Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2003, Side 29

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2003, Side 29
Opnugrein unarfræði, er að gera sig gildandi á Islandi þessi misserin á sama hátt og víða erlendis. Rannsókn- in og ritgerðin voru annars vegar innlegg í rannsóknir og umræðu innan fötlunarfræðanna og hins vegar var markmiðið að setja fram hagnýtar ábendingar og til- lögur um úrbætur. Flokkun herðatrjáa í Örva fyrir Zöru, Hagkaup og fleiri verslanir Baugs. Hvað var rannsakað? Meginspumingamar sem settar voru fram vom eftirfarandi: - Hver er stjómsýsluleg staða atvinnumála fatlaðra einstakl- inga á Islandi og hvemig er þess- um málaflokki stjómað? Hvert er hlutverk opinberra aðila í raun? - Hvar eiga atvinnumál fatlaðs fólks heima í stjórnkerfinu? Eiga þau heima með atvinnumál- um annarra og falla undir kerfi Vinnumálastofnunar eða er rétt að þau séu áfram flokkuð sem fé- lagsþjónusta? - Hvaða líkan eða sjónarhom stefnugreiningar lýsir best stefnumótun, ákvarðanatöku og þróun í atvinnumálum fatlaðs fólks á íslandi? - Hvemig er stutt við nýsköpun og frumkvæði? Hver er hvati nýjunga og framþróunar og hvaðan kemur frumkvæði? Hvert er hlutverk hugmynda- fræði hvað þessa þætti varðar? Pökkun gíróseðla á vinnustofunni Ás. Atvinnumál fatlaðra í öðrum löndum A liðnum ámm hafa miklar breytingar orðið í löndunum í kring um okkur. Þessar breyting- ar hafa annars vegar ráðist af þrengri fjárhag hins opinbera og kröfum um sparnað og hag- kvæmni og hins vegar af því að fatlaðir einstaklingar hafa gert kröfu um aukin réttindi. Á sama ...félagsmálaráðherra tilkynnti opinberlega í aðdraganda ársins að yfirskrift íslenskra stjórnvalda fyrir þetta ár væri: "Sameiginleg- ur vinnumarkaður" og að lögð yrði sérstök áhersla í félagsmála- ráðuneytinu á atvinnu- mál fatlaðra á árinu. tíma og opinberir aðilar vilja spara og hagræða, þrýstir fatlað fólk og talsmenn þess á um auk- in mannréttindi og að fatlaðir einstaklingar eigi þess kost að vinna á sömu vinnustöðum og aðrir í samfélaginu. Til að draga fram kjamann í kröfum fatlaðra einstaklinga hvað varðar atvinnumál er rétt að vitna í ályktun sem samþykkt var á Evrópuráðstefnu um fötlun sem haldin var í Madríd í mars- mánuði árið 2002. Ályktun þessi gengur undir nafninu Madríd ályktunin (Madrid declaration). Ályktunin er sett fram fyrir hönd yfír 50 milljóna fatlaðra Evrópu- búa og setur fram þeirra sýn um samþætt (inclusive) evrópskt samfélag sem byggir á mannrétt- indum og jöfnum tækifærum allra og vinnur gegn sundur- greiningu þegnanna (non- discrimination). I þessari ályktun er litið svo á að atvinna fatlaðs fólks sé eitt af grundvallaratrið- unum hvað varðar félagslega samþættingu. Þar segir um at- vinnumál fatlaðra einstaklinga: "Gera verður sérstakar ráðstaf- anir til að tryggja fötluðum ein- staklingum atvinnu og leggja ber áherslu á að þessi atvinna verði í fyrirtækjum á almennum vinnu- markaði. Þetta er eitt það mikil- vægasta sem hægt er að gera ef berjast á gegn félagslegri útilok- un (social exclusion) fatlaðs fólks og stuðla að sjálfstæðu lífi þess og virðingu. Þetta gerir kröfu um að ná þarf saman í eina fylkingu öllum þeim aðilum í samfélaginu sem málið varðar og opinberum aðilum sem þurfa að halda áfram að styrkja þær að- gerðir sem stefna að þessu mark- miði og þegar eru til staðar í samfélaginu." Það má segja að kenningar um eðlilegt líf og samfélagsþátttöku fatlaðs fólks séu innbyggðar í fé- lagsmálastefnu og þjónustu við fatlað fólk í flestum vestrænum ríkjum. Stjómvöld em þó mis- langt komin í að framfylgja þess- tímarit öryrkjabandalagsins -■ - r n. 29

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.