Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2003, Blaðsíða 54
iStámsí og fcpnnté-
(erö tíl Pretlantio
Starfsbraut Fjölbrautaskól-
ans í Breiðholti var stofn-
uð árið 1998. Brautin er
ætluð einstaklingum sem notið
hafa verulegrar sérkennslu í
grunnskóla eða stundað nám við
sérskóla og er kjörorð brautar-
innar "Færni til framtíðar".
Mikið þróunarstarf hefur farið
fram innan brautarinnar og frá
upphafi hafa kennarar og
þroskaþjálfar sótt hinar ýmsu
sýningar og ráðstefnur og kynnt
sér kennslufyrirkomulag í skól-
um hér heima og erlendis.
Haustið 2002 fór fjögra manna
hópur til Bretlands til að kynna
sér starfsemi þriggja sérskóla.
Markmiðið með ferðinni var
einkum að kynna sér uppbygg-
ingu starfsnáms og kennslu í
íþróttum. I þessari grein verður
ferðasagan sögð, svo og greint
frá því áhugaverðasta sem fyrir
augu og eyru bar varðandi
starfsnám nemenda.
Snemma á sunnudagsmorgni var
flogið til London. Ætlunin var að
fara samdægurs með lest til Midd-
lesbrough en allar samgöngur lágu
niðri vegna óveðurs sem geisað
hafði daginn áður. Þá var ekki um
annað að ræða en að gista í Lond-
on og vorum við svo heppnar að fá
inni í íbúð í Islington. En þar var
bæði rakt og kalt og við illa að
okkur í rafmagnshitun breskra hí-
býla. Með tjólubláar hendur og
sultardropa á nefí var því arkað af
stað út á nærliggjandi veitingahús.
Þegar hiti var kominn í kroppinn
og maginn mettur ætluðum við að
drífa okkur í háttinn en uppgötv-
uðum þá okkur til mikillar skelf-
ingar að húslyklamir höfðu orðið
eftir í íbúðinni og við því lokaðar
úti. Það sem öllu verra var að eig-
andi íbúðarinnar var staddur á Is-
landi. Elskulegur nágranni kom
okkur til bjargar og náði í nánasta
ættingja íbúðareigandans sem til
allrar lukku var með lykil og gat
opnað fyrir okkur. Við vöknuðum
árla næsta morgun með vitin full
af saggalofti. Veðrið var gengið
niður og áfram var haldið til
Middlesbrough.
I Middlesbrough var gist í tjórar
nætur á stúdentagörðum háskóla-
sjúkrahússins. Næstu daga beið
okkar þéttskipuð dagskrá því að
við þurftum að vinna upp daginn
sem fór forgörðum vegna veðurs.
Daginn eftir komuna til Middles-
brough var farið í heimsókn í
grunnskólann Priory Woods
School. Skólinn var stofnaður árið
1997 og getur tekið við 143 nem-
endum á aldrinum 4-19 ára. Skól-
anum er skipt í þrjú aldursstig: lo-
wer school (4-11), upper school
(11-16) og post school (16-19).
Skólatíminn er frá kl. 09:10 -15:10
og af öryggisástæðum em nem-
endur ekki hvattir til þess að nýta
sér almenningssamgöngur heldur
fara þeir til og frá skóla rneð
skólabílum.
Um morguninn fylgdumst við
með kennslu í myndmennt og
íþróttum. í hádeginu borðuðum
við með nemendum í mötuneyti
skólans, og vakti það athygli okk-
ar að hópur nemenda sá um þjón-
ustu. Var okkur sagt að í þessum
hópi væru mjög ólíkir nemendur
hvað varðar líkamlega og andlega
getu og væri það m.a. hlutverk
hinna getumeiri að aðstoða skóla-
systkini sín við störfin. Eftir há-
degið var staldrað við í fleiri
kennslustundum má nefna hönn-
unar-, tölvu- og íþróttatíma auk
lestrarkennslu. Tókum við sérstak-
lega eftir því hversu tölvukostur er
góður og hversu vel er staðið að
tölvukennslu í skólanum. Þegar
skólatíma var lokið fylgdumst við
með félagsstarfi nemenda á aldrin-
um 16-19 ára.
Næsta dag fórum við í Bracken-
hoe School en þar eru nemendur á
aldrinum 16-19 ára. í þessum
skóla geta nemendur valið um að
vera í fullu námi eða sótt styttri
námskeið. Eftir hádegi fórum við
til Stockton í Allensway Center
sem er dagvistun og jafnframt
starfsþjálfun fyrir þroskahefta.
Tveir starfsmanna Allensway sem
hafa mikla reynslu af því að taka á
móti gestum tóku á móti okkur,
gengu með okkur um staðinn og
sögðu frá starfseminni. Á staðnum
er unnið með ýmiskonar handverk
s.s. kerta-, sápu-, gler og pappírs-
gerð auk smíða. Árlega er hand-
verks-markaður í Stockton og er
handverkið fyrst og fremst selt
þar. Starfsmennimir sjá um veit-
ingar fyrir minni ráðstefnur og
fundi sem eru haldnir í einu af
samkomuhúsum Stockton. Það
sem okkur þótti mest til koma var
kaffihúsið sem rekið er á staðnum