Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1998, Side 28
Tómas Helgason, stjórnarformaður:
Hússjóður Öryrkja-
bandalagsins 1998
Hússjóðurinn á nú rúmlega 540
íbúðir víðs vegar um landið.
Frá því síðasti aðalfundur var hald-
inn hafa 90 einstaklingar fengið
íbúðir hjá
sjóðnum, en
samt eru enn
271 á biðlista.
Þó að íbúðum
hafi fjölgað um
250 frá því
1990hefurlítið
fækkað á bið-
listanum, en þá
biðu 290
manns eftir
íbúðum hjá sjóðnum. Fyrir þessu
eru ýmsar orsakir, fyrst og fremst
fjölgun fatlaðra, aukinn þrýstingur
á að koma langveikum og fötluðum
út af sjúkrahúsunum og aukin þörf
fatlaðra fyrir sjálfstæða búsetu í
öruggu og ódýru húsnæði. Eftir-
spurn eftir húsnæði þar sem unnt
er að fá einhverja þjónustu og
umönnun hefur aukist verulega og
hefur haft áhrif á framkvæmdir á
vegum Hússjóðsins á árinu. Þannig
hafa m.a. verið keypt stórt einbýlis-
hús fyrir 7 fatlaða einstaklinga sem
jafnframt annarri fötlun eru heyrn-
arlausir og stór íbúð sem er ætluð
fyrir sambýli geðfatlaðra sem fá
þjónustu frá Sjúkrahúsi Reykja-
víkur.
Stærsta framkvæmdin sem lokið
er eru endurbætur á 2., 3. og 4. hæð
Hátúns lOb í húsnæði sem öldr-
unardeild Landspítalans hafði á
leigu. Þar eru nú komnar 25 íbúðir
fyrir fólk sem þarf á meiri þjónustu
að halda en almennt gerist um
leigjendur Hússjóðsins. Þess vegna
hefur heimilishjálp Félagsmála-
stofnunar og heimahjúkrun aðstöðu
í Hátúnshúsunum. I þessu sam-
bandi er nauðsynlegt að minna sér-
staklega á þjónustu sem geðfatlaðir
í Hátúnshúsunum njóta frá geðdeild
sem þar er enn starfrækt af Land-
spítalanum, og að leggja áherslu á
nauðsyn þess að sú þjónusta haldi
áfram.
Verið er að vinna við utanhúss-
viðgerðir á Hátúni 10, bílageymslu
í kjallara tengibyggingar í Hátúni,
endurnýjun á lyftum og flutningi
kaffistofu í tengibyggingu til að
bæta skrifstofuaðstöðu Öryrkja-
bandalagsins.
s
Isíðustu ársskýrslu var kynnt
fyrirhuguð nýbygging á lóð
Hússjóðsins, Sléttuvegi 9. Því
miður eru framkvæmdir ekki
hafnar eins og ráðgert var, þar eð
undirbúningi hefur ekki miðað eins
og skyldi, m.a. vegna umhverf-
ismats, grenndarkynningar og tafa
sem urðu vegna borgarstjórnar-
kosninga og breytinga í nefndum
samfara þeim. “Byggingarnefnd-
arteikningum”, sem gerðar hafa
verið á teiknistofunni á Óðinstorgi
er nú lokið að kalla og voru þær
sýndar á aðalfundinum. A lóðinni
verða 30 íbúðir af mismunandi
stærðum og gerðum, þar af 3 í
raðhúsum en 27 í fjögurra hæða
bogamynduðu húsi, auk bifreiða-
geymslna. I húsinu verður aðstaða
fyrir heimilisaðstoð og aðra þjón-
ustu fyrir íbúana. Vonast er til að
framkvæmdir við bygginguna hefj-
ist eftir áramótin og ljúki snemma
árs 2000.
Frá því rekstur Lottós hófst
hefur íbúðaeign Hússjóðsins meira
en tvöfaldast. Þrátt fyrir það vantar
enn mikið á að íbúðaþörfinni sé
fullnægt og því má ekki skerða
tekjur sjóðsins frekar en orðið er,
en Hússjóðurinn fær nú 60% af
Lottótekj um Öryrkj abandalagsins.
Framkvæmdastjóra sjóðsins,
Önnu Ingvarsdóttur og Kristínu
Jónsdóttur starfsmanni hans og
sameiginlegum starfsmönnum
sjóðsins og skrifstofu ÖBl eru
þökkuð ómetanleg og óeigingjörn
störf í þágu leigjendanna.
Tómas Helgason formaður
Tómas
Helgason
*
Handbók
Handbók að samfélagi
heyrnarlausra í Evrópu
Forsíðan.
Handbókar-
kynning
Okkur hefur borist hingað hand-
bók afar skemmtilega útlítandi
og uppsett: Handbók að samfélagi
heyrnarlausra í Evrópu. Evrópusam-
band heyrnarlausra stendur að baki
útgáfunni sem er hluti af táknmáls-
verkefni sambandsins með fjármögn-
un frá Helios II verkefninu.
Islensku þýðinguna gerði Adda
Mana Jóhannsdóttir. Rétt verður tæpt
á kaflaheitum.
Að loknum inngangsorðum for-
manns og framkvæmdastjóra Evrópu-
sambands heyrnarlausra kemur kafli
um heyrnarleysi: Nokkrar gagnlegar
skilgreiningar.
Samfélag heyrnarlausra og tákn-
mál er svo næsti kafli sem m.a. fjallar
um: Mál-og menningarminnihluta-
hóp, málið okkar: Táknmál og svo
um viðurkenningu minnihlutahóps-
ins.
Kynnt er ályktun Evrópuþingsins
um táknmálið, sömuleiðis táknmáls-
verkefni Evrópusamb. heyrnarlausra.
Þá er Evrópusambandið sjálft
rækilega kynnt þar sem m.a. segir:
Þekking skapar vald. Kafli er um
samskipti við heyrnarlausa, reglur
Evrópusambandsins og svo er
heimildaskrá, ítarefni og kynning
tengiliða.
Þetta er vissulega fróðleg handbók
og verður heymarlausum vonandi hið
besta baráttutæki, alveg sér í lagi
varðandi viðurkenningu táknmálsins.
H.S.
28