Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2003, Blaðsíða 12
Hjálpartæki
tæki. Þegar sótt er um í fyrsta
skipti verður læknir að gefa um-
sögn sína á læknisvottorði. Kraf-
ist er nýs læknisvottorðs með
umsókn ef ekki er samræmi milli
þeirra hjálpartækja sem um er
sótt og þeirra læknisfræðilegu
upplýsinga sem áður hafa borist
með umsókn um hjálpartæki.
Hjálpartækið þarf að leysa út
innan árs. Það er á ábyrgð þess
heilbrigðisstarfsmanns sem á
hlut að umsókn að hjálpartækið
nýtist sem best, s.s. með viðeig-
andi endurhæfmgu og eftirfylgd.
Forgang hafa þeir sem eru að út-
skrifast af sjúkrahúsum og tekur
það innan við 3 virka daga frá
því að fullnægjandi umsókn
berst. I öðrum tilfellum er há-
marks afgreiðslutími fímm vikur
frá móttöku fullnægjandi um-
sóknar. Ef afla þarf viðbótar-
gagna getur liðið lengri tími eða
ef umsókn er óljós.
Tryggingastofnun ríkisins ber
skv. 41. gr. laga almannatrygg-
inga nr.l 17/1993 að leita bestu
mögulegra kjara, að teknu tilliti
til gæða, á þeim vörum og þjón-
ustu sem hún greiðir eða tekur
þátt í að greiða. Tryggingastofn-
un ríkisins býður út hjálpartæki í
þeim flokkum þar sem það þykir
hagkvæmt. Þegar um samninga í
kjölfar útboðs er að ræða er þátt-
taka Tryggingastofnunar ríkisins
í kaupum á hjálpartæki háð því,
að tækið sé fengið hjá tilgreindu
samningsbundu fyrirtæki. Þar
sem Tryggingastofnun ríkisins
hefur ekki samninga er leitað til-
boða í einstök hjálpartæki og
vörur eða gerðar verðkannanir.
Sjúkrahús, stofnanir og sam-
býli fyrir fatlaða
Tryggingastofnun ríkisins
greiðir ekki hjálpartæki til þeirra
er vistast á sjúkrahúsum eða
stofnunum sem eru á föstum fjár-
lögum eða daggjaldakerfi og
gildir hið sama um öldrunar-
stofnanir. Fyrir þá sem dveljast á
sjúkrahúsi eða stofnun greiðir
Tryggingastofnun ríkisins þó
hjólastóla með skilaskyldu til
Tryggingastofnunar ríkisins að
notkun lokinni. Ef einstaklingar
eiga hins vegar að útskrifast af
sjúkrahúsi í heimahús tekur
Tryggingastofnun ríkisins þátt í
kaupum á hjálpartækjum sem
beinlínis er aflað til að viðkom-
andi geti útskrifast.
Þeir sem búa á sambýli fá sömu
fyrirgreiðslu og þeir sem búa á
einkaheimilum varðandi ein-
staklingsbundin hjálpartæki, svo
sem göngutæki, sérútbúin rúm,
borðáhöld og hjálpartæki til
klæðnaðar. Ef um er að ræða
tæki sem geta nýst fleiri einstakl-
ingum, svo sem standbekk, lyft-
ara og baðtæki, er aðeins sam-
þykkt eitt slíkt tæki inn á sambýl-
ið. Sækja þarf um þessi tæki fyr-
ir nafngreindan einstakling á
sambýlinu þótt aðrir geti samnýtt
þau. Ef sá hinn sami flytur tekur
hann tækin með sér ef reglur
leyfa og er þá unnt að sækja um
fyrir annan aðila sem þarf þessi
tæki.
Mikið fötluð böm, sem vegna
skólagöngu (leikskóla og gmnn-
skóla) eða dvalar á þjálfunar- og
dagvistunarstofnunum yrðu ella
að vera án hjálpartækja sinna
daglangt, geta átt rétt á að fá tvö
tæki af sömu gerð, annað til að
nota á heimili og hitt til að nota á
stofnun. Hér er að jafnaði um að
ræða sérhannaða stóla, stand-
grindur og göngugrindur.
Uthlutun allra hjálpartækja fyr-
ir heymarskerta með greiðslu-
þátttöku hins opinbera er á
ábyrgð Heyrnar- og talmeina-
stöðvar íslands, en úthlutun allra
hjálpartækja fyrir sjónskerta með
greiðsluþátttöku hins opinbera er
á ábyrgð Sjónstöðvar Islands.
Svæðisskrifstofur málefna fatl-
aðra annast afgreiðslu umsókna
vegna tækjakaupa til náms eftir
16 ára aldur og atvinnu eftir 18
ára aldur skv. 27. gr. laga um
málefni fatlaðra nr. 59/1992.
Einstök hjálpartæki
Um afgreiðslu einstakra hjálp-
artækja gilda ákveðnar reglur.
Má þar nefna hjálpartæki sem
notuð eru til meðferðar og þjálf-
unar s.s. við öndunarmeðferð og
blóðrásarmeðferð, hjálpartæki
vegna kviðslits, til lyljaskömmt-
unar, tæki og efni til efnamæl-
inga, raförvunartæki, hjálpartæki
til vamar legusárum og hreyfí-,
kraft- og jafnvægistæki. Um
spelkur, gervilimi, bæklunarskó
og gervihluta aðra en gervilimi
gilda einnig ákveðnar reglur.
Einnig er hægt að fá hjálpartæki
til persónulegrar aðhlynningar,
flutnings, til hjálpar við heimilis-
hald, húsbúnað, til tjáskipta, upp-
lýsinga og viðvörunar og síðast
en ekki síst hjálpartæki til að
meðhöndla tæki eða hluti.
Hægt er að fá allar upplýsingar
um hvaða hjálpartæki em í boði,
hvaða reglur gilda og hvemig
sækja skal um, hjá Hjálpartækja-
miðstöð TR í síma 860-4600.
Opnunartími er frá 8.30-15.30
alla virka daga. Einnig er hægt
að fá allar upplýsingar á netinu á
slóðinni: www. tr.is. Fyrirspumir
má senda með netpósti í
htm@tr.is sem starfsmenn svara
um hæl.
12
www.obi.is