Bændablaðið - 04.06.2020, Blaðsíða 32

Bændablaðið - 04.06.2020, Blaðsíða 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 202032 „Það er ótrúlega skemmtilegt að framleiða eigin matvæli og úr okkar eigin hráefni, sérstak- lega þegar það heppnast svona vel,“ segir Auður Filippusdóttir, líftækni- og matvælafræðingur á Skútustöðum í Mývatnssveit. Félagið Skútaís var stofnað í fyrra og hóf starfsemi, framleiðslu og sölu á ís síðsumars. Ísinn er fram- leiddur á Skútustöðum og seldur beint frá býlinu. Auður er Akureyringur og bjó þar stærstan hluta ævi sinnar, en undanfarin tvö ár hefur hún búið í Mývatnssveit. Hún kynntist kærasta sínum, Júlíusi Björnssyni, sumarið 2017, en hann er bóndi á Skútustöðum. Þá um haustið flutti Auður til Reykjavíkur og hóf meist- aranám í matvælafræði. Júlíus, sem er bóndi og bundinn búskapnum, var ekki endilega á þeim buxunum að flytja úr Mývatnssveitinni þannig að Auður fór að velta fyrir sér við hvað hún gæti starfað þar. „Framboð á atvinnu fyrir matvælafræðinga er ekki mikið á þessu svæði, þannig að ég ákvað að búa mér til atvinnu og opna ísbúð,“ segir Auður um tildrög þess að félagið Skútaís var stofnað. Hún lauk meistaranámi sínu og má segja að lokaverkefnið hafi verið frekar einstakt, en það er byggt upp sem undirbúningur fyrir ísgerð, framleiðslu og sölu beint frá býli. Það innihélt ítarlega umfjöllun um ís og ísgerð, gæðahandbók, viðskipta- áætlun og vöruþróun. Leiðbeinendur voru þeir Guðjón Þorkelsson og Þórarinn Egill Sveinsson, sem báðir voru harla ánægðir með útkomuna. Auður fékk styrk úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og nýtti hann meðal annars í námskeið í ísgerð sem haldið var í Háskólanum í Reading, Englandi. Ísbúðin vakti strax mikla lukku Síðastliðið sumar ákvað fjölskyldan að demba sér beint í djúpu laugina, en Auður ásamt systkinum kærastans og mökum þeirra stofnuðu í sam- einingu einkahlutafélag. Systkinin eru fimm í allt en fjögur búa í Mývatnssveit og reka í sameiningu búskapinn á bænum og gistiheimili að Skútustöðum. Nýja félagið fékk nafnið Skútaís ehf. og tókst að opna ísbúðina í byrjun ágúst í fyrra. Hún var opin alla daga þann mánuð og í september, en þá tók við helgar- opnun út árið. „Þetta vakti mikla lukku, bæði meðal heimamanna og eins ferðamanna sem komu í heim- sókn í sveitina,“ segir Auður. Jólamarkaðurinn var góður Hún notar eigin uppskriftir við framleiðslu á ísnum og segir að hún snúist fyrst og fremst um að búa til gæða kúluís úr mjólkinni sem til fellur á bænum. Pláss er fyrir níu bragðtegundir í ísborðinu og reynir hún að bjóða nýjar bragðtegundir reglulega í bland við þær vinsælustu hverju sinni, en í allt eru um 20 bragðtegundir í boði. „Við fórum á tvo jólamarkaði fyrir síðustu jól og buðum upp á þrjár mismunandi jólabragð- tegundir, það er óhætt að segja að þær slógu alveg í gegn. Við feng- um virkilega góðar viðtökur sem er yndislegt,“ segir Auður. Hægt var að kaupa ísinn í ýmist eins lítra umbúðum eða 250 ml ílátum. Þá var einnig í boði að panta ís fyrir jólin og gat fólk valið um að sækja hann í ísbúðina í Mývatnssveit eða hjá foreldrum hennar á Akureyri. Framleiðir hugsanlega fleiri afurðir úr mjólkinni síðar „Þetta hefur verið ótrúlega skemmtilegt og gengið vonum framar. Og þá fer maður auðvitað að huga að því að framleiða fleiri afurðir úr mjólkinni og ég geri ráð fyrir að þegar ísinn fer að skila einhverju inn og við sjáum fram á möguleika á að stækka við okkur, láti ég slag standa. Ég vona svo sannarlega að smáfram- leiðendum fjölgi og sem víðast um landið. Það er ánægjulegt ef fjölbreytileiki í framboði matvæla frá smáframleiðendum eykst. Ég held að einmitt núna séu margir að taka af skarið, framkvæma og láta drauma sína rætast, hafi það kost á því. Það eru margir að velta þessu fyrir sér og ég held að fólk ætti að hugleiða hvað sé það versta sem gæti gerst og einhenda sér svo bara í verkefnið. Annars er hætta á að menn sjái eftir því,“ segir Auður. Bjartsýn á gott sumar Hún kveðst bjartsýn á komandi sumar þó svo að búast megi við að færri verði á ferðinni en áður þar sem útlendinga vanti. „Ég held að við munum hafa nóg að gera og Íslendingar verði duglegir að ferð- ast um landið sitt. Okkar plön fyrir kórónuveiru voru þau að það yrði mikið að gera og jafnvel meira en var síðsumars í fyrra þegar við opnuðum. Nú höfum við gert þá breytingu í ljósi stöðunnar að í stað þess að vera með opið frá morgni til kvölds eins og ráðgert var höfum við opið frá klukkan 13 til 18 alla daga.“ /MÞÞ ÍSLAND ER LAND ÞITT Lárus Björnsson, Ingibjörg Björnsdóttir, Sigurður Guðni Björnsson, Auður Filippusdóttir, Júlíus Björnsson, Arnar Halldórsson og Soffía Björnsdóttir, eigendur Skútaíss í Mývatnssveit. Myndir / Úr einkasafni Skútaís í Mývatnssveit: Framleiða ís úr eigin hráefni og opnuðu ísbúð Auður Filippusdóttir afgreiðir ánægðan viðskiptavin. „Þetta hefur verið ótrúlega skemmti­ legt og gengið vonum framar,“ segir Auður, sem framleiðir ís úr afurðum Skútustaðabúsins í Mývatnssveit. Skútaís, ísbúðin í sveitinni. Nordic Natura er allra átta dvalarstaður staðsett við vesturmynni Ásbyrgis, við bæði Norðurstrandaleið og Demantshringinn. Við bjóðum: • Gistingu í lúxus stúdíóhúsum • Skutlþjónustu fyrir göngu- og hjólafólk • Hestaleigu • Beitarhólfsleigu fyrir hestamenn Fjölmargar frábærar gönguleiðir í þjóðgarðinum sem henta öllum. Magnaðar reiðleiðir styttri sem lengri. Ásbyrgi, Dettifoss, Hljóðaklettar, Melrakkaslétta, Húsavík, Mývatn, Langanes eru allt kjörnir áfangastaðir fyrir lengri eða styttri dagsferðir. Langar þig að dvelja við Ásbyrgi í sumar? www.nordicnatura.is info@nordicnatura.is s. 862-7708 Ávallt velkomin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.