Bændablaðið - 04.06.2020, Page 51
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 2020 51
kom einnig fram í rannsóknarniður-
stöðum að rauðsmáraþykknið hafði
fyrirbyggjandi áhrif á beinþynningu.
Gerir seyði úr 38
hektara uppskeru
Danski bóndinn Michael Mohr
Jensen fer óvenjulegar leiðir í sínum
búskap en hann leggur stund á líf-
rænt vottaða jarðrækt og er með
um 100 hektara af landi, en hann
býr á búinu Herrens Mark á Fjóni.
Michael þessi rekur fyrirtæki sem
heitir Fyns Mælkebøttesaft sem
gæti heitið „Túnfíflasaft Fjóns“ á
íslensku og eins og nafnið gefur til
kynna framleiðir hann saft eða seyði
og selur svo í heilsubúðir.
Til þess að sinna framleiðslunni
er hann með 38 hektara sem ein-
göngu eru nýttir undir framleiðslu
á túnfíflum og rauðsmára! Hann
uppsker svo þessar tvær tegundir
og framleiðir síðan tvenns konar
heilsubætandi seyði, annars vegar
úr túnfíflunum og hins vegar úr
rauðsmáranum.
Átta hektarar af túnfíflum
Af þessum 38 hekturum eru átta
þeirra einungis með túnfíflum í og
er sáð til þeirra árlega. Túnfíflar eru
í eðli sínu auðveldir í ræktun eins og
landmenn allir þekkja væntanlega
en þegar verið er að framleiða þá
sérstaklega sem afurð til neyslu þarf
að vanda til verksins. Þeir þurfa t.d.
töluverða úrkomu til að vaxa vel og
setja kraft í blaðvöxtinn og þar sem
danska vorið í ár var einstaklega
þurrkasamt kom það niður á fram-
leiðslunni hjá Michael. Það kom þó
ekki að sök vegna framleiðslunnar á
þykkni, enda er hann með umfram
framleiðslugetu sem stendur og því
ekki hætta á að geta ekki sinnt eft-
irspurninni.
Handhreinsa akrana
Þar sem Michael er í lífrænt vott-
aðri ræktun má hann ekki nota
illgresiseyði og alls konar illgresi
reynir auðvitað að koma sér fyrir á
þessum 38 hekturum sem hann er
með þessa sérstöku ræktun á. Áður
en bæði túnfíflarnir eru slegnir og
rauðsmárinn, þarf hann að tryggja
að akrarnir séu hreinir svo ekki komi
aðrar plöntur eða illgresi með í upp-
skeruna. Því þarf hreinlega að hand-
hreinsa alla 38 hektarana af öllum
öðrum plöntum og illgresi og þetta
er hörku vinna og tók það 10 manna
teymi um 2 vikur að gera akrana
tilbúna til uppskeru.
Öll plantan tekin
Þegar kemur að uppskeru á tún-
fíflum tekur ekki minni vinna við
enda er öll plantan nýtt og tók það
rúma fjóra daga að uppskera alla
átta hektarana af túnfíflunum, en
plantan er tekin í kjölfar blómstr-
unar og þar sem fíflar blómstra
snemma er uppskera þessa árs
þegar komin í hús hjá Michael.
Strax í kjölfarið eru akrarnir svo
undirbúnir undir sáningu túnfífla
fyrir næsta árs uppskeru en það er
gert með eigin fræi sem Michael
hreinsar sjálfur af ökrunum fyrir
uppskeru. Til þess er notuð sér-
stök fræsuga sem hann hefur
sjálfur útbúið en eins og flestir
vita myndar túnfífillinn bifukollu
(biðukollu) eftir blómstrun og sáir
sér þannig. Þegar akurinn er al-
settur bifukollum er ekið um hann
með fræsuguna og fræin hreinlega
ryksuguð upp. Nú um miðjan maí
var þegar búið að sá á ný í alla
akrana hjá Michael og uppskera
næsta árs því undirbúin.
Hálft ár að gerjast
Eftir að búið er að uppskera tekur
við hreinsun og svo hefst fram-
leiðslan á seyðinu en það tekur sex
mánuði fyrir seyðið að verða tilbúið
en til þessa hluta framleiðslunnar
er Michael með 840 þúsund lítra
geymslutanka sem seyðið verður til
í. Síðan er komið að því að pakka
seyðinu í neytendapakkningar og
er það sett í lofttæmda tveggja
lítra neyslupoka og svo í þar til
gerðar pappaöskjur, ekki ósvipað
því sem sumir þekkja e.t.v. þegar
léttvín er keypt í pappaöskju með
stút. Fyrir vikið nýtist seyðið vel
að sögn Michael, en mikilvægt er
að viðhalda loftfirrtum aðstæðum
því annars fellur virkni þess og það
skemmist hratt. Þessar tveggja lítra
einingar eru svo seldar út úr búð á
um 6 þúsund íslenskar krónur og
lítrinn fer því á um 3 þúsund krónur
sem er vissulega afar hátt lítraverð
og leitun að jafn háu lítraverði á
nokkurri landbúnaðarafurð ef frá
eru talin vín. Þetta háa verð fellur
vissulega ekki allt í hendur bóndans
sjálfs, en ætla má samt að hann fái
allháan skerf í sinn hlut.
Gott umtal hafði mikil áhrif
Á Íslandi er oft talað um mikilvægi
áhrifavalda og vaxandi vægi þeirra
á sölu- og markaðsmál og það
hefur svo sem lengi legið fyrir að
jákvæð fjölmiðlaumfjöllun hefur
alltaf umtalsverð áhrif. Michael
nefnir þessi atriði sérstaklega
varðandi árangur hans en hann sjái
sölutölur rjúka upp við hverja um-
fjöllun. Þá hjálpi einnig til sú stað-
reynd að rannsóknaniðurstöður
sýni nokkuð skýrt að afurðir rauð-
smára hafi góð áhrif á heilsu fólks.
Í Danmörku eru oft svokallaðir
„sjónvarpslæknar“ með þætti þar
sem þeir skýra frá margvíslegum
vandamálum eða heilsubresti og
hvernig eigi að takast á við slíkt og
nýverið var seyðið frá Michael til
umfjöllunar og fékk jákvæð með-
mæli sjónvarpslæknis sem hafði
strax áhrif á söluna. Auk þess hafa
ýmsir þjóðþekktir danskir einstak-
lingar dásamað vörurnar og allt
hjálpist þetta að við að festa söluna
í sessi.
Ætlar að auka framleiðsluna
Í dag er staðan þannig á búinu hjá
Michael að um 20% framleiðslunnar
er túnfíflaseyði en megnið af fram-
leiðslugetunni er nýtt til framleiðslu
á rauðsmáraseyði. Hann segir að í
hvert skipti sem umfjöllun um af-
urðirnar kom í sjónvarpi hafi salan
tekið kipp en síðustu árin hafi aðeins
hægt á aukningunni og því er hann
nú að setja kraft í sölu- og markaðs-
starfið með því að auka við sölustarf-
semina úr einum manni í tvo. Hann
vonast til þess að það muni skila sér
í verulegri aukningu enda er mikið
af seyði til á lager, sem bíður eftir
kaupendum. Í dag er hann einungis
að selja afurðir sínar í Danmörku en
með viðbótarkrafti í sölumennskuna
ætlar hann nú inn á þýska markaðinn,
sem er auðvitað gríðarlega stór og
þýðingarmikill.
Þýtt og endursagt upp úr grein í
Landbrugsavisen 15. maí 2020.
LÍFEYRISSJÓÐUR BÆNDA - Niðurstöður ársreiknings 2019
BREYTING Á HREINNI EIGN TIL GREIÐSLU LÍFEYRIS EFNAHAGSREIKNINGUR Í ÁRSLOK
í milljónum króna 2019 2018 í milljónum króna 2019 2018
Iðgjöld 760 807 Eignarhlutir í félögum og sjóðum 15.531 11.835
Lífeyrir -1.710 -1.618 Skuldabréf og aðrar fjárfestingar 21.064 21.011
Hreinar fjárfestingartekjur 4.337 1.766 Skammtímakröfur og ýmsar eignir 190 207
Rekstrarkostnaður -128 -127 Handbært fé og ýmsar eignir 477 948
Breyting á hreinni eign 3.259 828 Eignir alls 37.263 34.000
Hrein eign frá fyrra ári 33.982 33.153 Skuldir 22 18
Hrein eign til greiðslu lífeyris 37.241 33.982 Hrein eign til greiðslu lífeyris 37.241 33.982
KENNITÖLUR ÁRSFUNDUR 2020
Nafnávöxtun 13,0% 5,4% Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda verður
Hrein raunávöxtun 9,6% 1,7% föstudaginn 12. júní nk. kl. 14
5 ára meðaltal hreinnar raunávöxtunar 4,7% 3,9% að Stórhöfða 23, 4. hæð, Reykjavík.
Fjöldi virkra sjóðfélaga 2.148 2.300 Dagskrá: Venjuleg ársfundastörf.
Fjöldi lífeyrisþega 3.906 3.822 Stjórnarkjör skv. samþykktum.
Tryggingafræðileg staða -4,8% -9,4% Önnur mál.
STJÓRN Skrá sig á fundinn með nafni og kennitölu í tölvupósti á lsb@lsb.is.
Skúli Bjarnason, formaður, Erna Bjarnadóttir, Guðrún Stjórn Lífeyrissjóðs bænda
Lárusdóttir, Vigdís M. Sveinbjörnsdóttir, Örn Bergsson. Framkvæmdastjóri: Ólafur K. Ólafs
LÍFEYRISSJÓÐUR BÆNDA - STÓRHÖFÐA 23 - 110 REYKJAVÍK - SÍMI 563 1300 - LSB@LSB.IS - WWW.LSB.IS
Mogens Mohr Jensen, danski túnfíflabóndinn, með fræ sem hann safnar
sjálfur af túnfíflaökrum sínum með sérstakri fræsugu.
Hrafnablöðkur má nota í salat og eru
sagðar nýtast gegn harðlífi og eru
sagðar þvaglosandi.
Túnfíflasalat, eða „Mælkebøttesalat“ eins og Daninn kallar það.
Ef þú vilt bregða
þér af bæ…
Fyrir okkur öll
Félagsmönnum í Bændasamtökum Íslands
býðst að leigja orlofsíbúð í Kópavogi til lengri
eða skemmri tíma allt árið um kring.
Íbúðin er í fjölbýlishúsi í
Þorrasölum 13-15 og rúmar
auðveldlega fjóra gesti.
Í henni eru tvö svefnherbergi,
rúmgóð stofa sem er
sambyggð eldhúsi, bað- og
þvottaherbergi og svalir.
Stutt er í alla þjónustu,
m.a. sundlaug, golfvöll og
fjölbreyttar verslanir.
Nánari upplýsingar um
íbúðina er að finna á bondi.is.
Aðild að Bændasamtökunum borgar sig
Bókanir á Þorrasölum fara í gegnum Orlofsvef BÍ á vefslóðinni
orlof.is/bondi