittir við hátíðlega athöfn í Hátúni
10, 11. júní, sem er fæðingardagur
hinnar látnu heiðurskonu.
Þarna munu ýmsir öryrkjar fá
frekari aðstoð til náms síns, svo og
það fólk sem hyggst sérnrennta sig í
þágu þroskaheftra. Margar umsóknir
bárust stjórn sjóðsins og eflaust vandi
úr að velja.
Það er vissulega fagnaðarefni að
geta létt ýmsum námsgöngu sína, ekki
sízt þeim öryrkjum sem eðli máls
samkvæmt hafa ekki mikið handa á
milli.
Stjórn sjóðsins skipa fulltrúar
Öryrkjabandalags Islands: Hafliði
Hjartarson og undirritaður og einn
fulltrúi frá félagmálaráðuneyti, sem er
Margrét Margeirsdóttir. Formaður er
Hafliði Hjartarson.
Helgi Seljan.
Eflaust vill hann gera gagn
gleðja, bæta og laga.
Og Alþýðuflokksins auma vagn
með ösnunum gömlu draga.
Og svo er hér lítið ljóð þegar góðir
vinir fögnuðu vori:
Björt er vornæturvakan
þegar vinir hér mætast.
Fögur minningin merlar
reyndu maður að kætast.
Vínið glitrar í glasi
sérhver gleðjist nú sála.
Sértu velkominn vinur
fyrir vorinu að skála.
Kemur sumar að sunnan
fuglar syngja út í móa,
selur liggur í leyni
skína ljós úti á flóa.
Nú er fagurt á fjöllum
þar sem frelsið á heima.
Upp til sálnanna sólar
fljúgðu sál mín um geima.
Og vorið er Guðmundi hugstætt að
vonum og hér vísur tvær að lokum
heimanfráReyðarfirði: VoríGræna-
felli:
Vonartími vorið er
vakna tekur jörðin.
Blíðalognið breiðir hér
blæju yfir fjörðinn.
Víða bærist vorsins þrá,
vætan mýkir svörðinn.
Yndislegt er út um blá
yfir að líta fjörðinn.
Með þessari hugljúfu vorstemmingu
lýkur þessari syrpu Guðmundar að
sinni.
Björn G. Eiríksson sérkennari:
Óður um vor
Gyllir sól fjöll
sindrar mjöll.
Um heiðið skjótast ský.
Bráðnar fönn
bærist hlýr
blær um kalda kinn.
Lifna grös
græn á jör^.
Vaxa blóm í brekkum.
Kveða létt
kátir lækir
vori í lofti lof.
B.G.E.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
45