Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1998, Page 36
Guðrún Hannesdóttir forstöðumaður:
Skýrsla Hringsjár,
starfsþjálfunar fatlaðra
Starfsþjálfunin
íðastliðið starfsár hefur verið
fjölbreytilegt. 10 áraafmælis-
ári lauk í desember með út-
ski'ift 9 nemenda við hátíðlega athöfn.
Nýr hópur 17 nemenda kom inn í
janúar og bættust
þau í þann hóp
sem fyrir var. 16
nemendur luku
síðan fyrstu önn
síðastliðið vor en
12 þriðju önn og
útskrifuðust í maí.
A starfsárinu
útskrifuðust sem
Hannesdóttir sagt 21 og alls
hafa þá 141 nem-
andi í 14 hópum útskrifast með þess-
um formlega hætti.
I ágúst síðastliðnum voru teknir
inn 18 nýir nemendur þar af tveir beint
inn á aðra önn og bekkurinn hvarvetna
þétt setinn. Þó hér sé talað um hópa
og annir þá er það með ýmsum hætti
hvernig hópar skiptast og blandast í
vinnu sinni. Síðastliðið ár hafa nem-
endur verið í starfsþjálfun við mót-
töku, símvörslu, ljósritun og fleira,
einn í einu til ákveðins tíma og gefist
vel. Nemendur sjá um rekstur kaffi-
stofu að öllu leyti, bæði innkaup, ein-
falda matargerð, sölu, frágang og
bókhald. Síðastliðið ár hafa þau einnig
tekið að sér veitingar á námskeiðum
sem haldin hafa verið.
Námskeið hafa verið haldin að
vanda. Samvinna var við Dagvist
Sjálfsbjargar, en þaðan komu nokkrir
á tölvunámskeið einu sinni í viku,
hluta vorannar. Einnig var haldið sér-
stakt námskeið í tölvunotkun, bók-
haldi og námstækni fyrir hluta þess
hóps sem ekki fékk fulla inngöngu í
starfsþjálfunina á vorönn, það gafst
vel og nokkur þeirra fengu síðan
inngöngu í starfsþjálfunina í haust.
Svipað námskeið og á sömu for-
sendum hófst nú í byrjun október.
Fyrir utan þessi námskeið voru haldin
grunnnámskeið í tölvunotkun fyrir 8
hópa í maí - júní síðastliðnum, þau
sóttu um 60 manns. Þannig hafa alls
um 75 manns sótt lengri eða
skemmri námskeið í Hringsjá á
starfsárinu. Aðsókn á námskeið sem
þessi virðist alltaf vera að aukast og
erfitt að mæta eftirspurn.
Könnun á afdrifum nemenda
Haustið 1997 var gerð 3ja síma-
könnunin á meðal eldri nemenda
Hringsjár sem lokið hafa að minnsta
kosti einni önn, en flestir höfðu lokið
öllum þremur önnum. Tilgangur
könnunarinnar var að athuga hvernig
útskrifuðum nemendum Hringsjár
reiðir af. Heildarfjöldi þeirra sem
könnunin náði til var 136, þar af náðist
í 128 eða 94% sem verður að teljast
mjög gott. Marín Björk Jónasdóttir
náms- og starfsráðsjafi Hringsjár er
framkvæmdi könnunina hefur gert
grein fyrir henni og helstu niður-
stöðum í Fréttabréfi Öryrkjabanda-
lagsins og ætla ég ekki að tíunda þær
nákvæmlega hér.
Ljóst er að nemendur okkar hafa
skilað sér mjög vel út í atvinnulíf eða
frekara nám eins og að er stefnt.
Arangurinn virðist þar að auki varan-
legur þ.e.a.s. þarna er verið að líta til
stöðu allra útskrifaðra á þeim tíma
þegar könnunin er gerð. Þeir “elstu”
höfðu útskrifast um jól 1988 og könn-
unin náði síðan fram til þeirra sem
útskrifuðust umjól 1996. í ljós kemur
í þessari, sem og í fyrri könnunum,
að um 70%, þ.e.a.s. hátt hlutfall þeirra
sem frá okkur fara, skilar sér (varan-
lega) á vinnumarkað eða í skóla.
Þjónustusamningur
Öryrkjabandalag Islands fyrir
hönd Hringsjár, starfsþjálfunar fatl-
aðra gerði þjónustusamning við
félagsmálaráðuneytið sem undirrit-
aður var þann 27. febrúar á þessu ári
og gildir frá því í janúar 1997 þar til í
lok árs 1998, gert er ráð fyrir endur-
nýjun þessa samnings. Samningurinn
byggir á þeim verkefnavísum sem
skilað hefur verið inn til ráðuneytisins
og tekur til eftirfarandi starfsemi á
vegum Starfsþjálfunar fatlaðra:
VERKEFNl 1: Starfsþjálfun
Starfsendurhæfing, þjálfun og mat.
Fram fer kennsla, leiðsögn og sér-
fræðiráðgjöf fyrir u.þ.b. 30 einstakl-
inga hverju sinni. Markhópurinn er
fólk eldra en 18 ára, sem vegna sjúk-
dóma eða slysa þarf að skipta um
starfsvettvang, endurmeta eða styrkja
stöðu sína. Dagskrá hvers
Guðrún
36