Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2003, Page 21
Hjálpartæki
armótorar komið að góðum
notum. Fólk getur þá haldið
áfram að nota stólana sína, en
dregið er úr álaginu þannig að
það sé í samræmi við hreyfi-
getu notandans.
Veruleg framþróun hefur ver-
ið í þessum léttibúnaði fyrir
hjólastóla undanfarin ár, eink-
um hvað snertir rafhlöður og
hjálpannótora sem nú eru orðn-
ir léttari og einfaldari í notkun
en áður. I fremstu röð er
e-motion búnaðurinn frá þýska
fyrirtækinu ALBER sem hefur
hlotið viðurkenningar fyrir
hönnun og stýribúnað. Hægt er
að setja hann á flestar gerðir
hjólastóla. Rafmótor og raf-
hlaða eru sambyggð og þarf að-
eins að breyta um festingar fyrir
mismunandi gerðir stóla. Drif-
hjólin tengjast ekki saman og er
því fljótlegt og auðvelt að smella
búnaðinum af og setja hann á, ef
þörf krefur.
E-motion búnaðurinn er þannig
gerður að notandinn knýr stól
sinn áfram með venjulegum
hætti, en gripið er til léttibúnað-
arins þegar þarf að gera akstur-
inn léttari. I drifum e-motion
búnaðarins eru skynjarar sem
nema átak notandans og láta
búnaðinn koma til hjálpar þegar
þörf er á og er hægt að velja milli
tveggja átaksstiga. Stjórnbúnað-
ur notanda er einfaldur og hægt
að stilla hann eftir getu hvers og
eins, en þær stillingar eru gerðar
af framleiðanda eða þjónustuað-
ila.
Þar sem drifhjólin tengjast ekki
saman er auðvelt að stilla átakið
á hvoru hjóli fyrir sig og því
hægt að bregðast við því ef not-
andi hefur misjafnlega mikinn
kraft í handleggjunum. Má því
segja að e-motion sé ekki að-
eins hjálpartæki heldur einnig
þjálfunarbúnaður vegna þess
hvað stillingarnar eru fjöl-
breytilegar.
E-motion léttibúnaðurinn er
hljóðlátur og aksturinn er
hnökralaus. Hraðinn verður
mestur 6 km á klukkustund og
kemur það að gagni við að
halda aftur af hraða stólsins
þegar ekið er niður brekkur og
eykur þannig öryggi notandans.
Það sem mestu skiptir er þó að
hreyflfærni hjólastólanotenda
eykst til muna og það dregur úr
álagi á líkama þeirra. Hvort
tveggja er til þess fallið að auka
almenna vellíðan og efla frelsi
fólks til að fara sinna ferða á eig-
in forsendum.
Greinin er skrifuð af söluaðila
tækjanna.
HTS Hjálpartæki - Stoð
Trönuhrauni 8
220 Hafnarfirði
Sími 565 2885
tímarit öryrkjabandalagsins