Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1998, Blaðsíða 14
Af stjórnarvettvangi
Fundur í stjórn Öryrkja-
bandalags íslands var
haldinn í fundarsal að Hátúni
10 hinn ö.september sl. og hófst kl.
16.40. Mættir voru fulltrúar frá 20
félögum. Haukur Þórðarson formað-
ur setti fund og stjórnaði honum og
bauð velkominn
nýjan varafulltrúa
Styrktarfélags lam-
aðra og fatlaðra,
Vilmund Gíslason,
sem kynntur var í
síðasta Fréttabréfi
sem framkvæmda-
stjóri félagsins.
1. Formaður rakti
nokkuð yfirlit
atburða frá síðasta
stjórnarfundi.
Hann greindi frá
gagnlegum fundi
með tryggingayfir-
lækni og forstjóra
Tryggingastofnunar
ríkisins, sérstaklega
um framkvæmd
örorkumats. Laga-
grein hér að lútandi er allt frá upphafi
og þörf fyrir að sníða hana að nútím-
anum. Frumvarp um þetta mál vænt-
anlegt nú á þingi þar sem meginatriði
verður að læknisfræðilegar forsendur
ráði mestu. Við fengum til umsagnar
breytingartillögur um reglugerð
svæðisráða málefna fatlaðra eftir
ábendingu til ráðuneytis frá umboðs-
manni Alþingis.
Við tókum undir athugasemdir
svæðisráðs, síðan hafa verið viðræður
í ráðuneyti og endanleg tillaga að
breytingum ekki borist til umsagnar
enn. Formaður greindi frá erfið-
leikum í rekstri Vinnustaða ÖBI sem
ættu sér eðlilegar skýringar, en þar
þörf að fara í gegnum öll mál og það
mun gjört. Væntanlegur er þjónustu-
samningur milli Öryrkjabandalagsins
og ráðuneytisins um vinnustaðina sem
vonandi færir þeim aukið fjármagn,
enda fjárframlag ríkisins ekki fylgt
auknum umsvifum.
A vettvangi ÖBI og Þroskahjálpar
hefur nokkuð verið rætt um stóra
alþjóðlega ráðstefnu á næsta ári sem
opinberir aðilar stæðu þó fyrir en um
það engin svör fengist enn af utan-
ríkisráðuneytisins hálfu. Ekki fýsilegt
að hugsa til hennar nú með svo
skömmum fyrirvara, þó jákvætt svar
fengist.
Ar aldraðra hófst nú l.okt sl. og
Öryrkjabandalaginu boðin aðild að
undirbúningi og framkvæmd. Guð-
ríður Ólafsdóttir mun verða fulltrúi
bandalagsins við það starf.
Haukur gat um verkefnisaðild
okkar í framhaldi af Helios-verk-
efninu, þátttöku bandalagsins í
Europian Disability Forum. Formað-
ur þar Johan Weseman jafnvel vænt-
anlegur hingað til lands. Ymislegt
fleira kom fram í máli formanns sem
ekki er rakið hér.
2. Umsóknir um aðild. Helgi
Seljan kynnti umsóknir þeirra þriggja
félaga sem sendu inn aðildarumsóknir
á síðasta ári en þá var frestað að taka
fyrir. Þetta eru Daufblindrafélag
íslands, Málbjörg og Tourette-
samtökin. Framkvæmdastjórn mælti
með því við stjórnina að félögunum
yrði veitt aðild að bandalaginu.
Einróma samþykkt að leggja til við
aðalfund að félögin verði tekin inn.
3. Kjaramál. Garðar Sverrisson
hafði framsögu og fór yfir sviðið,
minnti á að bætur hefðu ekki fylgt
kaupmætti lægstu launa, enn síður
launavísitölu. Kaupmáttur örorku-
bóta nú lægri en fyrir 10 árum síðan.
Frítekjumark hefði fráleitt haldið
verðgildi sínu, ekki einu sinni gagn-
vart bótum. Tók tekjuskerðinguna
vegna makatekna sér í lagi og minnti
á að umboðsmaður Alþingis hefði
gjört ótal athugasemdir við þessa
skipan, þó lokaniðurstaðan hefði verið
að þetta væri ekki
ólöglegt. I viðræð-
um við Ragnar Aðal-
steinsson hrl. hefði
komið fram mjög
skýrlega að hann
teldi fullt tilefni til
málshöfðunar á
hendur ráðuneytinu.
Að því væri nú stefnt
afhálfuÖBÍ. Lagði
áherslu á að málið
gengi alla leið.
Helgi Seljan benti á
að þrátt fyrir laga-
viðspyrnu hefði
verið erfitt að halda
frítekjumarkinu í
horfi.
Lagaviðmiðun
felld niður um næst-
liðin áramót og nú hefði niðurstaðan
orðið 4% hækkun þegar 9% hefði átt
að vera lágmarkið. Inn í þessar um-
ræður spannst umræða um vel heppn-
aða mótmælastöðu við þinghúsið 1.
okt. og formaður þakkaði Garðari
forgöngu þar. Miklar umræður urðu
um málið og í makatengingarmálinu
vildu menn fara alla leið með
málshöfðun dygði annað ekki og var
það samþykkt af stjórnarmönnum
öllum.
4. Önnur mál.
a. Formaður greindi frá útlínum
dagskrár og tilhögun aðalfundar
Öryrkjabandalagsins. Skýrslur og
reikningar í samandregnu formi
verða sendir út tímanlega. Áminnti
félögin um að tilnefna sem fyrst
fulltrúa á aðalfund, stjórnarmenn til
næsta árs og einn til vara.
Umræðuefni utan formlegra
aðalfundarstarfa mun verða: Fátækt
á Islandi m.t.t. öryrkja. Harpa Njáls
með framsögu.
b. Helgi greindi frá viðræðum við
Félagsbústaði hf. vegna hækkunar
leigugjalda, en á móti komið
14