Bændablaðið - 04.06.2020, Síða 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 202042
„Í þá tíð var Ísland viði vaxið
milli fjalls og fjöru“, ritaði
Ari prestur fróði Þorgilsson í
upphafskafla Íslendingabókar.
Talið er að við landnám hafi um
þriðjungur landsins verið þakinn
birkiskógum og kjarri, en nú vex
birki á um 1,5 prósentum landsins
og ræktaðir skógar þekja 0,5%
þess. Íslendingar eru í þeirri
óvenjulegu stöðu að nær allir
skógar landsins eyddust og á eftir
fylgdi hrikaleg jarðvegseyðing og
hnignun landgæða sem er okkar
alvarlegasta umhverfisvandamál.
Kjörið tækifæri
Af alþekktum orsökum er hagvöxtur
hér á landi á hraðri niðurleið og
atvinnuleysi eykst. Þessi öfugþróun
bitnar ekki síst á dreifðum byggðum
landsins, sem undanfarin ár hafa notið
góðs af ört vaxandi ferðaþjónustu.
Innspýting í hagkerfið er brýn og
ekki sakar ef hún er um leið „græn“
þannig að hún uppfylli markmið um
sjálfbærni og loftslagslausnir. Draga
má úr áhrifum niðursveiflunnar, ná
verulegum árangri í loftslagsmálum
og byggja upp auðlind til hagsbóta
fyrir land og þjóð í framtíðinni.
Skógrækt er ung búgrein á Íslandi
og vöxtur trjáa er til muna öflugri
en menn hafa þorað að vona. Fyrir
hendi er mikið ónýtt landnæði og
trjárækt getur auðveldlega komið
til stuðnings og viðbótar við aðra
atvinnuvegi landsmanna.
Öflug kolefnisbinding
Ræktun nýrra skóga (nýskógrækt)
er mikilvægasta og skilvirkasta
náttúrulega aðgerðin sem
heimsbyggðin hefur tiltæka til
kolefnisbindingar. Víða um heim
er unnið að því að meta mögulegt
framlag ræktunar nýrra skóga
á áður skóglausu landi til þess
að takast á við loftslagsvána og
uppfylla markmið í umhverfis- og
atvinnumálum.
Timbur
Afurðir nytjaskóga verða að
verðmætu lífrænu hráefni, timbri
og smíðavið. Á líftíma sínum
skapar skógur margvísleg efnisleg
verðmæti, fyrst brennsluvið,
girðingar staura, jólatré, trjákurl
og arinvið og síðar meir timbur og
aðrar viðarafurðir sem nýta má á
ótal vegu. Verð á timbri hefur lengi
farið hækkandi á heimsmarkaði og
ekkert sem bendir til að draga muni
úr eftirspurn á næstunni. Sumar
spár gera reyndar ráð fyrir því að
trjáviður muni í æ ríkari mæli koma í
stað steinsteypu sem byggingarefni.
Skjól og útivist
Skjóláhrif skóga bæta möguleika
til ræktunar í landbúnaði. Skjólið
tryggir og eykur afurðir af túnrækt,
kornrækt og matjurtarækt. Skógar
mynda skjól langt út fyrir það svæði
sem þeir þekja og draga úr öflugustu
vindhviðunum í nágrenninu.
Búpeningi líður betur í skjóli en á
berangri auk þess sem kostnaður
við viðhald bygginga lækkar
vegna skógarskjólsins. Æskilegt
er að planta skógi í nágrenni við
vindasama staði, ekki síst vegstæði
þar sem vindhviður valda tíðum
slysum eða tjóni.
Skógar eru aðlaðandi til útivistar
vegna skjólsins sem í þeim er og
ánægjunni sem felst í að ganga
um og njóta útiveru í skógi vöxnu
landi. Þeir auka fjölbreytni í lífríkinu,
lífverum fjölgar í skógum auk þess
sem ýmsar aukaafurðir skóganna eru
vinsælar meðal matgæðinga, svo sem
sveppir og ber.
Atvinna
Nú með þverrandi atvinnu er unnt
með aðgerðum stjórnvalda að skapa
fólki arðbær störf við að undirbúa
stórátak til að efla skógrækt. Strax má
vinna að því að hirða um og grisja þá
skóga sem fyrir eru og auka þannig
gæði þeirra og hámarka árangur.
Arður af skógi kemur reyndar ekki
í sviphendingu, en býsna skjótt má
fá tekjur af skógi vöxnu landi vegna
grisjunar. Með vexti skógar aukast
tekjur af honum og störfum fjölgar og
trjáviður er uppspretta ótal tækifæra
til nýsköpunar á ýmsum sviðum
iðnaðar. Skógrækt sem tiltölulega
ný atvinnugrein mun þannig stuðla
að jákvæðri byggðaþróun og skapa
fjölmörg afleidd störf og vera
framtíðarauðlind fyrir komandi
kynslóðir landsmanna.
Verðmæti jarða
Lítið hefur farið fyrir umræðu um
áhrif skóga á verðmæti skógarjarða.
Líklegt er að verðgildi þeirra verði
í framtíðinni metið hærra, ekki
síst vegna kröfu til fyrirtækja og
þjóðríkja til kolefnisbindingar. Í
framhaldinu má búast við að láns-
og veðhæfi þeirra aukist og renni
traustari stoðum undir annan búskap
á viðkomandi jörð. Þannig munu
skógar auka verðmæti jarða til
framtíðar óháð öllum hagsveiflum
sem hafa haft afgerandi áhrif á
margar atvinnugreinar í gegnum
tíðina. Timburafurðir má einnig
geyma, ef svo má að orði komast,
því eigandi getur ákveðið að fella
tré síðar, ef td. verð á timbri er
óhagstætt.
Kolefnisbinding
Ræktaður skógur á Íslandi bindur
árlega um 10 tonn af CO2 á hvern
hektara, þó misjafnt eftir staðháttum,
trjátegund og aldri skógarins.
Íslendingar losa árlega um 4,7
milljónir tonna af CO2-ígildum
og nægði því að tæp 5% landsins,
væru fyrir hendi blandskógar
ýmissa tegunda (ösp, greni, lerki,
fura og birki), til að binda alla
okkar losun. Ræktaðir birkiskógar
binda töluvert minna og þyrfti 15%
landsins til sömu nota. Hins vegar
myndi ræktaður asparskógur aðeins
þurfa 2% landsins til að binda alla
losun, því mest binding kolefnis
næst með alaskaösp, allt að 23
tonnum á hektara. Það skiptir því
máli hvaða tegundum er plantað, en
fer að sjálfsögðu eftir því að hvaða
markmiðum skal stefnt. Ef stefnt er
að kolefnisbindingu er ljóst hvar á
að bera niður. Nota á afkastamiklar
og gjöfular tegundir sem skila
mestum árangri. Ákvarðanir um í
hvað fjármunum okkar sé varið til
að berjast gegn útblæstri lofttegunda
sem valda loftslagsröskun verða
að byggjast á staðreyndum og
vísindalegum rökum um gagnsemi
fjárfestinga og slíkar ákvarðanir
eiga að vera í höndum kjörinna
fulltrúa.
Kaup á losunarheimildum
Eftir tíu ár gætum við þurft að verja
verulegum fjárhæðum til kaupa á
losunarheimildum ef ekki næst að
standa við Parísarsamninginn. Takist
að binda þá losun sparast miklar
fjárhæðir sem nýta mætti í aðra
arðbæra hluti. Nýskógrækt dregur að
auki úr losun gróðurhúsalofttegunda
frá rofnu landi um leið og hún bindur
jafnframt kolefni í trjám og jarðvegi.
Látum hendur standa
fram úr ermum
Gróðursetning hefur dregist verulega
saman hér á landi frá efnahagshruni
og í fyrra voru aðeins gróðursettar
3 milljónir trjáplantna. Nauðsynlegt
er að auka þar verulega við og
margfalda plöntun. Undirbúningur
þess tekur nokkur ár og því
mikilvægt að hefjast þegar handa.
Aðgerðir stjórnvalda eru því miður
í hænuskrefum að þessu leytinu á
sama tíma og innan fárra ára kemur
að uppgjöri á kolefnisbókhaldi
landsins.
Fram undan eru því tækifæri til
að draga úr áhrifum niðursveiflu
í efnahagslífinu, ná verulegum
árangri í loftslagsmálum og byggja
upp auðlind til hagsbóta fyrir land
og þjóð í framtíðinni. Á erfiðum
tímum þarf að horfa til framtíðar
og byggja upp. Fátt eykur bjartsýni
fólks eins mikið og gróðursetning
trjáa. Nýtum það lag og blásum til
grænnar sóknar – og ræktum skóga.
Karl Gauti Hjaltason
Höfundur er þingmaður
Miðflokksins í Suðurkjördæmi.
kgauti@althingi.is
Tveir sjónvarpsþættir frá
í febrúar eru mér í fersku
minni. Sá fyrri var í Kveik
um aflátsbréf og græna orku.
Sá seinni í Kastljósinu með
forstjóra Landsvirkjunar (LV)
og framkvæmdastjóra Íslenskra
iðn fyrirtækja.
Mér skildist að aflátsbréf LV
virki þannig að framleiðendur í
ESB-ríkjum kaupi aflátsbréf af
LV til vottunar, að þeir noti græna
orku. Segja svo framleiðslu sína
umhverfisvæna í þeim tilgangi
að selja meira. Ljóst er að dæmið
gengur ekki upp og er lygi á meðan
enginn er sæstrengurinn. Er hægt
að hugsa sér meiri vörusvik? Allt
í skjóli EES/ESB.
Í Kveik bar forstj. LV á
stóriðjuna að hún tímdi ekki að
borga fyrir umhverfisvottun. Sá
sem svaraði fyrir álverin kom að
kjarna málsins, þegar hann sagði
að þessi skattur hefði komið eftir
að álfyrirtækin hófu framleiðslu
hér á landi. Ég man vel að eftir
að ISAL byrjaði reyndi hver
ríkisstjórnin á eftir annarri að
lokka hingað stóriðju út á ódýra
og hreina græna orku. Er nokkuð
óeðlilegt að álframleiðendur neiti
að taka á sig svona skatt eftir á?
Jafnvel þótt reksturinn væri í
dúndrandi gróða.
Í fyrrnefndum Kveik var
velt upp hver væri ábyrgur fyrir
vitleysunni. Í mínum huga er
augljóst að það er ESB. Strax
með fyrsta orkupakkanum var
lagt upp hvernig ESB gæti smám
saman sölsað undir sig orkuna
með hverjum orkupakkanum á
eftir öðrum. Það hefði að öllum
líkindum verið stimplað og runnið
ljúft í gegn, ef ekki hefði liðið svo
langur tími frá því orkupakki 2
var samþykktur, þar til orkupakki
3 skyldi samþykktur. Kanski var
það hruninu að þakka.
EES/ESB og Orkuveitan
fóru fram úr sér með prentun á
greiðsluseðla að á Íslandi væri
raforka framleidd með kjarnorku
og olíubrennslu. Það opnaði augu
margra og komst í umræðuna. Þá
var snarlega hætt að prenta þetta
bull á greiðsluseðlana.
Það er eins með illan orðstír
og góðan. Hann deyr aldrei.
Mikið vorkenni ég aumingjans
landráðamönnunum sem
afsöluðu þjóðinni yfirráðum á
orkuauðlindunum með samþykki
orkupakka 3. Sérstaklega þeim,
sem rökstuddu samþykki sitt
með því að sl. 20 ár hefðum við
samþykkt og stimplað allt sem
EES kom með frá ESB.
Augljóst er hvert forstjóri LV
stefnir. Hann vill fá sæstreng
og selja græna raforku til ESB
á hærra verði en fæst fyrir hana
innanlands. Svo verður sagt að
ódýrari raforka streymi til baka um
sæstrenginn. Það verður skilgreint
sem ódýrari orka framleidd með
kjarnorku, kola- og olíubrennslu.
Við það hækkar orka til okkar,
þó hún sé ódýrari en það sem LV
fær fyrir grænu orkuna til ESB.
Fyrirtæki innan ESB fá vottað
að þeir hafi fengið sérvalda
græna orku úr orkubanka ESB.
Með hærra orkuverði minnkar
samkeppnishæfni íslenskrar
framleiðslu, sem auk þess telst
ekki lengur umhverfisvæn.
Ég horfði líka á Kastljósþátt
með forstj. LV og frkvst. Íslenskra
iðnfyrirtækja, sem sagði sölu LV
á aflátsbréfum eyðileggja fyrir
íslenskum iðnaði. Svar frkvst.
LV var. „Sannaðu það“, sem
ekki er létt fyrirvaralaust í beinni
útsendingu.
Síðan sannaði hann það sjálfur,
þegar hann sagði heiminn vera að
breytast.
Nú vildi unga fólkið kaupa
umhverfisvænar vörur og átti þá
við umhverfisvottaðar vörur, en
sást yfir að vottun með grænum
aflátsbréfum LV er allt í plati-
vottun.
Nú verða stjórnvöld að kynna
að öll íslensk framleiðsla notar
100% græna orku og hreint
ómengað vatn. Koma Íslandi
á kortið sem grænasta landi í
heimi. Merkja áberandi íslenskar
framleiðsluvörur að upprunaland
sé Ísland.
Þá myndi þetta unga umhverfis-
væna fólk velja íslenska vöru og
skipti þá ekki máli að pakkningar
við hliðina væru ódýrari.
Það ætti að efna til samkeppni
um íslenskt umhverfismerki, sem
höfðaði til okkar hreinu auðlinda
líkt og „þú veist, hvaðan það
kemur“. Fylgja merki og merkingu
eftir með öflugri kynningu.
Ég skildi framkvæmdastjóra
Samtaka iðnaðarins sem hún ætti
við að sala aflátsbréfa LV myndi
skemma þennan möguleika.
Frkvstj. LV talaði um 10 milljarða
tekjur LV af sölu aflátsbréfanna,
sem svo kom í í ljós að var á 10
árum. Milljarður á ári er ekki
mikið miðað við skemmdirnar
á samkeppnishæfni, markaðs-
tækifærum og markaðssetningu
íslenskrar framleiðslu.
Vindi stjórnvöld ekki ofan af
þessari grænu svikamyllu ættu
þau að stíga skrefið til fulls og fara
að selja aflátsbréf um hreinleika
vatns. Það væri ekki ónýtt fyrir
framleiðendur bjórs að fá vottað,
að hann væri framleiddur úr
hreinu ómenguðu vatni, eins og
er á Íslandi. Svo ekki sé talað um
garðyrkjubændur víða um heim,
sem blanda alls konar efnum í
vatnið, sem þeir vökva plönturnar
með.
Sigurður Oddsson
LESENDABÁS
Karl Gauti Hjaltason.
Sveiflum haka og ræktum
nýjan skóg
Ræktun nýrra skóga (nýskógrækt) er mikilvægasta og skilvirkasta náttúrulega aðgerðin sem heimsbyggðin hefur
tiltæka til kolefnisbindingar.
Aflátsbréf
Sigurður Oddsson.
Bænda
18. júní