Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2003, Blaðsíða 11

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2003, Blaðsíða 11
Hjálpartæki Hj r síðustu árum hefur smíði alls konar hjálp- artækja fleygt fram. Hafa ýmis þeirra valdið bylt- •ngu í lífi fatlaðra. Hér á eftir verður fjallað lítil- lega um Hjálpartækjamiðstöð Tryggingastofnunar ríkisins svo og hjálpartæki fyrir hreyil- hamlaða og heyrnarskerta. Starfsmenn seljenda hafa m.a. verið fengnir til þess að rita um þau tæki sem fyrirtæki þeirra hafa á boðstólum. Verður um- fjöllunin að vísu nokkuð aug- lýsingakennd á köflum en á móti kemur að umfjöllunin er rituð af mikilli þekkingu á við- fangsefninu. I framtíðinni verður haldið áfram að gera hjálpartækjum fatlaðra skil hér í blaðinu. Verður þá jöfnum höndum leitað til neytenda, fagfólks og seljenda til þess að fá sem fjöl- breytilegasta umfjöllun. Tryggingastofnun ríkisins rek- ur hjálpartækjamiðstöð að Smiðjuvegi 8 í Kópavogi og ann- ast afgreiðslu á hjálpartækjum til þeirra sem þurfa. Hjálpartækjun- um er ætlað að bæta fæmi og ör- yggi og auðvelda umönnum fatl- aðra. Starfsmenn hjálpartækja- miðstöðvarinnar veita ráðgjöf og útvega hjálpartæki, annast upp- setningu, sjá um breytingar og sérsmíði og veita aðstoð við að aðlaga hjálpartækin notendum. Auk þess annast þeir viðhald og viðgerðir á hjálpartækjum í eigu Tryggingastofnunar ríkisins eftir að ábyrgð seljenda er útrunnin. Ákveðið hlutfall af verði hjálp- un ríkisins. Þeir sem verða fyrir slysi við vinnu, iðnnám eða björgunar- störf em slysatryggðir. Það sama gildir um íþróttafólk 16 ára og eldra, sem slasast við æfingar, sýningar eða keppni undir um- sjón þjálfara. artækis er greitt af Trygginga- stofnun ríkisins eða veittur styrk- ur til kaupa á því og em hjálpar- tækin nær eingöngu veitt til nota inn á einkaheimilum. Undan- tekningar em hjálpartæki á sam- býli, hjólastólar fyrir einstakl- inga sem búa á stofnunum og hjálpartæki í skóla, leikskóla og dagvistunarstofnanir. Umsóknir um greiðsluþátttöku í hjálpar- tækjum em metnar m.t.t. sjúk- dómsástands, fæmi og ytri að- stæðna. Tryggingastofnun ríkisins greiðir þó ekki fyrir hjálpartæki sem notuð em skemur en í þrjá mánuði og ekki er hægt að fá aukahjálpartæki til að hafa á heimavist skóla. Hverjir eiga rétt á hjálpar- tækjum? Segja má að allir þeir sem em sjúkra- og slysatryggðir eigi rétt á hjálpartækjum. Um sjúkra- tryggingu gildir sú regla að ein- staklingar þurfa að hafa verið bú- settir hér á landi í a.m.k. 6 mán- uði til að teljast sjúkratryggðir. En þeir sem hafa búið í EES landi og em að flytja til Islands, em tryggðir frá flutningsdegi og þurfa að framvísa tilsettum vott- orðum þar um (E104), sem hægt er að nálgast hjá Tryggingastofn- Undir þetta falla einnig þeir sem hafa tryggt sig skv. skatt- framtali við störf innan heimilis- ins. Slysatryggingin nær þá yfir spelkur, gervilimi, bæklunarskó, þrýstisokka og þrýstibúnað. Hvernig á að sækja um? Sækja þarf um hjálpartæki, ef breytinga er þörf eða séraðlögun- ar. Umsóknarblöð er hægt að nálgast hjá Tryggingastofnun ríkisins eða á netinu (http//www.tr.is). Læknir og eða annar hlutaðeigandi heilbrigðis- starfsmaður t.d. iðjuþjálfi eða sjúkraþjálfari, metur þörf fyrir hjálpartækið og fyllir út viðeig- andi reiti í umsókn. Greint er frá getu einstaklingsins og rökstutt hvers vegna þörf er á hjálpar- tímarit öryrkjabandalagsins 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.