Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2003, Qupperneq 47

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2003, Qupperneq 47
(vii) Þeir sem vinna innan okkar vébanda eða njóta þjón- ustu okkar skulu taka þátt í öllum ákvörðunum sem þá varðar - "ekkert um fatlaða án fatlaðra". (viii) Við munum hvetja og upplýsa þjónustuþega í því skyni að þeir komist út á almenna vinnumarkaðinn og finni viðun- andi og varanleg störf. (ix) Lögð verð- ur áhersla á þörf mikið fatlaðra ein- staklinga að taka þátt í störfum á al- menna vinnumark- aðnum einkum í Ijósi þeirra nýju tækifæra sem tækniframfarir hafa opnað. (x) Við veitum eða bendum á þjálfunarleiðir eða námskeið sem bæta verklega og félagslega færni einstaklingsins. Símenntun þeirra sem eru í at- vinnu verður aukin og gerð að- gengileg, einkum á sviði upplýs- ingatækni. (xi) Lögð verður áhersla á sterkar hliðar einstaklingsins en ekki þær veiku í öllu starfi okkar. Kraftar verða virkjaðir og þrösk- uldar afnumdir til að efla at- vinnuþátttöku fólks með fötlun. (xii) Reynslu okkar nýtum við til að beita bestu aðferðum hverju sinni og verða þær aðferð- ir stöðugt endurskoðaðar með hliðsjón af árangri. (xiii) Evrópudeild Alþjóða- samtaka um vinnu og verkþjálf- un kappkostar sem fyrr að vinna náið með öllum öðrum sambæri- legum samtökum. (xiv) Þjónusta okkar stendur til boða öðrum minnihlutahópum ef talið er að hún gagnist þeim. (xv) Við virðum sjónarmið fatlaðra eins og þau birtast í Ma- drídaryfirlýsingunni. Tillögur I eftirfarandi tillögum er tekið á nokkrum af þeim fjölmörgu þátt- um sem hafa áhrif á aðgengi fatl- aðra einstaklinga að vinnumark- aðnum: • Ekki er hægt að meta misvægi í atvinnuþátttöku fatl- aðra einstaklinga annars vegar og vinnufærs fólks hins vegar án áreiðanlegra staðtalna frá ESB og ríkjunum sjálfum. Af sömu ástæðu er ekki heldur hægt að meta árangur þeirra aðgerða sem eiga að leiðrétta þetta meinta misvægi. Margir fatlaðir ein- staklingar eru útilokaðir með öllu frá atvinnulífinu og því gefa atvinnuleysistölur einar og sér ekki góða vísbendingu um þann fjölda sem myndi vilja atvinnu ef tækifæri og stuðningur væru til staðar. • Kostnaðinn, við að leið- rétta þetta misvægi, yrði að meta með hliðsjón af mun meiri kostn- aði sem nú leggst á vegna mátt- lausra eða of lít- illa aðgerða stjómvalda. • Reynslan af starfi okkar sem þjónustuveit- endur sýnir að hægt er að ná um- talsverðum ár- angri með aðferð- um sem sam- þykktar eru af fötluðum einstakl- ingum. Veita ætti fjármunum í að efla og þróa þessa árangursríku starfsemi í stað þess að dreifa fjánriagni í endalausar rannsókn- ir og nýjar tilraunir og áætlanir. Með þessum hætti myndu fatlað- ir einstaklingar fá aukinn aðgang að þjónustu sem hefur sannað gildi sitt og þar með skotið sterk- um stoðum undir varanlega at- vinnuþátttöku fatlaðra einstakl- inga. • Allir þurfa að leggja hönd á plóginn til að stuðla að samskipun allra íbúa Evrópu. Ríkisstjómir verða að skapa for- dæmi og setja skýr markmið. At- vinnurekendur þurfa að viður- kenna ábyrgð sína og vinna að þessum markmiðum. Fatlaðir Leo Kooyman forstjóri NOSW í Hollandi, Rey Fletcher formaður "Work & Employment Commission Rehabilitation International og Mark Daym- ond fyrrv. framkvæmdastjóri Workability International og fulltrúi Shaw Trust í Bretlandi. tímarit öryrkjabandalagsins 47

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.