Bændablaðið - 04.06.2020, Blaðsíða 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 202010
FRÉTTIR
Haraldur Björnsson, frístundabóndi á Siglufirði, með Ærinni Demanti og lömbunum hennar fimm sem hún bar 11.
maí síðastliðinn. Greint var frá þessum óvenjulega burði á forsíðu síðasta tölublaðs Bændablaðsins. En ekki er
annað að sjá en bæði móður og lömbum heilsist vel. Demantur hefur samtals skilað 12 lömbum í heiminn á þremur
árum, en ærin er í eigu Jóhönnu Unnar, dóttur Haralds.
Myndasamkeppni Landssambands kúabænda:
Kálfarnir Rósa og Drós ásamt
kettinum Steypu í fyrsta sæti
Um 60 myndir og myndbönd
bárust í myndasamkeppni
Lands sambands kúabænda
sem haldin var í samstarfi við
Mjólkur samsöluna í tilefni af
alþjóðlega mjólkurdeginum 1.
júní síðastliðinn. Birtu þátttak-
endur myndir og myndbönd á
hinum ýmsu samfélagsmiðlum
og merktu þær #Drekkummjólk
og #WorldMilkDay til að kom-
ast í pottinn.
„Það voru margar mjög
skemmtilega myndir sendar inn
og vil ég þakka fyrir góða þátttöku
og óska vinningshöfum hjart-
anlega til hamingju. Verkefnið
mæltist vel fyrir svo það er ekki
útilokað að við endurtökum
leikinn að ári,“ sagði Margrét
Gísladóttir, framkvæmdastjóri
LK.
Hér má sjá myndir sem skip-
uðu þrjú efstu sætin en fleiri
myndir úr samkeppninni er að
finna á heimasíðu LK, naut.is.
1. Hilda Pálmadóttir. Kálfarnir
Rósa og Drós ásamt kettin-
um Steypu í fjósinu á Stóra-
Ármóti. Ljósmyndari er bróð-
ir Hildu, Reynir Pálmason.
2. Jóhanna Hreinsdóttir. Hrönn,
dótturdóttir hennar, ræðir við
kvíguna Sölku í Káraneskoti.
Myndasmiður er dóttir
Jóhönnu og móðir Hrannar,
Lovísa Ólöf Guðmundsdóttir.
3. Sigurjón Helgason. Kvígan
Steypa og móðirin Katrín á
Mel í Borgarbyggð. Mynd;
Sigurjón Helgason.
Samgöngur:
Fjármagn aukið til almennings
samgangna milli byggða
Samgöngu- og sveitarstjórnar-
ráðherra, hefur tryggt auknar
fjárveitingar til almennings-
samgangna milli byggða.
Aukinn stuðningur er sagð-
ur nauð synlegur til að bæta
rekstrar aðilum almennings-
samgangna upp tekjutap í kjöl-
far COVID-19 faraldursins.
Stuðningurinn nær til þjónustu
sem nýtur þegar styrkja frá rík-
inu, en um er að ræða siglingar
Herjólfs, flug Ernis og Norlandair
og akstur almenningsvagna milli
byggða. Einnig verður Isavia bætt
tekjutap á innanlandsflugvöllum
og ferðir Baldurs um Breiðafjörð
tryggðar í sumar.
Rekstrargrundvöllurinn
brostinn
Í tilkynningu frá ráðuneytinu
er haft eftir Sigurði Inga
Jóhannssyni samgöngu- og sveit-
arstjórnarráðherra að legið hafi
fyrir að rekstrargrundvöllurinn
væri brostinn. „Það stefndi í al-
gjört óefni og að mínu mati er
óhjákvæmilegt að bregðast við
ástandinu. Það eru margir sem
treysta alveg á þessa þjónustu,
svo eru landsmenn að leggja af
stað inn í frábært ferðasumar inn-
anlands. Þessir hlutir verða bara
að vera í lagi.“
Mikilvægt að viðhalda
samgöngum
„Það er afskaplega mikilvægt að
viðhalda öflugum almennings-
samgöngum fyrir almenning og
atvinnulíf um land allt. Raunar
má telja að mikilvægi þeirra auk-
ist enn frekar í framhaldi af far-
aldrinum og að fleiri muni kjósa
að nýta sér þjónustu almennings-
vagna, ferja og flugs á ferðum
sínum,“ segir Sigurður. /VH
Myndin sem lenti í 1. sæti kom frá Hildu Pálmadóttur. Kálfarnir Rósa og Drós ásamt kettinum Steypu í fjósinu á
Stóra-Ármóti. Ljósmyndari er bróðir Hildu, Reynir Pálmason.
Myndin sem lenti í öðru sæti.
Hrönn ræðir við kvíguna Sölku í
Káraneskoti.
Kvígan Steypa lenti í þriðja sæti.
Hvítmygluostar smitaðir af
blámyglu fóru í verslanir
Mjólkursamsalan hefur beðið við-
skiptavini sína afsökunar á því að
hvítmygluostar sem smitaðir voru
af blámyglu hafi farið á markað.
Uppsetning á nýjum vélum í mars
síðastliðinn hafi tafið framleiðslu
á rjómaostum.
Smitið sem um ræðir barst í hvít-
mygluosta eins og Dala Camenbert,
Dala Brie, Auði og Dala hring. Um
er að ræða sams konar blámyglu og
er í ostunum Ljót, Bláum kastala
og öðrum blámygluostum, en því
miður varð smit frá þeim yfir í hina.
Gallinn er með öllu hættulaus og
fyrst og fremst sjónrænn.
Mygluostar seldust víða upp
Mikil eftirspurn var eftir myglu-
ostum fyrir hvítasunnuhelgina og
seldust þeir sums staðar upp en ný
framleiðsla er komin í verslanir.
Bragðbættir rjómaostar á markað
Komnir eru á markað nýir
bragðbættir rjómaostar frá MS.
Ostarnir eru rjómaostur og
rjómaostur með pipar sem eru
endurbættar útgáfur rjómaosta
sem áður voru á markaði en hinar
þrjár tegundirnar eru glænýjar.
Það eru rjómaostur með grillaðri
papriku og chilli, rjómaostur
með karamellíseruðum lauk og
rjómaostur með graslauk og lauk.
Mascarpone rjómaostur hefur
aftur á móti verið ófáanlegur í
nokkra mánuði en væntanlegur í
næstu viku í stærri umbúðum og
innan tíðar í neytendaumbúðum.
Einhver vandkvæði fylgdu upp-
setningu nýrra véla í mars síðast-
liðnum vegna nýju ostanna sem
leiddi til að fyrstu ostablöndurnar
voru ónákvæmar en búið er að leysa
þann vanda. /VH
Hvítmygluostar seldust upp um hvítasunnuhelgina. Komnir eru á markað
nýir bragðbættir rjómaostar frá MS. Mynd / TB