Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1998, Qupperneq 45
Örviðtal við Ragnar
Magnússon
Eins og getið var um í síðasta
tölublaði Fréttabréfsins hefur
Blindrafélagið komið á
laggirnar trúnaðarmannakerfi þ.e.
ráðið þrjá félaga sína til að veita
öðrum blindum
og sjónskertum
og aðstandendum
þeirra ráðgjöf og
stuðning. l.júní
sl. hófu þannig
þrír aðalfélagar
störf og er þetta
tilraunaverkefni.
Ragnar Einn trúnaðar-
Magnússon mannanna er
Ragnar R. Magn-
ússon fyrrv. form. Blindrafélagsins
og þannig öllum hnútum kunnugur í
hvívetna. í örstuttu viðtali við Ragnar
kom fram að þau 3 hefðu verið valin
úr allnokkrum hópi, en aðrir þar væru
í raun á bakvakt til að leysa ákveðin
viðfangsefni sem gætu hentað betur
Hlerað í hornum
Það var á þeim tíma sem gjaldmiðils-
breytingin fór fram, tvö núll tekin
aftan af eins og margir muna. A
elliheimilinu Grund var mikil umræða
um þetta í einum matartímanum og
þá sagði ein öldruð kona: “Ekkert skil
ég í þessum alþingismönnum að vera
að rugla okkur gamla fólkið svona
gjörsamlega í ríminu. Þeir hefðu
getað beðið með þetta þangað til við
vorum dáin”.
oooooo
Sá 75 ára fékk sér nýja konu sem var
aðeins 25 ára. Vini hans leist hrein-
lega ekki á þetta fyrir hans hönd, þótti
aldursmunurinn of mikill og stakk því
upp á því við hinn nýkvænta að hann
ætti nú að prófa að bjarga þessu með
því að fá sér leigjanda. Hinn tók vel í
það og svo leið og beið og þá hittust
vinirnir aftur og spurt var hversu
gengi:
“Hvernig hefur unga konan það?”
“Takk fyrir, alveg ágætt, hún er orðin
ólétt”. “En fékkstu þér leigjanda?”
“Já, já, hún er ólétt líka”.
hjá þeim, en á það hefur mjög lítið
reynt ennþá, enda málið nýtt og
áhersla lögð á að þessir 3 öðlist
svolitla reynslu sem unnt verði svo að
byggja á.
Fyrir allan hópinn er svo ætlunin
að halda tvö námskeið á ári. Ragnar
kvað þó nokkra hafa leitað til trúnað-
armannanna m.a. með erfiðleika
vegna sjónmissis, þeim hefði verið
reynt að veita sem bestan andlegan
stuðning og um leið upplýsingar um
þá þjónustu sem í boði er fyrir blinda
og sjónskerta. Ragnar sagði reynsl-
una eiga eftir að sannast betur síðar,
en vissulega tæki nokkurn tíma, jafn-
vel misseri að skapa þessari skipan
verðugan sess í heilbrigðisgeiranum
og virkja þennan möguleika.
etta er sjálfboðaliðsvinna, allur
útlagður kostnaður greiddur og
örlítil þóknun. Fjárveiting til þessa
fékkst frá heilbrigðis- og trygginga-
ráðuneyti fyrir fyrstu sex mánuðina
og vonandi yrði þar á framhald.
Ragnar segir hins vegar að nú þeg-
ar hafi þau fundið verulega fyrir gagn-
semi þessa en þau hafa m.a. verið
mikið í því að hringja í eldri félaga
sem á félagaskrá eru — á annað
hundrað við góðar undirtektir. Athug-
að er hvernig gengur hjá þessu fólki,
hvort það fær þá þjónustu sem því ber
og um leið er það hvatt til félagslegrar
þátttöku o.þ.h.
Ef til koma atriði sem betur mega
fara þá koma trúnaðarmenn þeim til
skila til félagsráðgjafa Blindra-
félagsins.
Ragnar tók fram að allt sem fram
færi milli trúnaðarmanns og viðmæl-
anda væri að sjálfsögðu trúnaðarmál.
Ragnar sagði það sína tilfinningu
að þetta væri mjög jákvætt, þau hefðu
greinilega orðið vör við þörfina, þau
hefðu sannarlega hitt á einstaklinga
sem bæði þurftu upplýsingar og ekki
síður andlegan stuðning. Hver
einstaklingur er mikilvægur, voru
lokaorð Ragnars sem vel er þakkað
viðtalið.
H.S.
Til Sjálfsbjargar
Farsæl saga fjögurra tuga
fögnuð vekur í dag.
Ekkert létu menn böl sig buga
bjartsýnis kveðið lag.
Frumherjar áttu þá dáð að duga
með drauminn um betri hag.
Áfram skulu menn eiga í hjarta
eld og baráttuþor.
Dáðríka von og drauma bjarta
drauminn um ylríkt vor.
Megi Sjálfsbjörg merkinu skarta
og marka framtíðarspor.
Flutt á afmælishátíð 1. nóv. sl.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
45