Bændablaðið - 04.06.2020, Blaðsíða 42

Bændablaðið - 04.06.2020, Blaðsíða 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 202042 „Í þá tíð var Ísland viði vaxið milli fjalls og fjöru“, ritaði Ari prestur fróði Þorgilsson í upphafskafla Íslendingabókar. Talið er að við landnám hafi um þriðjungur landsins verið þakinn birkiskógum og kjarri, en nú vex birki á um 1,5 prósentum landsins og ræktaðir skógar þekja 0,5% þess. Íslendingar eru í þeirri óvenjulegu stöðu að nær allir skógar landsins eyddust og á eftir fylgdi hrikaleg jarðvegseyðing og hnignun landgæða sem er okkar alvarlegasta umhverfisvandamál. Kjörið tækifæri Af alþekktum orsökum er hagvöxtur hér á landi á hraðri niðurleið og atvinnuleysi eykst. Þessi öfugþróun bitnar ekki síst á dreifðum byggðum landsins, sem undanfarin ár hafa notið góðs af ört vaxandi ferðaþjónustu. Innspýting í hagkerfið er brýn og ekki sakar ef hún er um leið „græn“ þannig að hún uppfylli markmið um sjálfbærni og loftslagslausnir. Draga má úr áhrifum niðursveiflunnar, ná verulegum árangri í loftslagsmálum og byggja upp auðlind til hagsbóta fyrir land og þjóð í framtíðinni. Skógrækt er ung búgrein á Íslandi og vöxtur trjáa er til muna öflugri en menn hafa þorað að vona. Fyrir hendi er mikið ónýtt landnæði og trjárækt getur auðveldlega komið til stuðnings og viðbótar við aðra atvinnuvegi landsmanna. Öflug kolefnisbinding Ræktun nýrra skóga (nýskógrækt) er mikilvægasta og skilvirkasta náttúrulega aðgerðin sem heimsbyggðin hefur tiltæka til kolefnisbindingar. Víða um heim er unnið að því að meta mögulegt framlag ræktunar nýrra skóga á áður skóglausu landi til þess að takast á við loftslagsvána og uppfylla markmið í umhverfis- og atvinnumálum. Timbur Afurðir nytjaskóga verða að verðmætu lífrænu hráefni, timbri og smíðavið. Á líftíma sínum skapar skógur margvísleg efnisleg verðmæti, fyrst brennsluvið, girðingar staura, jólatré, trjákurl og arinvið og síðar meir timbur og aðrar viðarafurðir sem nýta má á ótal vegu. Verð á timbri hefur lengi farið hækkandi á heimsmarkaði og ekkert sem bendir til að draga muni úr eftirspurn á næstunni. Sumar spár gera reyndar ráð fyrir því að trjáviður muni í æ ríkari mæli koma í stað steinsteypu sem byggingarefni. Skjól og útivist Skjóláhrif skóga bæta möguleika til ræktunar í landbúnaði. Skjólið tryggir og eykur afurðir af túnrækt, kornrækt og matjurtarækt. Skógar mynda skjól langt út fyrir það svæði sem þeir þekja og draga úr öflugustu vindhviðunum í nágrenninu. Búpeningi líður betur í skjóli en á berangri auk þess sem kostnaður við viðhald bygginga lækkar vegna skógarskjólsins. Æskilegt er að planta skógi í nágrenni við vindasama staði, ekki síst vegstæði þar sem vindhviður valda tíðum slysum eða tjóni. Skógar eru aðlaðandi til útivistar vegna skjólsins sem í þeim er og ánægjunni sem felst í að ganga um og njóta útiveru í skógi vöxnu landi. Þeir auka fjölbreytni í lífríkinu, lífverum fjölgar í skógum auk þess sem ýmsar aukaafurðir skóganna eru vinsælar meðal matgæðinga, svo sem sveppir og ber. Atvinna Nú með þverrandi atvinnu er unnt með aðgerðum stjórnvalda að skapa fólki arðbær störf við að undirbúa stórátak til að efla skógrækt. Strax má vinna að því að hirða um og grisja þá skóga sem fyrir eru og auka þannig gæði þeirra og hámarka árangur. Arður af skógi kemur reyndar ekki í sviphendingu, en býsna skjótt má fá tekjur af skógi vöxnu landi vegna grisjunar. Með vexti skógar aukast tekjur af honum og störfum fjölgar og trjáviður er uppspretta ótal tækifæra til nýsköpunar á ýmsum sviðum iðnaðar. Skógrækt sem tiltölulega ný atvinnugrein mun þannig stuðla að jákvæðri byggðaþróun og skapa fjölmörg afleidd störf og vera framtíðarauðlind fyrir komandi kynslóðir landsmanna. Verðmæti jarða Lítið hefur farið fyrir umræðu um áhrif skóga á verðmæti skógarjarða. Líklegt er að verðgildi þeirra verði í framtíðinni metið hærra, ekki síst vegna kröfu til fyrirtækja og þjóðríkja til kolefnisbindingar. Í framhaldinu má búast við að láns- og veðhæfi þeirra aukist og renni traustari stoðum undir annan búskap á viðkomandi jörð. Þannig munu skógar auka verðmæti jarða til framtíðar óháð öllum hagsveiflum sem hafa haft afgerandi áhrif á margar atvinnugreinar í gegnum tíðina. Timburafurðir má einnig geyma, ef svo má að orði komast, því eigandi getur ákveðið að fella tré síðar, ef td. verð á timbri er óhagstætt. Kolefnisbinding Ræktaður skógur á Íslandi bindur árlega um 10 tonn af CO2 á hvern hektara, þó misjafnt eftir staðháttum, trjátegund og aldri skógarins. Íslendingar losa árlega um 4,7 milljónir tonna af CO2-ígildum og nægði því að tæp 5% landsins, væru fyrir hendi blandskógar ýmissa tegunda (ösp, greni, lerki, fura og birki), til að binda alla okkar losun. Ræktaðir birkiskógar binda töluvert minna og þyrfti 15% landsins til sömu nota. Hins vegar myndi ræktaður asparskógur aðeins þurfa 2% landsins til að binda alla losun, því mest binding kolefnis næst með alaskaösp, allt að 23 tonnum á hektara. Það skiptir því máli hvaða tegundum er plantað, en fer að sjálfsögðu eftir því að hvaða markmiðum skal stefnt. Ef stefnt er að kolefnisbindingu er ljóst hvar á að bera niður. Nota á afkastamiklar og gjöfular tegundir sem skila mestum árangri. Ákvarðanir um í hvað fjármunum okkar sé varið til að berjast gegn útblæstri lofttegunda sem valda loftslagsröskun verða að byggjast á staðreyndum og vísindalegum rökum um gagnsemi fjárfestinga og slíkar ákvarðanir eiga að vera í höndum kjörinna fulltrúa. Kaup á losunarheimildum Eftir tíu ár gætum við þurft að verja verulegum fjárhæðum til kaupa á losunarheimildum ef ekki næst að standa við Parísarsamninginn. Takist að binda þá losun sparast miklar fjárhæðir sem nýta mætti í aðra arðbæra hluti. Nýskógrækt dregur að auki úr losun gróðurhúsalofttegunda frá rofnu landi um leið og hún bindur jafnframt kolefni í trjám og jarðvegi. Látum hendur standa fram úr ermum Gróðursetning hefur dregist verulega saman hér á landi frá efnahagshruni og í fyrra voru aðeins gróðursettar 3 milljónir trjáplantna. Nauðsynlegt er að auka þar verulega við og margfalda plöntun. Undirbúningur þess tekur nokkur ár og því mikilvægt að hefjast þegar handa. Aðgerðir stjórnvalda eru því miður í hænuskrefum að þessu leytinu á sama tíma og innan fárra ára kemur að uppgjöri á kolefnisbókhaldi landsins. Fram undan eru því tækifæri til að draga úr áhrifum niðursveiflu í efnahagslífinu, ná verulegum árangri í loftslagsmálum og byggja upp auðlind til hagsbóta fyrir land og þjóð í framtíðinni. Á erfiðum tímum þarf að horfa til framtíðar og byggja upp. Fátt eykur bjartsýni fólks eins mikið og gróðursetning trjáa. Nýtum það lag og blásum til grænnar sóknar – og ræktum skóga. Karl Gauti Hjaltason Höfundur er þingmaður Miðflokksins í Suðurkjördæmi. kgauti@althingi.is Tveir sjónvarpsþættir frá í febrúar eru mér í fersku minni. Sá fyrri var í Kveik um aflátsbréf og græna orku. Sá seinni í Kastljósinu með forstjóra Landsvirkjunar (LV) og framkvæmdastjóra Íslenskra iðn fyrirtækja. Mér skildist að aflátsbréf LV virki þannig að framleiðendur í ESB-ríkjum kaupi aflátsbréf af LV til vottunar, að þeir noti græna orku. Segja svo framleiðslu sína umhverfisvæna í þeim tilgangi að selja meira. Ljóst er að dæmið gengur ekki upp og er lygi á meðan enginn er sæstrengurinn. Er hægt að hugsa sér meiri vörusvik? Allt í skjóli EES/ESB. Í Kveik bar forstj. LV á stóriðjuna að hún tímdi ekki að borga fyrir umhverfisvottun. Sá sem svaraði fyrir álverin kom að kjarna málsins, þegar hann sagði að þessi skattur hefði komið eftir að álfyrirtækin hófu framleiðslu hér á landi. Ég man vel að eftir að ISAL byrjaði reyndi hver ríkisstjórnin á eftir annarri að lokka hingað stóriðju út á ódýra og hreina græna orku. Er nokkuð óeðlilegt að álframleiðendur neiti að taka á sig svona skatt eftir á? Jafnvel þótt reksturinn væri í dúndrandi gróða. Í fyrrnefndum Kveik var velt upp hver væri ábyrgur fyrir vitleysunni. Í mínum huga er augljóst að það er ESB. Strax með fyrsta orkupakkanum var lagt upp hvernig ESB gæti smám saman sölsað undir sig orkuna með hverjum orkupakkanum á eftir öðrum. Það hefði að öllum líkindum verið stimplað og runnið ljúft í gegn, ef ekki hefði liðið svo langur tími frá því orkupakki 2 var samþykktur, þar til orkupakki 3 skyldi samþykktur. Kanski var það hruninu að þakka. EES/ESB og Orkuveitan fóru fram úr sér með prentun á greiðsluseðla að á Íslandi væri raforka framleidd með kjarnorku og olíubrennslu. Það opnaði augu margra og komst í umræðuna. Þá var snarlega hætt að prenta þetta bull á greiðsluseðlana. Það er eins með illan orðstír og góðan. Hann deyr aldrei. Mikið vorkenni ég aumingjans landráðamönnunum sem afsöluðu þjóðinni yfirráðum á orkuauðlindunum með samþykki orkupakka 3. Sérstaklega þeim, sem rökstuddu samþykki sitt með því að sl. 20 ár hefðum við samþykkt og stimplað allt sem EES kom með frá ESB. Augljóst er hvert forstjóri LV stefnir. Hann vill fá sæstreng og selja græna raforku til ESB á hærra verði en fæst fyrir hana innanlands. Svo verður sagt að ódýrari raforka streymi til baka um sæstrenginn. Það verður skilgreint sem ódýrari orka framleidd með kjarnorku, kola- og olíubrennslu. Við það hækkar orka til okkar, þó hún sé ódýrari en það sem LV fær fyrir grænu orkuna til ESB. Fyrirtæki innan ESB fá vottað að þeir hafi fengið sérvalda græna orku úr orkubanka ESB. Með hærra orkuverði minnkar samkeppnishæfni íslenskrar framleiðslu, sem auk þess telst ekki lengur umhverfisvæn. Ég horfði líka á Kastljósþátt með forstj. LV og frkvst. Íslenskra iðnfyrirtækja, sem sagði sölu LV á aflátsbréfum eyðileggja fyrir íslenskum iðnaði. Svar frkvst. LV var. „Sannaðu það“, sem ekki er létt fyrirvaralaust í beinni útsendingu. Síðan sannaði hann það sjálfur, þegar hann sagði heiminn vera að breytast. Nú vildi unga fólkið kaupa umhverfisvænar vörur og átti þá við umhverfisvottaðar vörur, en sást yfir að vottun með grænum aflátsbréfum LV er allt í plati- vottun. Nú verða stjórnvöld að kynna að öll íslensk framleiðsla notar 100% græna orku og hreint ómengað vatn. Koma Íslandi á kortið sem grænasta landi í heimi. Merkja áberandi íslenskar framleiðsluvörur að upprunaland sé Ísland. Þá myndi þetta unga umhverfis- væna fólk velja íslenska vöru og skipti þá ekki máli að pakkningar við hliðina væru ódýrari. Það ætti að efna til samkeppni um íslenskt umhverfismerki, sem höfðaði til okkar hreinu auðlinda líkt og „þú veist, hvaðan það kemur“. Fylgja merki og merkingu eftir með öflugri kynningu. Ég skildi framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins sem hún ætti við að sala aflátsbréfa LV myndi skemma þennan möguleika. Frkvstj. LV talaði um 10 milljarða tekjur LV af sölu aflátsbréfanna, sem svo kom í í ljós að var á 10 árum. Milljarður á ári er ekki mikið miðað við skemmdirnar á samkeppnishæfni, markaðs- tækifærum og markaðssetningu íslenskrar framleiðslu. Vindi stjórnvöld ekki ofan af þessari grænu svikamyllu ættu þau að stíga skrefið til fulls og fara að selja aflátsbréf um hreinleika vatns. Það væri ekki ónýtt fyrir framleiðendur bjórs að fá vottað, að hann væri framleiddur úr hreinu ómenguðu vatni, eins og er á Íslandi. Svo ekki sé talað um garðyrkjubændur víða um heim, sem blanda alls konar efnum í vatnið, sem þeir vökva plönturnar með. Sigurður Oddsson LESENDABÁS Karl Gauti Hjaltason. Sveiflum haka og ræktum nýjan skóg Ræktun nýrra skóga (nýskógrækt) er mikilvægasta og skilvirkasta náttúrulega aðgerðin sem heimsbyggðin hefur tiltæka til kolefnisbindingar. Aflátsbréf Sigurður Oddsson. Bænda 18. júní
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.