Bændablaðið - 04.06.2020, Side 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 202024
LÍF&STARF
Kolbrún Friðriksdóttir listmálari:
„Fátt betra en að leggjast í grasið með kúnum og hundunum“
– Hún segir að þau Elli Sig., hestamaður og skeiðknapi, hafi smollið saman eins og flís við rass þegar þau kynntust
„Ég er fædd og uppalin í
Reykjavík. Móðir mín er Jóhanna
Guðmundsdóttir frá Króki
í Grafningi og faðir minn er
Friðrik Hermannsson frá Látrum
í Aðalvík. Eiginmaður minn er
Erling Ó. Sigurðsson, betur
þekktur sem Elli Sig., hestamað-
ur og skeiðknapi,“ segir Kolbrún
Friðriksdóttir listmálari þegar
hún var beðin um að kynna sig
fyrir lesendum Bændablaðsins.
„Ég á fjóra uppkomna syni,
Aron, Þórð, Friðrik og Gunnar
Guðmundssyni og barnabörnin
eru fimm. Ég lærði tækniteiknun
í Horsens í Dannmörku 1984 þar
sem við bjuggum í fimm ár. Ég
starfaði lengst af í Læknastöðinni í
Glæsibæ eftir að við fluttum heim
til Íslands.“
Í sambúð með Ella Sig.
hestamanni
Kolbrún og Elli Sig., hestamaður og
skeiðknapi, eins og hann er oftast
kallaður, búa saman.
„Já, sameiginlegur áhugi okkar
Ella á dýrum og velferð þeirra hefur
verið stór þáttur í okkar sambandi
en við smullum saman eins og flís
við rass þegar við kynntumst.
Við eigum lögheimili í útjaðri
Reykjavíkur, erum í göngufæri frá
hesthúsunum í Víðidal og stutt í
óspjallaða náttúru þar sem hægt er
að njóta útivistar, gönguferða og
ekki síst hestamennsku.
Á sumrin dveljum við mikið
í sumarhúsi okkar í Krókslandi í
Grafningi og þar erum við með
hesta landnámshænur, skrautdúf-
ur, hund og kött og að sjálfsögðu
dásamlega náttúru. Það má segja
að þetta sé lítil útgáfa af búgarði
hjá okkur, við höfum gróðursett
mikið af trjám, ræktum grænmeti,
kartöflur og kál, svo er Elli núna að
reyna við ávaxtatré af ýmsum toga,
vínber og fleiri ber,“ segir Kolbrún
og bætir við að Elli sé með græna
fingur en að hún sjái til þess að hann
verði ekki svangur.
Þau fara mikið í reiðtúra
um svæðið og njóta fegurðar
Grafningsins. Þá skellir Elli sér oftar
en ekki á skeiðleikana á Selfossi
þegar þeir eru haldnir enda stutt
að fara. Oftast kemur hann heim
með medalíu en þær eru orðnar þó
nokkrar á hans langa keppnisferli.
29 börn, takk fyrir
Stórfjölskylda pabba Kolbrúnar
á saman sumarhús að Látrum í
Aðalvík þar sem hann er fæddur
og uppalinn. Langamma og langafi
hennar bjuggu þar og eignuðust
17 börn og við tóku amma og
afi Kolbrúnar, sem eignuðust þar
12 börn, eða samtals 29 börn frá
þessum tveimur hjónum. Bærinn
hét Ystibær og stendur hús fjöl-
skyldunnar á bæjarstæðinu í minn-
ingu þeirra.
„Við fjölskyldan förum vestur
þegar við eigum þess kost eða sem
oftast. Ferðalagið er mun lengra
en í Grafninginn og eftir akstur til
Ísafjarðar tekur við klukkustundar
bátsferð.
Í Aðalvíkinni er auðvelt að tæma
hugann og hlaða batteríin, þar er
ekki rafmagn og ekki símasamband
og náttúran er einstök. Tófan trítlar
í kringum okkur og fuglar setjast
nánast á öxlina á okkur, allavega
á Ella, sem laðar að sér öll dýr.
Allir eru vinir í skóginum enda er
Aðalvíkin friðland og við teljum
það forréttindi að fá að dvelja þar
og njóta.
Búseta á Hornströndum lagðist
af um miðja 20. öld en minningin
um harðduglegt fólk lifir.“ segir
Kolbrún þegar hún rifjar upp með
aðdáunaraugum lífið í Aðalvíkinni.
Myndlist, handverk og hönnun
Kolbrún segist alla tíð hafa haft
áhuga á myndlist, handverki og
hönnun. Hún lærði tækniteiknun
í Danmörku og útskrifaðist frá
B.T.H. Byggeteknisk Hojskole í
Horsens árið 1985. Áhugi hennar á
listmálun vaknaði fyrir alvöru 2011
þegar hún sótti sitt fyrsta námskeið í
olíumálun hjá mágkonu sinni, Þuríði
Sigurðardóttur.
„Þar kynntist ég olíulitum og
heillandi heimi myndlistarinnar og
má segja að ég hafi verið meira og
minna við trönurnar síðan. Ég fann
fljótt mína fjöl, réðist í að túlka
íslensk dýr í málverkunum mínum
enda hafa dýr af öllum stærðum og
gerðum verið mér hugleikin allt frá
því ég man eftir mér. Síðastliðið
ár hef ég verið í samstarfi með
nokkrum listamönnum sem stofnuðu
sýningar- og sölugallerí sem heitir
Galleríið og er á Skólavörðustíg 20.
Þar er ég með myndirnar mínar til
sýnis og sölu,“ segir Kolbrún.
Einlægur áhugi á dýrum
Kolbrún segist hafa einlægan áhuga
á dýrum og hefur frá því að hún var
barn sótt í félagsskap þeirra. Hún var
send í sveit eins og margir af hennar
kynslóð og ef hún hvarf þar þá vissu
allir hvar hana var að finna.
„Já, ég veit fátt betra en að leggj-
ast í grasið með kúnum og hundun-
um. Það eru þessar myndir fortíðar-
innar sem ég sæki í að mála og þá
vellíðan sem ég upplifði.“
Hrútar í miklu uppáhaldi
Þegar Kolbrún er spurð að því hvaða
dýr henni finnist skemmtilegast að
mála segir hún að sauðfé sé í sér-
stöku uppáhaldi hjá henni, sérstak-
lega hrútar. Saga sauðkindarinnar sé
samofin þjóðinni frá landnámi, hún
hafi fætt okkur og klætt í gegnum
aldirnar og að hún beri mikla
virðingu fyrir henni.
Gleymir sér við að mála
„Ég tengist myndefninu sterkt,
hugsa ekkert annað, gleymi mér
og tíminn flýgur. Ætli það geti
ekki kallast núvitund það sem ég
upplifi þegar ég er að mála,“ segir
Kolbrún aðspurð hvað hún hugsi
þegar hún mundar pensilinn og
málar myndir.
Fyrsta einkasýningin
var hjá Fáki
Fyrsta einkasýning Kolbrúnar var
2018 á Stórsýningu Hestamanna-
félagsins Fáks í reiðhöll félagsins í
Víðidal og þar afhjúpaði hún sig í
fyrsta skipti sem listmálara.
„Fáir vissu af þessu brölti mínu
og ég kveið opnun sýningarinnar,
sem reyndist ástæðulaust því hún
fékk glimrandi móttökur og líður
mér seint úr minni. Þar af leiðandi
tel ég þá sýningu þá stærstu,“ segir
Kolbrún og hlær.
Hlakkar til sumarsins
Kolbrún segir að hún og Elli Sig.
hlakki mjög mikið til sumarsins.
„Já, sumarið leggst vel í okkur
og við eigum eflaust eftir að njóta
sumarhússins okkar í Grafningi, sem
er sælureitur okkar, dýranna okkar
og fjölskyldunnar. Ekki er ólíklegt
að við förum vestur að Látrum. Hinn
5. júní mun ég opna málverkasýn-
ingu með Björgu Friðmarsdóttur
en sýningin verður í Bókasafni
Kópavogs. Svo óska ég þess að
lokum að íslenska þjóðin komist
sem best frá COVID-19 og að við-
getum öll notið sumarsins.“
/MHH
Kolbrún við trönurnar sínar þar sem hún getur gleymt sér í marga klukkutíma
við að mála fallegar myndir af dýrum. Henni finnst skemmtilegast að mála
fallega hrúta. Myndir / Einkasafn
Kolbrún og Þuríður Sigurðardóttir eru miklar og góðar vinkonur en Kolbrún
fór á sitt fyrsta myndlistarnámskeið til Þuríðar 2011 en þær eru mágkonur.
Á veggnum eru allt myndir sem Kolbrún hefur málað.
Kolbrún er í sambúð með hinum fræga Ella Sig., hestamanni og skeiðknapa
með meiru, sem flestir ef ekki allir hestamenn landsins kannast við.
Golsótt kind sem Kolbrún málaði.
Hestshaus sem Kolbrún málaði en hún segir að það sé ekkert erfiðara
að mála eitt dýr en annað, það taki hana bara mislangan tíma að tengjast
myndefninu en hún hætti ekki fyrr en hún er sátt við dýrið sem hún er að
mála hverju sinni.
Kolbrún segist elska það að mála myndir af hrútum enda eru þeir í miklu
uppáhaldi hjá henni. Þeir sem vilja skoða verkin hennar betur er bent á að
fara inn á heimasíðuna www.kolla.design, Galleríið, Skólavörðustíg 20 og
Olíumálverk Kollu á Facebook.