Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2003, Blaðsíða 6
Yfirlit formanns
maður tjáði ráðherra að úr því
sem komið væri hefði hann
skilning á þessum vanda. Á hinn
bóginn væri enn hægt að gera
gott úr málum. Til að mynda
væri enn mögulegt að ná saman
um aðgerðir sem tækju gildi eigi
síðar en 1. janúar 2004 þar sem
kveðið væri á um úrbætur í
tryggingamálum öryrkja. Gæfi
sitjandi ríkisstjóm út skuldbind-
andi yfirlýsingu í þá vem
myndi Öryrkjabandalagið
vera reiðubúið til að líta svo
á að þar væri um að ræða
réttarbætur í tilefni Evrópu-
árs fatlaðra, enda lögfest
fyrir árslok 2003.
Þar sem bæði ráðuneytin,
félags- og tryggingamála,
vom á forræði sama stjórn-
málaflokksins þróuðust mál á
þann veg að formaður flokksins,
Halldór Ásgrímsson, hóf virka
þátttöku í úrlausn málsins. I kjöl-
farið voru íjölmargir fundir
haldnir, bæði með ráðherrum og
embættismönnum. Niðurstaða
þeirra varð sú að raunhæfasta og
besta leiðin væri að gera róttæka
breytingu á kerfi almannatrygg-
inga, kerfisbreytingu sem Ör-
yrkjabandalagið hafði kynnt og
hvatt til á aðalfundi sínum haust-
ið 1998.
Fyrir hönd ríkisstjórnarinnar
og Öryrkjabandalagsins gerðu
tryggingamálaráðherra og for-
maður bandalagsins samkomu-
lag sem kynnt var opinberlega á
fréttamannafundi í Þjóðmenn-
ingarhúsinu þann 25. mars s.l.
Með samkomulaginu, sem kveð-
ur á um allt að tvöfalda hækkun
grunnlífeyris frá og með 1. jan-
úar 2004, er komið alveg sérstak-
lega til móts við þá sem verða ör-
yrkjar snemma á lífsleiðinni. En
samkomulagið hafði ríkisstjómin
samþykkt endanlega á fundi sín-
um fyrr um daginn.
í samkomulaginu er kveðið á
um skipan sérstaks starfshóps
sem geri endanlegar tillögur að
breytingum á lögum um al-
mannatryggingar samkvæmt því
sem um var samið og skuli breyt-
ingarnar taka gildi E janúar
2004. Segir í samkomulaginu að
starfshópurinn skuli miða störf
sín við eftirfarandi:
Vel var mætt á aðalfundinn.
E Stigið verði fyrsta skref
til viðurkenningar á hinni marg-
víslegu sérstöðu þeirra sem
verða öryrkjar snemma á lífsleið-
inni.
2. Þeir sem yngstir verða
öryrkjar til lífstíðar fá þannig
hækkun á núverandi gmnnlífeyri
frá Tryggingastofnun sem nemur
allt að tvöföldun grunnlífeyris-
ins.
3. Þeir sem verða öryrkjar
síðar á lífsleiðinni fá hins vegar
hækkun á núverandi gmnnlífeyri
með hliðsjón af aldri, þannig að
þeir sem verða öryrkjar 67 ára fá
grunnlífeyri sem nemur sömu
upphæð og ellilífeyrir frá Trygg-
ingastofnun ríkisins.
4. Hækkunin kemur til
framkvæmda E janúar 2004.
I samkomulaginu er sömuleiðis
gert ráð fyrir að starfsendurhæf-
ing öryrkja verði efld og taki mið
af þeim margvíslegu möguleik-
um sem nú hafa skapast með
breyttum atvinnuháttum. Er þetta
gert til að ýta undir og opna
möguleika öryrkja til að taka þátt
í atvinnulífmu á sínum eigin for-
sendum. í starfshópnum sem síð-
ustu vikurnar hefur unnið að
gerð frumvarps samkvæmt áður
greindu samkomulagi sitja þrír
fulltrúar heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytis, einn
fulltrúi fjármálaráðuneytis
og formaður Öryrkjabanda-
lags Islands.
Með samkomulagi ríkis-
valdsins og ÖBÍ em ekki
aðeins mörkuð þáttaskil í
sögu og þróun almanna-
trygginga hér á landi, held-
ur í mörgum tilfellum farið
vemlega fram úr þeim vænting-
um og jafnvel kröfum sem áður
höfðu komið fram í okkar eigin
röðum. Fram til þessa hefur eitt
og sama almannatryggingakerfi
gilt fyrir öryrkja og ellilífeyris-
þega. Af þeim sökum hafði aldrei
verið talið fært að hækka örorku-
lífeyri án þess að eitt og hið sama
gilti fyrir hvem einasta lífeyris-
þega í landinu, um 40 þúsund
einstaklinga, burtséð frá því
hvort og þá hvenær þeir höfðu
orðið fýrir örorku. Með þeirri
hugmyndafræði ÖBÍ sem liggur
að baki samkomulaginu við
stjómvöld er í fyrsta sinn höggv-
ið á þennan hnút og brotist út úr
þeirri herkví sem við höfum allt
of lengi verið föst í. I krónum
talið er hér um að ræða sam-
komulag sem kosta mun ríkis-
sjóð 1,5 milljarð á ársgmndvelli
sem jafngildir helmingi þeirrar
fjárhæðar sem nú er varið til
greiðslu örorkulífeyris á ári
hverju.
Samkvæmt þeim upplýsingum