Bændablaðið - 04.06.2020, Side 55

Bændablaðið - 04.06.2020, Side 55
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 2020 55 Af og til berast af því fregnir að börn undir 18 ára aldri slasa sig á sveitabýlum. Ótrúlega oft koma þá einhvers konar ökutæki við sögu sem var orsakavaldurinn. Dráttarvél, fjórhjól eða vélsleði eru algengustu tækin sem ungmenni eru að slasa sig á. Þessi slys eru fleiri en opinberar tölur segja til um því ekki eru öll slys skráð og jafnvel eru til sögusagnir um að slys séu ranglega skráð vísvitandi vegna þess að hinn slasaði hafði ekki ökuréttindi til að stjórna ökutækinu sem orsakaði slysið. Þetta eru stór orð og miklar fullyrðingar hjá undirrituðum, en því miður er þetta staðreynd og sem innskot hér þá gleymi ég því seint þegar ég var fyrir um ári síðan staddur á ónefndum sveitabæ og sonur bónda ætlaði að skjótast á fjórhjóli til að reka álftir úr túni að bóndi sagði við son sinn: „Vertu með hjálm, látum Hjört ekki ná af þér mynd hjálmlausum á fjórhjólinu.“ Flestir geta rifjað upp fyrsta skiptið sem þeir keyrðu ökutæki Í nokkurra manna spjalli við menn á sextugsaldri sem ólust upp í sveit og búa enn í sveit vorum við að rifja upp hvað við vorum gamlir þegar við keyrðum fyrst dráttarvél. Hjá okkur flestum var svarið að við byrjuðum á aldrinum 7–9 ára að slóðdraga tún á litlum dráttarvélum. Á þessum árum voru minnstu dráttarvélarnar lítið stærri en fjórhjól og oft og tíðum án húss eða veltigrindar. Í framhaldi spurði ég viðmælendur mína hug þeirra til þess að setja sín eigin börn upp á dráttarvél til að slóðdraga túnið heima við bæ. Svarið var ósköp einfalt. Dráttarvélum í dag og fyrir fimmtíu árum er ekki hægt að líkja saman. Að vera 7–9 ára á þessum nýju vélum gengur einfaldlega ekki upp. Enda hefur 7–9 ára barn ekki getu til að stjórna svona stórum dráttarvélum. Hins vegar ef rétt er farið með fjórhjól og smæstu vélar voru flestir sammála að 10–12 ára ættu að ráða við svoleiðis tæki með réttri tilsögn og undir eftirliti. Ekki allt slæmt frá Ameríku þó að sumt sé vissulega „sjokkerandi“ Ein af mörgum stofnunum og félögum í Ameríku er „The National Children’s Center for Rural and Agricultural“, sem sérhæfir sig í forvörnum til ungmenna á sveitabýlum. Hún hefur lagt mikla áherslu undanfarin ár í að ná til þeirra sem eru undir 15 ára aldri síðan 2015 þegar slys ungmenna undir þeim aldri náðu hámarki. Á árunum 2015 til 2018 fækkaði slysum í þessum aldurshópi um tæplega fjórðung. Á meðan þeir settu svona mikla orku og áherslu á þennan aldurshóp hækkaði í staðinn slysatíðni í aldurshópnum 15–18 ára. Childhood Agricultural Injuries í USA hefur síðan 1992 gefið út árlega samantekt úr skráðum slysum ungmenna í Ameríku og nýlega kom út samantekt fyrir árið 2020 sem byggir á gögnum til 2018 með fyrirsögninni að 60% af slysum á sveitabýlum er utan vinnutíma (við leik). Skráning slysa í Ameríku góð, en slysatíðnin alltof há Í Bandaríkjunum er það lagaleg skylda að skrá öll slys sem verða á býlum (há sekt ef slys eru ekki skráð eða rangt skráð). Í Bandaríkjunum eru yfir tvær milljónir bændabýla og á þeim búa og starfa tæplega 900.000 ungmenni undir 18 ára aldri. Árlega eru ráðnir til viðbótar um 250.000 ungmenni til starfa á býlunum og um 23 milljónir ungmenna heimsækja bandarísk býli árlega. Daglega slasast að meðaltali 33 börn á býlum og að meðaltali allt árið þriðja hvern dag lætur ungmenni lífið af völdum áverka eftir slys á bandarísku bóndabýli. Af þessum banaslysum eru flest þeirra tengd ökutækjum, eða 47% slysa. 60% af þessum slysum voru vegna þess að verið var að leika sér á ökutækjum (oftast fjórhjólum) án nægilegs öryggisbúnaðar s.s. hjálm og brynju. Einhverjum finnst eflaust að líkja saman Íslandi og Bandaríkjunum ekki skynsamleg samlíking, en tæki hér og tæki þar eru svipuð. Rétt hugarfar, hlífðarbúnaður og hjálmar eru eins svo að samlíking er að því leyti réttlætanleg. Förum varlega og hugsum vel um börnin okkar, þau eru okkar mesta gull. ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI KROSSGÁTA Bændablaðsins Lausn á krossgátu í síðasta blaði Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Bænda Smáauglýsingar 56-30-300 GIMSTEINN EFTIR- MYND T ALDUR R FÁTÆKRA-HVERFI UMTALS Á ANNÁLL B GRÓÐUR- SÆLL GÓMA L Ó M L E G U R HLUT-DEILD RG Í P A GREIÐA RÍKI Í AFRÍKU K E M B A AHNETA K A N TRAÐKAÐI T R Ó Ð I S K Í VÉLSÍÐRI T Æ K I T TÁTU HYLUR FLAGA L Ó N Í RÖÐ NEISTI GRENND G L Ó Ð GAGN L MERKIHÚRRA VDRYKKURUMBUN R R E F A RÍKI Í V-AFRÍKU UMRÓT G Í N E A SÁR TVÍ- HLJÓÐI U N DÞ I L L U R SKÓA HÖFUÐ- FAT J Á R N A KLÆÐI O SÍÐARI ÞRÁTTA REIÐUR S P Í N A T FUGL N NÆÐASTÖÐUGT G U S T AMATJURTKOLLUR A U S ÚÐAVAFIN S Ú L D A R TALA J RÍKI Í EVRÓPU FH B AFKIMIFYRRUM A F K R Ó MÝKJASTSPRIKLA L I N A S T J Á LIÐUR L ÞVOGL B A B L FLÍK Ú L P AÞ A Ð H Æ F A EINDHÆÐ A T Ó M TÍMA- EINING ÁTT Á R SAMLAGA DÝRA- HLJÓÐ R G U R N É K T FYRIR- GEFA U N KRYDD Á S Ð A A F FJALLS- NÖF F E R N A N N IK TÁR- FELLDU KVELJA M Y N D : W N IC K O W EN ( CC B Y -S A 4 .0 ) H Ö FU N D U R B H • B R A G I@ TH IS .I S • K R O SS G A TU R .G A TU R .N ET 130 Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is Vertu vinur okkar á Facebook Gúmmíbelti - Fyrir smágröfur GLITTIR MISTAKAST DRABBA TVÍSÝNA ÁHALD SMÁHÖGG SKOTRA FANTALEG HIRÐA SNÖGG- LEGA HLJÓÐ- FÆRI SMÁMJAKA SKORA ORÐTAK MATJURT HLEMMUR GAGNSÆR FREMSTI TÍÐ VIÐ- BURÐUR HVAÐ REYNSLU- LAUS HALDBLÓM STAFUR SPIK MIÐ SAMTÖK VARKÁRNI KLIFUN VIÐURVIST ULLAR- BAND BLANKUR FUGL STÖÐVA FUGL ALBATA SPÁSSERA NÆÐUÐ UNA GJÁLFUR HINGAÐ MÁTAR FRJÁLST NÝLEGA HADDUR VAGG BORINN FLOKKA INNSIGLI MÆÐI NÓTA DÍKI LIGGJANDI TÓMUR HVAÐEINU BÝSNA ODDI NUDDAST MERKJA ELLEGARNOT ILMANDI M Y N D : A LE K SA N D R S B A LO D IS ( CC B Y -S A 4 .0 ) H Ö FU N D U R B H • B R A G I@ TH IS .I S • K R O SS G A TU R .G A TU R .N ET 131 Börn á sveitabæjum slasa sig of oft Ein af mörgum stofnunum og félögum í Ameríku er „The National Children’s Center for Rural and Agricultural“ sem sérhæfir sig í forvörnum til ungmenna á sveitabýlum. Á árunum 2015 til 2018 fækkaði slysum í þessum aldurshópi um tæplega fjórðung.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.