Bændablaðið - 04.06.2020, Blaðsíða 24

Bændablaðið - 04.06.2020, Blaðsíða 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 202024 LÍF&STARF Kolbrún Friðriksdóttir listmálari: „Fátt betra en að leggjast í grasið með kúnum og hundunum“ – Hún segir að þau Elli Sig., hestamaður og skeiðknapi, hafi smollið saman eins og flís við rass þegar þau kynntust „Ég er fædd og uppalin í Reykjavík. Móðir mín er Jóhanna Guðmundsdóttir frá Króki í Grafningi og faðir minn er Friðrik Hermannsson frá Látrum í Aðalvík. Eiginmaður minn er Erling Ó. Sigurðsson, betur þekktur sem Elli Sig., hestamað- ur og skeiðknapi,“ segir Kolbrún Friðriksdóttir listmálari þegar hún var beðin um að kynna sig fyrir lesendum Bændablaðsins. „Ég á fjóra uppkomna syni, Aron, Þórð, Friðrik og Gunnar Guðmundssyni og barnabörnin eru fimm. Ég lærði tækniteiknun í Horsens í Dannmörku 1984 þar sem við bjuggum í fimm ár. Ég starfaði lengst af í Læknastöðinni í Glæsibæ eftir að við fluttum heim til Íslands.“ Í sambúð með Ella Sig. hestamanni Kolbrún og Elli Sig., hestamaður og skeiðknapi, eins og hann er oftast kallaður, búa saman. „Já, sameiginlegur áhugi okkar Ella á dýrum og velferð þeirra hefur verið stór þáttur í okkar sambandi en við smullum saman eins og flís við rass þegar við kynntumst. Við eigum lögheimili í útjaðri Reykjavíkur, erum í göngufæri frá hesthúsunum í Víðidal og stutt í óspjallaða náttúru þar sem hægt er að njóta útivistar, gönguferða og ekki síst hestamennsku. Á sumrin dveljum við mikið í sumarhúsi okkar í Krókslandi í Grafningi og þar erum við með hesta landnámshænur, skrautdúf- ur, hund og kött og að sjálfsögðu dásamlega náttúru. Það má segja að þetta sé lítil útgáfa af búgarði hjá okkur, við höfum gróðursett mikið af trjám, ræktum grænmeti, kartöflur og kál, svo er Elli núna að reyna við ávaxtatré af ýmsum toga, vínber og fleiri ber,“ segir Kolbrún og bætir við að Elli sé með græna fingur en að hún sjái til þess að hann verði ekki svangur. Þau fara mikið í reiðtúra um svæðið og njóta fegurðar Grafningsins. Þá skellir Elli sér oftar en ekki á skeiðleikana á Selfossi þegar þeir eru haldnir enda stutt að fara. Oftast kemur hann heim með medalíu en þær eru orðnar þó nokkrar á hans langa keppnisferli. 29 börn, takk fyrir Stórfjölskylda pabba Kolbrúnar á saman sumarhús að Látrum í Aðalvík þar sem hann er fæddur og uppalinn. Langamma og langafi hennar bjuggu þar og eignuðust 17 börn og við tóku amma og afi Kolbrúnar, sem eignuðust þar 12 börn, eða samtals 29 börn frá þessum tveimur hjónum. Bærinn hét Ystibær og stendur hús fjöl- skyldunnar á bæjarstæðinu í minn- ingu þeirra. „Við fjölskyldan förum vestur þegar við eigum þess kost eða sem oftast. Ferðalagið er mun lengra en í Grafninginn og eftir akstur til Ísafjarðar tekur við klukkustundar bátsferð. Í Aðalvíkinni er auðvelt að tæma hugann og hlaða batteríin, þar er ekki rafmagn og ekki símasamband og náttúran er einstök. Tófan trítlar í kringum okkur og fuglar setjast nánast á öxlina á okkur, allavega á Ella, sem laðar að sér öll dýr. Allir eru vinir í skóginum enda er Aðalvíkin friðland og við teljum það forréttindi að fá að dvelja þar og njóta. Búseta á Hornströndum lagðist af um miðja 20. öld en minningin um harðduglegt fólk lifir.“ segir Kolbrún þegar hún rifjar upp með aðdáunaraugum lífið í Aðalvíkinni. Myndlist, handverk og hönnun Kolbrún segist alla tíð hafa haft áhuga á myndlist, handverki og hönnun. Hún lærði tækniteiknun í Danmörku og útskrifaðist frá B.T.H. Byggeteknisk Hojskole í Horsens árið 1985. Áhugi hennar á listmálun vaknaði fyrir alvöru 2011 þegar hún sótti sitt fyrsta námskeið í olíumálun hjá mágkonu sinni, Þuríði Sigurðardóttur. „Þar kynntist ég olíulitum og heillandi heimi myndlistarinnar og má segja að ég hafi verið meira og minna við trönurnar síðan. Ég fann fljótt mína fjöl, réðist í að túlka íslensk dýr í málverkunum mínum enda hafa dýr af öllum stærðum og gerðum verið mér hugleikin allt frá því ég man eftir mér. Síðastliðið ár hef ég verið í samstarfi með nokkrum listamönnum sem stofnuðu sýningar- og sölugallerí sem heitir Galleríið og er á Skólavörðustíg 20. Þar er ég með myndirnar mínar til sýnis og sölu,“ segir Kolbrún. Einlægur áhugi á dýrum Kolbrún segist hafa einlægan áhuga á dýrum og hefur frá því að hún var barn sótt í félagsskap þeirra. Hún var send í sveit eins og margir af hennar kynslóð og ef hún hvarf þar þá vissu allir hvar hana var að finna. „Já, ég veit fátt betra en að leggj- ast í grasið með kúnum og hundun- um. Það eru þessar myndir fortíðar- innar sem ég sæki í að mála og þá vellíðan sem ég upplifði.“ Hrútar í miklu uppáhaldi Þegar Kolbrún er spurð að því hvaða dýr henni finnist skemmtilegast að mála segir hún að sauðfé sé í sér- stöku uppáhaldi hjá henni, sérstak- lega hrútar. Saga sauðkindarinnar sé samofin þjóðinni frá landnámi, hún hafi fætt okkur og klætt í gegnum aldirnar og að hún beri mikla virðingu fyrir henni. Gleymir sér við að mála „Ég tengist myndefninu sterkt, hugsa ekkert annað, gleymi mér og tíminn flýgur. Ætli það geti ekki kallast núvitund það sem ég upplifi þegar ég er að mála,“ segir Kolbrún aðspurð hvað hún hugsi þegar hún mundar pensilinn og málar myndir. Fyrsta einkasýningin var hjá Fáki Fyrsta einkasýning Kolbrúnar var 2018 á Stórsýningu Hestamanna- félagsins Fáks í reiðhöll félagsins í Víðidal og þar afhjúpaði hún sig í fyrsta skipti sem listmálara. „Fáir vissu af þessu brölti mínu og ég kveið opnun sýningarinnar, sem reyndist ástæðulaust því hún fékk glimrandi móttökur og líður mér seint úr minni. Þar af leiðandi tel ég þá sýningu þá stærstu,“ segir Kolbrún og hlær. Hlakkar til sumarsins Kolbrún segir að hún og Elli Sig. hlakki mjög mikið til sumarsins. „Já, sumarið leggst vel í okkur og við eigum eflaust eftir að njóta sumarhússins okkar í Grafningi, sem er sælureitur okkar, dýranna okkar og fjölskyldunnar. Ekki er ólíklegt að við förum vestur að Látrum. Hinn 5. júní mun ég opna málverkasýn- ingu með Björgu Friðmarsdóttur en sýningin verður í Bókasafni Kópavogs. Svo óska ég þess að lokum að íslenska þjóðin komist sem best frá COVID-19 og að við- getum öll notið sumarsins.“ /MHH Kolbrún við trönurnar sínar þar sem hún getur gleymt sér í marga klukkutíma við að mála fallegar myndir af dýrum. Henni finnst skemmtilegast að mála fallega hrúta. Myndir / Einkasafn Kolbrún og Þuríður Sigurðardóttir eru miklar og góðar vinkonur en Kolbrún fór á sitt fyrsta myndlistarnámskeið til Þuríðar 2011 en þær eru mágkonur. Á veggnum eru allt myndir sem Kolbrún hefur málað. Kolbrún er í sambúð með hinum fræga Ella Sig., hestamanni og skeiðknapa með meiru, sem flestir ef ekki allir hestamenn landsins kannast við. Golsótt kind sem Kolbrún málaði. Hestshaus sem Kolbrún málaði en hún segir að það sé ekkert erfiðara að mála eitt dýr en annað, það taki hana bara mislangan tíma að tengjast myndefninu en hún hætti ekki fyrr en hún er sátt við dýrið sem hún er að mála hverju sinni. Kolbrún segist elska það að mála myndir af hrútum enda eru þeir í miklu uppáhaldi hjá henni. Þeir sem vilja skoða verkin hennar betur er bent á að fara inn á heimasíðuna www.kolla.design, Galleríið, Skólavörðustíg 20 og Olíumálverk Kollu á Facebook.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.