Bændablaðið - 04.06.2020, Blaðsíða 51

Bændablaðið - 04.06.2020, Blaðsíða 51
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 2020 51 kom einnig fram í rannsóknarniður- stöðum að rauðsmáraþykknið hafði fyrirbyggjandi áhrif á beinþynningu. Gerir seyði úr 38 hektara uppskeru Danski bóndinn Michael Mohr Jensen fer óvenjulegar leiðir í sínum búskap en hann leggur stund á líf- rænt vottaða jarðrækt og er með um 100 hektara af landi, en hann býr á búinu Herrens Mark á Fjóni. Michael þessi rekur fyrirtæki sem heitir Fyns Mælkebøttesaft sem gæti heitið „Túnfíflasaft Fjóns“ á íslensku og eins og nafnið gefur til kynna framleiðir hann saft eða seyði og selur svo í heilsubúðir. Til þess að sinna framleiðslunni er hann með 38 hektara sem ein- göngu eru nýttir undir framleiðslu á túnfíflum og rauðsmára! Hann uppsker svo þessar tvær tegundir og framleiðir síðan tvenns konar heilsubætandi seyði, annars vegar úr túnfíflunum og hins vegar úr rauðsmáranum. Átta hektarar af túnfíflum Af þessum 38 hekturum eru átta þeirra einungis með túnfíflum í og er sáð til þeirra árlega. Túnfíflar eru í eðli sínu auðveldir í ræktun eins og landmenn allir þekkja væntanlega en þegar verið er að framleiða þá sérstaklega sem afurð til neyslu þarf að vanda til verksins. Þeir þurfa t.d. töluverða úrkomu til að vaxa vel og setja kraft í blaðvöxtinn og þar sem danska vorið í ár var einstaklega þurrkasamt kom það niður á fram- leiðslunni hjá Michael. Það kom þó ekki að sök vegna framleiðslunnar á þykkni, enda er hann með umfram framleiðslugetu sem stendur og því ekki hætta á að geta ekki sinnt eft- irspurninni. Handhreinsa akrana Þar sem Michael er í lífrænt vott- aðri ræktun má hann ekki nota illgresiseyði og alls konar illgresi reynir auðvitað að koma sér fyrir á þessum 38 hekturum sem hann er með þessa sérstöku ræktun á. Áður en bæði túnfíflarnir eru slegnir og rauðsmárinn, þarf hann að tryggja að akrarnir séu hreinir svo ekki komi aðrar plöntur eða illgresi með í upp- skeruna. Því þarf hreinlega að hand- hreinsa alla 38 hektarana af öllum öðrum plöntum og illgresi og þetta er hörku vinna og tók það 10 manna teymi um 2 vikur að gera akrana tilbúna til uppskeru. Öll plantan tekin Þegar kemur að uppskeru á tún- fíflum tekur ekki minni vinna við enda er öll plantan nýtt og tók það rúma fjóra daga að uppskera alla átta hektarana af túnfíflunum, en plantan er tekin í kjölfar blómstr- unar og þar sem fíflar blómstra snemma er uppskera þessa árs þegar komin í hús hjá Michael. Strax í kjölfarið eru akrarnir svo undirbúnir undir sáningu túnfífla fyrir næsta árs uppskeru en það er gert með eigin fræi sem Michael hreinsar sjálfur af ökrunum fyrir uppskeru. Til þess er notuð sér- stök fræsuga sem hann hefur sjálfur útbúið en eins og flestir vita myndar túnfífillinn bifukollu (biðukollu) eftir blómstrun og sáir sér þannig. Þegar akurinn er al- settur bifukollum er ekið um hann með fræsuguna og fræin hreinlega ryksuguð upp. Nú um miðjan maí var þegar búið að sá á ný í alla akrana hjá Michael og uppskera næsta árs því undirbúin. Hálft ár að gerjast Eftir að búið er að uppskera tekur við hreinsun og svo hefst fram- leiðslan á seyðinu en það tekur sex mánuði fyrir seyðið að verða tilbúið en til þessa hluta framleiðslunnar er Michael með 840 þúsund lítra geymslutanka sem seyðið verður til í. Síðan er komið að því að pakka seyðinu í neytendapakkningar og er það sett í lofttæmda tveggja lítra neyslupoka og svo í þar til gerðar pappaöskjur, ekki ósvipað því sem sumir þekkja e.t.v. þegar léttvín er keypt í pappaöskju með stút. Fyrir vikið nýtist seyðið vel að sögn Michael, en mikilvægt er að viðhalda loftfirrtum aðstæðum því annars fellur virkni þess og það skemmist hratt. Þessar tveggja lítra einingar eru svo seldar út úr búð á um 6 þúsund íslenskar krónur og lítrinn fer því á um 3 þúsund krónur sem er vissulega afar hátt lítraverð og leitun að jafn háu lítraverði á nokkurri landbúnaðarafurð ef frá eru talin vín. Þetta háa verð fellur vissulega ekki allt í hendur bóndans sjálfs, en ætla má samt að hann fái allháan skerf í sinn hlut. Gott umtal hafði mikil áhrif Á Íslandi er oft talað um mikilvægi áhrifavalda og vaxandi vægi þeirra á sölu- og markaðsmál og það hefur svo sem lengi legið fyrir að jákvæð fjölmiðlaumfjöllun hefur alltaf umtalsverð áhrif. Michael nefnir þessi atriði sérstaklega varðandi árangur hans en hann sjái sölutölur rjúka upp við hverja um- fjöllun. Þá hjálpi einnig til sú stað- reynd að rannsóknaniðurstöður sýni nokkuð skýrt að afurðir rauð- smára hafi góð áhrif á heilsu fólks. Í Danmörku eru oft svokallaðir „sjónvarpslæknar“ með þætti þar sem þeir skýra frá margvíslegum vandamálum eða heilsubresti og hvernig eigi að takast á við slíkt og nýverið var seyðið frá Michael til umfjöllunar og fékk jákvæð með- mæli sjónvarpslæknis sem hafði strax áhrif á söluna. Auk þess hafa ýmsir þjóðþekktir danskir einstak- lingar dásamað vörurnar og allt hjálpist þetta að við að festa söluna í sessi. Ætlar að auka framleiðsluna Í dag er staðan þannig á búinu hjá Michael að um 20% framleiðslunnar er túnfíflaseyði en megnið af fram- leiðslugetunni er nýtt til framleiðslu á rauðsmáraseyði. Hann segir að í hvert skipti sem umfjöllun um af- urðirnar kom í sjónvarpi hafi salan tekið kipp en síðustu árin hafi aðeins hægt á aukningunni og því er hann nú að setja kraft í sölu- og markaðs- starfið með því að auka við sölustarf- semina úr einum manni í tvo. Hann vonast til þess að það muni skila sér í verulegri aukningu enda er mikið af seyði til á lager, sem bíður eftir kaupendum. Í dag er hann einungis að selja afurðir sínar í Danmörku en með viðbótarkrafti í sölumennskuna ætlar hann nú inn á þýska markaðinn, sem er auðvitað gríðarlega stór og þýðingarmikill. Þýtt og endursagt upp úr grein í Landbrugsavisen 15. maí 2020. LÍFEYRISSJÓÐUR BÆNDA - Niðurstöður ársreiknings 2019 BREYTING Á HREINNI EIGN TIL GREIÐSLU LÍFEYRIS EFNAHAGSREIKNINGUR Í ÁRSLOK í milljónum króna 2019 2018 í milljónum króna 2019 2018 Iðgjöld 760 807 Eignarhlutir í félögum og sjóðum 15.531 11.835 Lífeyrir -1.710 -1.618 Skuldabréf og aðrar fjárfestingar 21.064 21.011 Hreinar fjárfestingartekjur 4.337 1.766 Skammtímakröfur og ýmsar eignir 190 207 Rekstrarkostnaður -128 -127 Handbært fé og ýmsar eignir 477 948 Breyting á hreinni eign 3.259 828 Eignir alls 37.263 34.000 Hrein eign frá fyrra ári 33.982 33.153 Skuldir 22 18 Hrein eign til greiðslu lífeyris 37.241 33.982 Hrein eign til greiðslu lífeyris 37.241 33.982 KENNITÖLUR ÁRSFUNDUR 2020 Nafnávöxtun 13,0% 5,4% Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda verður Hrein raunávöxtun 9,6% 1,7% föstudaginn 12. júní nk. kl. 14 5 ára meðaltal hreinnar raunávöxtunar 4,7% 3,9% að Stórhöfða 23, 4. hæð, Reykjavík. Fjöldi virkra sjóðfélaga 2.148 2.300 Dagskrá: Venjuleg ársfundastörf. Fjöldi lífeyrisþega 3.906 3.822 Stjórnarkjör skv. samþykktum. Tryggingafræðileg staða -4,8% -9,4% Önnur mál. STJÓRN Skrá sig á fundinn með nafni og kennitölu í tölvupósti á lsb@lsb.is. Skúli Bjarnason, formaður, Erna Bjarnadóttir, Guðrún Stjórn Lífeyrissjóðs bænda Lárusdóttir, Vigdís M. Sveinbjörnsdóttir, Örn Bergsson. Framkvæmdastjóri: Ólafur K. Ólafs LÍFEYRISSJÓÐUR BÆNDA - STÓRHÖFÐA 23 - 110 REYKJAVÍK - SÍMI 563 1300 - LSB@LSB.IS - WWW.LSB.IS Mogens Mohr Jensen, danski túnfíflabóndinn, með fræ sem hann safnar sjálfur af túnfíflaökrum sínum með sérstakri fræsugu. Hrafnablöðkur má nota í salat og eru sagðar nýtast gegn harðlífi og eru sagðar þvaglosandi. Túnfíflasalat, eða „Mælkebøttesalat“ eins og Daninn kallar það. Ef þú vilt bregða þér af bæ… Fyrir okkur öll Félagsmönnum í Bændasamtökum Íslands býðst að leigja orlofsíbúð í Kópavogi til lengri eða skemmri tíma allt árið um kring. Íbúðin er í fjölbýlishúsi í Þorrasölum 13-15 og rúmar auðveldlega fjóra gesti. Í henni eru tvö svefnherbergi, rúmgóð stofa sem er sambyggð eldhúsi, bað- og þvottaherbergi og svalir. Stutt er í alla þjónustu, m.a. sundlaug, golfvöll og fjölbreyttar verslanir. Nánari upplýsingar um íbúðina er að finna á bondi.is. Aðild að Bændasamtökunum borgar sig Bókanir á Þorrasölum fara í gegnum Orlofsvef BÍ á vefslóðinni orlof.is/bondi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.