Bændablaðið - 04.06.2020, Page 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 202032
„Það er ótrúlega skemmtilegt
að framleiða eigin matvæli og
úr okkar eigin hráefni, sérstak-
lega þegar það heppnast svona
vel,“ segir Auður Filippusdóttir,
líftækni- og matvælafræðingur
á Skútustöðum í Mývatnssveit.
Félagið Skútaís var stofnað í fyrra
og hóf starfsemi, framleiðslu og
sölu á ís síðsumars. Ísinn er fram-
leiddur á Skútustöðum og seldur
beint frá býlinu.
Auður er Akureyringur og bjó
þar stærstan hluta ævi sinnar, en
undanfarin tvö ár hefur hún búið
í Mývatnssveit. Hún kynntist
kærasta sínum, Júlíusi Björnssyni,
sumarið 2017, en hann er bóndi á
Skútustöðum. Þá um haustið flutti
Auður til Reykjavíkur og hóf meist-
aranám í matvælafræði. Júlíus, sem
er bóndi og bundinn búskapnum,
var ekki endilega á þeim buxunum
að flytja úr Mývatnssveitinni þannig
að Auður fór að velta fyrir sér við
hvað hún gæti starfað þar. „Framboð
á atvinnu fyrir matvælafræðinga er
ekki mikið á þessu svæði, þannig að
ég ákvað að búa mér til atvinnu og
opna ísbúð,“ segir Auður um tildrög
þess að félagið Skútaís var stofnað.
Hún lauk meistaranámi sínu og
má segja að lokaverkefnið hafi verið
frekar einstakt, en það er byggt upp
sem undirbúningur fyrir ísgerð,
framleiðslu og sölu beint frá býli.
Það innihélt ítarlega umfjöllun um ís
og ísgerð, gæðahandbók, viðskipta-
áætlun og vöruþróun. Leiðbeinendur
voru þeir Guðjón Þorkelsson og
Þórarinn Egill Sveinsson, sem
báðir voru harla ánægðir með
útkomuna. Auður fékk styrk úr
Uppbyggingarsjóði Norðurlands
eystra og nýtti hann meðal annars
í námskeið í ísgerð sem haldið var
í Háskólanum í Reading, Englandi.
Ísbúðin vakti strax mikla lukku
Síðastliðið sumar ákvað fjölskyldan
að demba sér beint í djúpu laugina,
en Auður ásamt systkinum kærastans
og mökum þeirra stofnuðu í sam-
einingu einkahlutafélag. Systkinin
eru fimm í allt en fjögur búa í
Mývatnssveit og reka í sameiningu
búskapinn á bænum og gistiheimili
að Skútustöðum. Nýja félagið fékk
nafnið Skútaís ehf. og tókst að opna
ísbúðina í byrjun ágúst í fyrra. Hún
var opin alla daga þann mánuð og
í september, en þá tók við helgar-
opnun út árið. „Þetta vakti mikla
lukku, bæði meðal heimamanna og
eins ferðamanna sem komu í heim-
sókn í sveitina,“ segir Auður.
Jólamarkaðurinn var góður
Hún notar eigin uppskriftir við
framleiðslu á ísnum og segir að hún
snúist fyrst og fremst um að búa til
gæða kúluís úr mjólkinni sem til
fellur á bænum. Pláss er fyrir níu
bragðtegundir í ísborðinu og reynir
hún að bjóða nýjar bragðtegundir
reglulega í bland við þær vinsælustu
hverju sinni, en í allt eru um 20
bragðtegundir í boði.
„Við fórum á tvo jólamarkaði
fyrir síðustu jól og buðum upp á
þrjár mismunandi jólabragð-
tegundir, það er óhætt að segja að
þær slógu alveg í gegn. Við feng-
um virkilega góðar viðtökur sem
er yndislegt,“ segir Auður. Hægt
var að kaupa ísinn í ýmist eins lítra
umbúðum eða 250 ml ílátum. Þá
var einnig í boði að panta ís fyrir
jólin og gat fólk valið um að sækja
hann í ísbúðina í Mývatnssveit eða
hjá foreldrum hennar á Akureyri.
Framleiðir hugsanlega fleiri
afurðir úr mjólkinni síðar
„Þetta hefur verið ótrúlega
skemmtilegt og gengið vonum
framar. Og þá fer maður auðvitað
að huga að því að framleiða fleiri
afurðir úr mjólkinni og ég geri
ráð fyrir að þegar ísinn fer að
skila einhverju inn og við sjáum
fram á möguleika á að stækka
við okkur, láti ég slag standa. Ég
vona svo sannarlega að smáfram-
leiðendum fjölgi og sem víðast
um landið. Það er ánægjulegt ef
fjölbreytileiki í framboði matvæla
frá smáframleiðendum eykst. Ég
held að einmitt núna séu margir að
taka af skarið, framkvæma og láta
drauma sína rætast, hafi það kost á
því. Það eru margir að velta þessu
fyrir sér og ég held að fólk ætti
að hugleiða hvað sé það versta
sem gæti gerst og einhenda sér
svo bara í verkefnið. Annars er
hætta á að menn sjái eftir því,“
segir Auður.
Bjartsýn á gott sumar
Hún kveðst bjartsýn á komandi
sumar þó svo að búast megi við
að færri verði á ferðinni en áður
þar sem útlendinga vanti. „Ég held
að við munum hafa nóg að gera og
Íslendingar verði duglegir að ferð-
ast um landið sitt. Okkar plön fyrir
kórónuveiru voru þau að það yrði
mikið að gera og jafnvel meira en
var síðsumars í fyrra þegar við
opnuðum. Nú höfum við gert þá
breytingu í ljósi stöðunnar að í
stað þess að vera með opið frá
morgni til kvölds eins og ráðgert
var höfum við opið frá klukkan
13 til 18 alla daga.“ /MÞÞ
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Lárus Björnsson, Ingibjörg Björnsdóttir, Sigurður Guðni Björnsson, Auður Filippusdóttir, Júlíus Björnsson, Arnar
Halldórsson og Soffía Björnsdóttir, eigendur Skútaíss í Mývatnssveit. Myndir / Úr einkasafni
Skútaís í Mývatnssveit:
Framleiða ís úr eigin hráefni og opnuðu ísbúð
Auður Filippusdóttir afgreiðir ánægðan viðskiptavin.
„Þetta hefur verið ótrúlega skemmti
legt og gengið vonum framar,“ segir
Auður, sem framleiðir ís úr afurðum
Skútustaðabúsins í Mývatnssveit.
Skútaís, ísbúðin í sveitinni.
Nordic Natura er allra átta dvalarstaður
staðsett við vesturmynni Ásbyrgis,
við bæði Norðurstrandaleið og
Demantshringinn.
Við bjóðum:
• Gistingu í lúxus stúdíóhúsum
• Skutlþjónustu fyrir göngu- og
hjólafólk
• Hestaleigu
• Beitarhólfsleigu fyrir hestamenn
Fjölmargar frábærar gönguleiðir í þjóðgarðinum sem henta
öllum. Magnaðar reiðleiðir styttri sem lengri.
Ásbyrgi, Dettifoss, Hljóðaklettar, Melrakkaslétta, Húsavík,
Mývatn, Langanes eru allt kjörnir áfangastaðir fyrir lengri eða
styttri dagsferðir.
Langar þig að dvelja
við Ásbyrgi í sumar?
www.nordicnatura.is
info@nordicnatura.is
s. 862-7708
Ávallt velkomin