Bændablaðið - 04.06.2020, Blaðsíða 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 202014
Sjávarlíftæknisetrið Biopol
á Skagaströnd heldur úti
strandvöktun samkvæmt
aðferðafræði og leiðbeiningum
frá OSPAR, sem er samningur um
verndun hafrýmis Norðaustur-
Atlantshafsins.
Þetta er þriðja árið sem Biopol
tekur þátt í verkefninu og vaktar
ströndina á Víkum á Skaga. Ströndin
er ein af sex OSPAR ströndum
hér á landi. Tilgangurinn með
vöktuninni er að draga úr skaðsemi
vegna mengunar á hafi og ströndum
með því að finna út hvaðan rusl á
ströndunum kemur, hversu hratt það
safnast upp á ströndunum og fleira.
Á ströndinni í Víkum er tals
vert af rekaviði og er hún því söfn
unarsvæði fyrir rusl sem flýtur á
haffletinum. Mest af ruslinu sem
finnst þar er plast sem fylgir sjó
mennsku en plast er almennt í yfir
gnæfandi meirihluta alls rusls sem
finnst í íslenskum fjörum, að því er
segir á vef Biopol. /MÞÞ
FRÉTTIR
Biopol vaktar ströndina á Víkum á Skaga:
Dregið úr skaðsemi
mengunar
Mikið rusl var tínt upp á þessum 100 metra kafla í fjörunni sem var hreinsuð
síðasta haust. Mynd / Biopol
Lambhaga leyft að nota ólöglegar umbúðir á meðan birgðir endast:
„Bio“-merkingunni ætlað að vekja
athygli á lífrænum vörnum
Lambhagi hefur um nokkurt
skeið notast við merkingar á
Lambhagasalati sínu sem telj-
ast ekki samræmast reglugerð-
um. Óheimilt er að nota „Bio“-
merkingu á vörum nema þær
hafi verið vottaðar lífrænar.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
hefur gert athugasemd við þess-
ar merkingar hjá Lambhaga og
gefið leyfi fyrir því að þær verði
notaðar á meðan birgðirnar með
þessum umbúðum endast.
Í Bændablaðinu 23. apríl síðast
liðinn segir Ingibjörg Jónsdóttir,
fagsviðsstjóri neytendaverndar
hjá Matvælastofnun, að breyting
á lögum um lífræna landbúnað
arframleiðslu hafi verið gerð í
desember 2019 til að tryggja heil
brigðisnefndum lagastoð til að sinna
eftirliti með merkingum sem tengj
ast lífrænum framleiðsluaðferðum
á markaði. Í kjölfarið sé auðveldara
fyrir eftirlitsaðila að taka á þessum
málum.
„Orðin lífrænt, bio, organic
má ekki nota í merkingar,
auglýsingar eða kynningar vöru
nema hún hafi verið vottuð sem
slík af vottunarstofu. Þegar vara
hefur fengið vottun er skylda að
merkja hana einnig með merki
vottunarstofu og Evrópulaufinu ef
hún á að fara á markað á Evrópska
efnahagssvæðinu,“ sagði Ingibjörg.
Átti að vekja athygli
á lífrænum vörnum
Anna Jóhannesdóttir, heilbrigðis
fulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti
Reykjavíkur, segir að haft hafi
verið samband við Lambhaga vegna
þessara merkinga og rekstraraðili
upplýst þá um að hann sé hættur við
að nota þessa merkingu. Hún segir
að hann hafi ætlað að koma þeim
upplýsingum á framfæri að hann
notaði lífrænar varnir í ræktuninni,
en Lambhagi uppfylli ekki skilyrði
til notkunar á „bio“ eða „eko“
merkingum.
„Nýjar umbúðir eru í prentun og
mun notkun á þeim hefjast um leið
og þær berast. Því verður merkingin
„bio“ eitthvað áfram á umbúðum,
bæði plastpokum og kössum fyrir
tækisins, en ætti að hverfa í sumar,“
bætir Anna við. /smh
Leyft verður að nota þessar ólöglegu
umbúðamerkingar Lambhaga á
meðan birgðir endast.
Nýtt og glæsilegt leiksvæði fyrir börn á Álftanesi. Myndir / HKr.
Nýjustu leikvellirnir fyrir börn vekja athygli:
Glæsileg hönnun en hefur
reynst býflugum banvæn
Útlit og notagildi skiptir ekki
síður máli í hönnun leiksvæða en
annarra mannvirkja. Leiksvæði
á Álftanesi á vegum Garðabæjar
hefur vakið athygli fyrir mikinn
glæsileika en það eru þó fleiri en
mannfólkið sem hrífst af leik-
vellinum. Það gera býflugur
nefnilega líka með alvarlegum
afleiðingum fyrir þær.
Umrætt leiksvæði er á milli
Vesturtúns og Norðurtúns á
Álftanesi og er afskaplega litríkt og
skemmtilega hannað. Jarðvegurinn
er þakinn með gervigrasi sem er
ýmist skærgult eða skærblátt.
Þetta gervigras grípur sannarlega
augu þeirra sem framhjá fara, en
það á ekki bara við mannfólk af
öllum stærðum, heldur líka býfl
ugur. Þær sækja greinilega í þessa
miklu litadýrð og telja ugglaust
að um veglegt matarborð sé að
ræða. Býflugur eru frekar klunna
lega byggðar og ættu í raun vart
að geta flogið, en gera það samt
af mikilli snilld. Þegar þær lenda
hins vegar í gervigrasi eins og er á
leikvellinum á Álftanesi eiga þær
erfitt með að fóta sig. Oftar en ekki
verða þær afvelta og komast ekki
á loft að nýju og drepast.
Þegar spurst var fyrir um
málið hjá Garðabæ var greinilegt
að hönnuðir höfðu ekki áttað
sig á þeim neikvæða eiginleika
gervigrassins að laða til sín
býflugur. Það virðist því vera
verðugt verkefni fyrir arkitekta
og hönnuði efna sem notuð eru
á leikvelli að fara í rannsókn á
þessum áhrifum, ekki síður en
að rannsaka fallöryggi á slíkum
svæðum. Allavega verðum við
mannfólkið að leita allra leiða til
að koma í veg fyrir býflugnadauða
ef þess er nokkur kostur.
Býflugnadauði vegna eiturefna
notkunar í landbúnaði er orðið
stórvandamál víða um lönd þó það
eigi kannski ekki við á Íslandi.
Samt ber okkur skylda til að verja
býflugurnar fyrir áföllum, því án
býflugna á jörðinni tímgast nytja
jurtir ekki frekar en falleg blóm.
Án þeirra myndi mannkynið lík
lega heldur ekki lifa ýkja lengi á
jörðinni. /HKr.
Bjargarlaus býfluga í fallegu gervigrasi á leikvellinum á Álftanesi. Þessi var
þó heppin og var bjargað úr prísundinni af ljósmyndaranum.
Tár er á hvarmi margra Gásverja vegna ákvörðunar um að aflýsa Gásahátíð
í ár. Hún verður á sínum stað að ári, þriðju helgina í júlí árið 2021.
Engir Miðaldadagar á Gásum í ár
Stjórn Gásakaupstaðar ses og
Gásverjar hafa í ljósi aðstæðna
tekið þá ákvörðum að aflýsa
Miðaldadögum á Gásum í ár.
Tár er á hvarmi margra Gásverja
vegna þessarar ákvörðunar en
fyrir marga þeirra, ekki síst þá
yngstu, er þetta hápunktur sum-
arsins.
Síðustu ár hafa um 2.000 manns
árlega ferðast aftur til fortíðar þriðju
helgina í júlí þegar þeir sækja
Miðaldadaga á Gásum í Eyjafirði
heim. Í ár verða menn að halda sig
í samtímanum en fá tækifæri að
ári til að upplifa verslunarstaðinn
frá miðöldum á blómatíma hans.
Þá verður á ný hægt að kynnast
handverki og daglegum störfum
frá miðöldum í sviðsmynd
verslunarstaðarins á Gáseyrinni
þar sem reykur úr pottum fyllir vit,
Gásverjar bregða á leik og taktföst
högg eldsmiða og sverðaglamur
heyrast um allan fjörð.
Gásverjar allir hlakka til að
ferðast aftur til fortíðar með
ferðaþyrstum gestum helgina 16.–
17. júlí 2021, segir í tilkynningu frá
stjórn Gásakaupstaðar. /MÞÞ
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
KÚPLINGAR í flestar
gerðir dráttarvéla