Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2003, Síða 45
vangi umræðu um málefni fatl-
aðs fðlks í álfunni. Fyrir vikið
hafa þau haft mikil áhrif á félags-
lega og efnahagslega stefnumót-
un í löndum Evrópu.
Möguleikar fatlaðra einstakl-
inga til atvinnu eru háðir kröfum
markaðarins og ástandi atvinnu-
veganna en einnig skiptir miklu
aðgengi fatlaðra einstaklinga að
menntun, almenningssamgöng-
um, að upplýsinganetum, þjón-
ustu og vörum. Af þeim sökum
styður Evrópudeild Alþjóðasam-
taka heilshugar tillögu Evrópu-
samtaka fatlaðra um vinnu og
verkþjálfun þ.e.a.s., þrýsta á und-
irbúning sérstakrar stefnu Evr-
ópusambandsins á grundvelli
þriðju greinar Evrópusáttmálans.
Slík stefna myndi sporna gegn
mismunun fatlaðra og ófatlaðra
einstaklinga á öðrum sviðum en
þeim sem snerta atvinnumál.
A síðustu árum hafa verið
gefnar út margar skýrslur á veg-
um Framkvæmdastjórnar Evr-
ópusambandsins um málefni
fatlaðra einstaklinga. Stefna Evr-
ópusambandsins í málefnum
fatlaðra hefur verið að færast frá
því að "mæta þörfum" í átt að
aukinni áherslu á réttindi fatlaðra
einstaklinga. Þetta var megin-
inntak yfirlýsingar framkvæmda-
stjómarinnar sem ber heitið "Til
móts við Evrópu án þröskulda"
(Towards a barrier-free Europe)
sem gefin var út árið 2000. í
henni er rakið hvemig best sé að
tryggja aðgang fatlaðs fólks að
stofnunum, fyrirtækjum og þjón-
ustu samfélagsins. Nær tilskip-
unin yfir stóran hluta af stefnu-
málum ESB, allt frá baráttu gegn
mismunun, til atvinnuþátttöku,
samgangna og upplýsingatækni.
Aðgangur fatlaðra einstaklinga
að samfélaginu skiptir ekki að-
eins máli í félagslegu tilliti held-
ur einnig efnahagslegu. Rann-
sóknir sýna að þeir em mun lík-
legri en aðrir til að vera án at-
vinnu - og það lengur - og að
laun þeirra em oft undir meðal-
launum. Fjarvera fatlaðra ein-
staklinga frá atvinnumarkaðnum
leggur miklar fjárhagslegar byrð-
ar á opinberar stofnanir og sam-
félagið allt þótt öllum sé ljóst að
mjög margir fatlaðir einstakling-
ar sækjast eftir atvinnu, sé þeim
veittur viðeigandi stuðningur og
tækifæri. Þetta er ástæðan fyrir
því að fötlun er einn af þeim
málaflokkum sem settir em á
oddinn í tilskipuninni um jafna
aðstöðu til atvinnu og í verkefna-
áætluninni um baráttu gegn mis-
munun.
Evrópudeild Alþjóðasamtaka
um vinnu og verkþjálfun hvetur
til þess að fljótt og vel verði unn-
ið að því að hrinda í framkvæmd
tilskipun Evrópusambandsins
um jafna aðstöðu á vinnumark-
aði. Tilskipunin var formlega
gefin út í nóvember 2000 og er
ætlað að vernda fatlaða einstakl-
inga frá mismunun í atvinnu og
starfsþjálfun.
A alþjóðavettvangi hefur Evr-
ópudeild Alþjóðasamtaka um
vinnu og verkþjálfun fagnað
fmmkvæði Sameinuðu þjóðanna
þar sem ákveðið hefur verið að
vinna að undirbúningi yfirlýsing-
ar um réttindi fatlaðra. Við erum
þeirrar skoðunar að rétturinn til
atvinnu sé eitt af meginatriðum
þessarar yfirlýsingar og erum
reiðubúin að styðja eftir mætti
undirbúning hennar. Því fagnar
Evrópudeild Alþjóðasamtaka um
vinnu og verkþjálfun skýrslu
sem gefin var út fyrir skömmu af
ILO, Alþjóða vinnumálastofnun-
inni, sem ber heitið "Réttur fatl-
aðra til mannsæmandi vinnu".
Meginmarkmið Alþjóða vinnu-
málastofnunarinnar er að skapa
tækifæri fyrir konur og karla, þar
með taliðfatlað fólk, til að fá
mannsæmandi og góð störf sem
byggjast á frelsi, jafnrétti, öryggi
og mannlegri reisn.
í félagi við ILO hafa atvinnu-
rekendur sent frá sér tilkynningu
sem ætluð er fyrirtækjum og at-
vinnurekendum sem ber yfir-
skriftina "Að opna möguleika -
Nýtt viðskiptalíkan fyrir fólk
með fötlun". Evrópudeild Al-
þjóðasamtaka um vinnu og verk-
þjálfun er ákaflega ánægð með
þetta frumkvæði atvinnurekenda.
Fyrirtæki sem hafa framtíðar-
sýn og vilja til að skapa umhverfi
sem eflir þátttöku ólíkra hópa
samfélagsins eiga eftir að
blómstra. Fatlaðir einstaklingar
geta og vilja vera hluti af þessari
velgengni. Þessi leið á einnig eft-
ir að efla samfélagið á breiðari
grundvelli og stuðla að uppbygg-
ingu félagslegrar samheldni og
samkeppni á markaði.
Enn vantar í umræðuna rödd
þeirra þjónustuaðila sem sinna
atvinnumálum fatlaðra. Dag
hvem hrinda þeir í framkvæmd
áformum, stefnumörkun og áætl-
unum. An þeirra kæmu fyrir lítið
vonir Qölmenns hóps fatlaðra
einstaklinga um réttmætan sess í
atvinnulífinu.
Jafnvel þótt skýr vilji sé til
jafnra atvinnutækifæra og jafn-
réttis á vinnustöðum er ljóst að í
raun er slíkt aðeins draumsýn
tímarit öryrkjabandalagsins
45