Bændablaðið - 04.06.2020, Blaðsíða 55
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 2020 55
Af og til berast af því fregnir að
börn undir 18 ára aldri slasa sig á
sveitabýlum. Ótrúlega oft koma þá
einhvers konar ökutæki við sögu
sem var orsakavaldurinn.
Dráttarvél, fjórhjól eða vélsleði
eru algengustu tækin sem ungmenni
eru að slasa sig á. Þessi slys eru fleiri
en opinberar tölur segja til um því
ekki eru öll slys skráð og jafnvel eru
til sögusagnir um að slys séu ranglega
skráð vísvitandi vegna þess að hinn
slasaði hafði ekki ökuréttindi til að
stjórna ökutækinu sem orsakaði
slysið. Þetta eru stór orð og miklar
fullyrðingar hjá undirrituðum, en
því miður er þetta staðreynd og
sem innskot hér þá gleymi ég því
seint þegar ég var fyrir um ári síðan
staddur á ónefndum sveitabæ og
sonur bónda ætlaði að skjótast á
fjórhjóli til að reka álftir úr túni að
bóndi sagði við son sinn:
„Vertu með hjálm, látum Hjört
ekki ná af þér mynd hjálmlausum á
fjórhjólinu.“
Flestir geta rifjað upp fyrsta
skiptið sem þeir keyrðu ökutæki
Í nokkurra manna spjalli við menn
á sextugsaldri sem ólust upp í sveit
og búa enn í sveit vorum við að rifja
upp hvað við vorum gamlir þegar við
keyrðum fyrst dráttarvél.
Hjá okkur flestum var svarið
að við byrjuðum á aldrinum 7–9
ára að slóðdraga tún á litlum
dráttarvélum. Á þessum árum voru
minnstu dráttarvélarnar lítið stærri en
fjórhjól og oft og tíðum án húss eða
veltigrindar. Í framhaldi spurði ég
viðmælendur mína hug þeirra til þess
að setja sín eigin börn upp á dráttarvél
til að slóðdraga túnið heima við bæ.
Svarið var ósköp einfalt.
Dráttarvélum í dag og fyrir
fimmtíu árum er ekki hægt að
líkja saman. Að vera 7–9 ára
á þessum nýju vélum gengur
einfaldlega ekki upp. Enda
hefur 7–9 ára barn ekki getu
til að stjórna svona stórum
dráttarvélum. Hins vegar ef
rétt er farið með fjórhjól og
smæstu vélar voru flestir
sammála að 10–12 ára ættu
að ráða við svoleiðis tæki með
réttri tilsögn og undir eftirliti.
Ekki allt slæmt frá Ameríku þó að
sumt sé vissulega „sjokkerandi“
Ein af mörgum stofnunum og
félögum í Ameríku er „The National
Children’s Center for Rural and
Agricultural“, sem sérhæfir sig
í forvörnum til ungmenna á
sveitabýlum. Hún hefur lagt mikla
áherslu undanfarin ár í að ná til
þeirra sem eru undir 15 ára aldri
síðan 2015 þegar slys ungmenna
undir þeim aldri náðu hámarki.
Á árunum 2015 til 2018 fækkaði
slysum í þessum aldurshópi um
tæplega fjórðung. Á meðan þeir
settu svona mikla orku og áherslu
á þennan aldurshóp hækkaði í
staðinn slysatíðni í aldurshópnum
15–18 ára. Childhood Agricultural
Injuries í USA hefur síðan 1992
gefið út árlega samantekt úr skráðum
slysum ungmenna í Ameríku og
nýlega kom út samantekt fyrir árið
2020 sem byggir á gögnum til 2018
með fyrirsögninni að 60% af slysum
á sveitabýlum er utan vinnutíma (við
leik).
Skráning slysa í Ameríku
góð, en slysatíðnin alltof há
Í Bandaríkjunum er það lagaleg
skylda að skrá öll slys sem verða á
býlum (há sekt ef slys eru ekki skráð
eða rangt skráð). Í Bandaríkjunum
eru yfir tvær milljónir bændabýla og
á þeim búa og starfa tæplega 900.000
ungmenni undir 18 ára aldri. Árlega
eru ráðnir til viðbótar um 250.000
ungmenni til starfa á býlunum og um
23 milljónir ungmenna heimsækja
bandarísk býli árlega.
Daglega slasast að meðaltali
33 börn á býlum og að meðaltali
allt árið þriðja hvern dag lætur
ungmenni lífið af völdum áverka
eftir slys á bandarísku bóndabýli.
Af þessum banaslysum eru flest
þeirra tengd ökutækjum, eða 47%
slysa. 60% af þessum slysum voru
vegna þess að verið var að leika
sér á ökutækjum (oftast fjórhjólum)
án nægilegs öryggisbúnaðar s.s.
hjálm og brynju. Einhverjum finnst
eflaust að líkja saman Íslandi og
Bandaríkjunum ekki skynsamleg
samlíking, en tæki hér og tæki
þar eru svipuð. Rétt hugarfar,
hlífðarbúnaður og hjálmar eru
eins svo að samlíking er að því
leyti réttlætanleg. Förum varlega
og hugsum vel um börnin okkar,
þau eru okkar mesta gull.
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
KROSSGÁTA Bændablaðsins
Lausn á krossgátu í síðasta blaði
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Bænda
Smáauglýsingar 56-30-300
GIMSTEINN
EFTIR-
MYND T ALDUR R FÁTÆKRA-HVERFI UMTALS Á ANNÁLL
B
GRÓÐUR-
SÆLL
GÓMA L Ó M L E G U R HLUT-DEILD
RG Í P A
GREIÐA
RÍKI Í
AFRÍKU K E M B A
AHNETA K A N TRAÐKAÐI T R Ó Ð
I S K Í VÉLSÍÐRI T Æ K I
T
TÁTU
HYLUR
FLAGA L Ó N Í RÖÐ
NEISTI
GRENND G L Ó Ð GAGN L
MERKIHÚRRA
VDRYKKURUMBUN
R
R E F A
RÍKI Í
V-AFRÍKU
UMRÓT G Í N E A
SÁR
TVÍ-
HLJÓÐI U N DÞ
I L L U R
SKÓA
HÖFUÐ-
FAT J Á R N A KLÆÐI O SÍÐARI
ÞRÁTTA
REIÐUR
S P Í N A T FUGL N NÆÐASTÖÐUGT G U S T AMATJURTKOLLUR
A U S ÚÐAVAFIN S Ú L D A R TALA J RÍKI Í EVRÓPU FH
B AFKIMIFYRRUM A F K R Ó MÝKJASTSPRIKLA L I N A S T
J Á LIÐUR L ÞVOGL B A B L FLÍK Ú L P AÞ
A Ð H Æ F A EINDHÆÐ A T Ó M
TÍMA-
EINING
ÁTT Á R
SAMLAGA
DÝRA-
HLJÓÐ
R
G
U
R
N
É
K
T
FYRIR-
GEFA
U
N
KRYDD
Á
S
Ð
A
A
F
FJALLS-
NÖF
F
E
R
N
A
N
N
IK
TÁR-
FELLDU
KVELJA
M
Y
N
D
:
W
N
IC
K
O
W
EN
(
CC
B
Y
-S
A
4
.0
)
H
Ö
FU
N
D
U
R
B
H
•
B
R
A
G
I@
TH
IS
.I
S
•
K
R
O
SS
G
A
TU
R
.G
A
TU
R
.N
ET
130
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Gúmmíbelti
- Fyrir smágröfur
GLITTIR
MISTAKAST
DRABBA TVÍSÝNA ÁHALD SMÁHÖGG
SKOTRA
FANTALEG
HIRÐA
SNÖGG-
LEGA
HLJÓÐ-
FÆRI
SMÁMJAKA
SKORA
ORÐTAK
MATJURT
HLEMMUR
GAGNSÆR
FREMSTI
TÍÐ
VIÐ-
BURÐUR
HVAÐ
REYNSLU-
LAUS
HALDBLÓM
STAFUR
SPIK
MIÐ
SAMTÖK
VARKÁRNI
KLIFUN VIÐURVIST
ULLAR-
BAND
BLANKUR
FUGL
STÖÐVA
FUGL
ALBATA
SPÁSSERA
NÆÐUÐ
UNA
GJÁLFUR
HINGAÐ
MÁTAR
FRJÁLST
NÝLEGA
HADDUR
VAGG
BORINN FLOKKA
INNSIGLI
MÆÐI
NÓTA
DÍKI
LIGGJANDI
TÓMUR
HVAÐEINU
BÝSNA
ODDI
NUDDAST
MERKJA
ELLEGARNOT
ILMANDI
M
Y
N
D
:
A
LE
K
SA
N
D
R
S
B
A
LO
D
IS
(
CC
B
Y
-S
A
4
.0
)
H
Ö
FU
N
D
U
R
B
H
•
B
R
A
G
I@
TH
IS
.I
S
•
K
R
O
SS
G
A
TU
R
.G
A
TU
R
.N
ET
131
Börn á sveitabæjum slasa sig of oft
Ein af mörgum stofnunum og félögum í Ameríku er „The National Children’s
Center for Rural and Agricultural“ sem sérhæfir sig í forvörnum til ungmenna
á sveitabýlum. Á árunum 2015 til 2018 fækkaði slysum í þessum aldurshópi
um tæplega fjórðung.