Bændablaðið - 04.06.2020, Blaðsíða 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 2020 31
nálgun sem sveitarstjórn hefur á
verk efnið, þ.e. að beina sjónum fyrst
og fremst að hagsmunum íbúanna
sem búa munu í byggðarkjarnanum.
Staðarvalið eigi einkum og sér í lagi
að vera á þeirra forsendum.
„Það er heilmargt sem hafa þarf
í huga þegar farið er yfir þessi mál
og þær forsendur sem þurfa að vera
fyrir hendi,“ segir Páll.
Í því felst m.a. greining á stað-
háttum og í því skyni hafa starfs-
menn TGJ farið tvívegis á vettvang
og metið sérstaklega 10 staði, sem
við upphaf máls þóttu helst koma til
greina. Eftir þá athugun og nánara
mat hefur þeim valkostum verið
fækkað í þrjá, sem álitlegastir þykja
og þurfa heimamenn síðar að velja
á milli.
Vaxandi ferðaþjónusta
Fljótsdalshreppur hefur alla tíð
verið öflug landbúnaðarsveit, en á
síðustu árum hefur sauðfé og sauð-
fjárbændum fækkað verulega frá því
sem áður var. Kúabúskapur heyrir
sögunni til í hreppnum. Skógrækt er
hins vegar umtalsverð, en hin síðari
ár hefur ferðaþjónustu vaxið mjög
fiskur um hrygg á svæðinu, enda
fjölmargir staðir innan þess sem
ferðalanga fýsir að sjá og skoða.
Umsvifin eru mest að sumarlagi og
þá þarf að leita eftir starfsfólki utan
sveitarfélagsins en laust húsnæði
er af skornum skammti. Páll segir
að fyrir því sé heimild samkvæmt
aðalskipulagi að reisa allt að þrjú
íbúðarhús á hverri jörð. Í stað þess
að fara þá leið og byggja hús hér og
hvar á aðskildum jörðum hafi vaknað
sú hugmynd að stofna til sérstaks
byggðarkjarna í hreppnum.
Öryggi og góð samfélagsupplifun
Við staðarvalið er m.a. unnið með
sálfræðilegar aðferðir og forsendur
og þar eru nokkrar breytur hafðar
til hliðsjónar; öryggi, sjálfræði og
stjórn, samfélagsupplifun, félags-
auður, sálfræðileg endurheimt og
athafnir utan dyra.
„Þessi atriði eru í forgrunni við
staðarval byggðarkjarna og fengum
við þau tilmæli að hvorki landamerki
né eignarhald á jörðum þyrfti að setja
leitinni skorður. Við höfum skoðað
staðhætti með tilliti til landslags og
annarra náttúru- og umhverfisþátta,
þar á meðal nálægð við helstu nátt-
úruperlur hreppsins en jafnframt
metið svæðið með hliðsjón af nátt-
úruvá og sjónmengun af stórum raf-
línumöstrum. Eins höfum við tekið
mið af heimsmarkmiðum Sameinuðu
þjóðanna og lýðheilsumarkmiðum.
Allar þessar breytur eru teknar með
í reikninginn,“ segir Páll.
Að fólk upplifi góð
lífsgæði í umhverfi sínu
Páll bendir á að fólk kjósi að búa
á stað sem veiti öryggistilfinningu
og þar sem yfirvofandi náttúruvá
sé ekki fyrir hendi. Helstu hættur í
þeim efnum í Fljótsdal eru aur- og
jarðvegsskriður, krapa- og vatnsflóð.
Áhersla er lögð á að hvorki skipu-
lögð íbúða- eða frístundabyggð verði
á meintum hættusvæðum. „Það vilja
allir hafa stjórn á sínum aðstæðum og
það hversu mikil sú stjórn er skiptir
miklu máli varðandi það hvernig fólk
upplifir sig í samfélaginu. Því meiri
stjórn sem fólk telur sig hafa á sínum
aðstæðum, því minni streitu upplifir
það og býr þá við betri heilsu,“ segir
Páll. Félagsauður snýst um á hvern hátt
fólk upplifir sig innan samfélagsins og
hvort því finnist það vera partur af því.
Sálfræðileg endurheimt snýst um
hversu vel fólki tekst að „hlaða
batteríin“ í dagsins önn, en um
er að ræða lífsnauðsynlegt ferli.
Rannsóknir hafa sýnt að umhverfi
hefur mikil áhrif á hversu hratt og
vel ferlið gengur, og eru áhrif nátt-
úrunnar mjög mikilvæg í þessu
samhengi.
„Nauðsynlegt er því að huga
að öllum þessum þáttum svo fólk
upplifi góð lífsgæði í umhverfi
sínu og sé þannig betur í stakk
búið til að takast á við sín verk-
efni.“
Eins skiptir máli að sögn Páls
hvar í sveitarfélaginu byggðar-
kjarninn sé staðsettur, þ.e. í jaðri
þess eða fyrir miðju og hvernig
samgöngum til og frá eða um þétt-
býlið sjálft er háttað.
„Það er mjög sérstakt hér á landi
að til standi að byggja upp nýjan
byggðarkjarna frá grunni. Það er
því einkar ánægjulegt að þessir
sálfræðilegu þættir skuli hafðir
að leiðarljósi við staðarvalið. Þeir
vilja því miður oft gleymast. Þetta
hefur verið skemmtileg vinna,“
segir Páll. Lokaskýrsla TGJ, þar
sem bent er á þrjá fýsilega staði
fyrir byggðarkjarnann verður lögð
fyrir sveitarstjórn innan tíðar.
/MÞÞ
– Steinsagir, kjarnaborvélar, gólf- og vegsagir
MHG Verslun ehf | Víkurhvarf 8 | 203 Kópavogi | Sími 544-4656 | www.mhg.is
ALLT FYRIR ATVINNUMANNINN
HUSQVARNA
FS 400 LV
Sögunardýpt 16,5 sm
HUSQVARNA
K 770
Sögunardýpt 12,5 sm
HUSQVARNA
K 2500
Sögunardýpt 14,5 sm
HUSQVARNA
DM 230
HUSQVARNA
K 3600 MK II
Sögunardýpt 27 sm
HUSQVARNA
Steinsagarblöð
og kjarnaborar
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Næsta blað kemur út 18. júní
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
RÚÐUR Í
DRÁTTARVÉLAR
FRÁBÆR VERÐ
John Deere
Zetor
Case IH
McCormick
Steyr
Claas
Ford
Fiat
New Holland
Deutz-Fahr
Massey Ferguson
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Flugsýn yfir Bessastaðaárgil og nærsvæði. Fyrir miðri mynd hlykkjast Kárahnjúkavegur upp hlíðina utan við gilið
og ofan við hið forna höfðuðból Bessastaði og eyðibýlið Hamborg nær ánni. Mynd / Skarphéðinn G. Þórisson