Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1998, Page 3
• • /
Haukur Þórðarson form. OBI:
SKREFIN
FRAMUNDAN
Með ákvörðun aðalfundar
Öryrkjabandalags ís-
lands árið 1997 um að
koma á fót fimm málefnanefndum
mótaði bandalagið verkefna- og
framkvæmdaáætl-
un varðandi fimm
tiltekna mála-
flokka sem lengst
af hafa verið í
brennidepli og
með því á vissan
hátt skipað þeim í
forgang. Ekkert
óeðlilegt við það
en hinu má ekki
gleyma að aðrir
knýjandi málaflokkar, og þeir ófáir,
koma ekki síður til sögunnar þegar
fjallað er um tilveru og lífsbaráttu
öryrkja, og vík ég að því síðar. Þessir
fimm málaflokkar lúta að búsetu
fatlaðra, atvinnu þeirra, menntun,
félagslegri þátttöku og trygginga-
kjörum.
Á nýafstöðnum aðalfundi ÖBÍ
skiluðu málefnanefndirnar yfirliti um
stöðuna í málaflokkunum, greindu
aðalatriði, komu með ábendingar og
skiluðu tillögum. Allt í takt við það
sem tíðkast um vinnulag félags-
samtaka á borð við ÖBÍ og ekkert
nema gott um það að segja. Hitt
vitum við mætavel að erfiðasti kafli
leiðarinnar er sá að koma hlutunum í
framkvæmd, að feta slóðann frá hug-
mynd að veruleika. Við Islendingar
metum mikils hugmyndasmiði og
höfum þá í hávegum. Ekki síður
mikilvægir eru smiðir veruleikans.
Við dáum hugsjónamenn en athafna-
manna þörfnumst við ekki síður.
• •
Oryrkjabandalaginu er skylt
samkvæmt lögum þess “að
koma fram fyrir hönd fatlaðra
gagnvart opinberum aðilum í hvers-
kyns hagsmunamálum svo sem varð-
andi löggjöf og framkvæmd hennar
og í dómsmálum er snerta rétt fatl-
aðra”. Áðurnefndir fimm málaflokk-
ar eru á meðal brýnustu hagsmuna-
málanna og mun stjórn bandalagsins
og framkvæmdastjórn vinna kapp-
samlega að framgangi þeirra í sam-
vinnu við málefnanefndirnar.
Aðildarfélög ÖBÍ setja sér mark-
mið varðandi hagsmuni félaga sinna
og stefna þau án efa í sömu eða svip-
aða átt og markmið bandalagsins.
Megintilgangurinn með stofnun ÖBI
á sínum tíma var sá að sameina kraft-
ana sem er enn í fullu gildi. Tala
meðlima aðildarfélaganna er misjöfn
og hið sama á við um efnahaginn.
Þar fyrir utan er ekki óhugsandi að
aðildarfélög taki í “fóstur” ákveðna
málaflokka, vinni að tilteknum mál-
efnum í samvinnu við ÖBI. Þannig
verklag er vissulega ekki óþekkt
innan bandalagsins.
Auk títtnefndra fimm málefna-
flokka er fjöldi annarra sem
skipta fatlaða miklu máli. Með því
að gangsetja málefnaflokkana fimm
er ÖBI síður en svo að ýta öðrum
málefnum til hliðar. Má þar t.d. nefna
umferðar- og aðgengismál í víðum
skilningi en að þeim hafa ýmis
aðildarfélög unnið með góðum
árangri. Það má nefna málefni hæf-
ingar og endurhæfingar í samvinnu
við ýmsa aðila. Þá vil ég einnig
minna á verkefni sem sérlega eru
tiltekin í lögum bandalagsins fólgin
í því “að starfrækja upplýsingaskrif-
stofu fyrir öryrkja” og “að annast
samstarf og tengsl við félagasamtök
erlendis er vinna á líkum grundvelli
og hagnýta reynslu þeirra í þágu
bandalagsins”.
Loks vil ég kasta fram þeirri
skoðun minni að full ástæða sé til að
kanna og kortleggja það ferli sem á
sér stað þegar öryrki eldist. Gerist
öldrun öryrkja með öðrum hætti en
hjá þeim sem komast til efri ára án
tiltakanlegra heilsufarsáfalla? Eg tel
svo vera og hef sjálfur margoft fylgst
með áhrifum öldrunar meðal þeirra
sem hafa lengi búið við t.d. skerta
ADL færni, þar með talda hreyfi-
færni, og skerta andlega burði.
Að lokum: Bestu kveðjur frá
stjórn ÖBÍ til aðildarfélaganna og
allra meðlima þeirra með ósk um
farsælt starf framundan.
Haukur Þórðarson
formaður ÖBI.
Haukur
Þórðarson
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
3