Bændablaðið - 04.06.2020, Qupperneq 17
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 2020 17
Háskólinn á Hólum
Hólaskóli - Háskólinn á Hólum
Hólum í Hjaltadal 551 Sauðárkrókur
Sími 455 6300 holaskoli@holar.is
www.holar.is
Námið er einstaklingsmiðað 120 ECTS nám sem boðið
er upp á í samstarfi Háskólans á Hólum, Háskólans á
Akureyri, Nord háskólans í Bodö í Noregi og Háskólans í
Gautaborg í Svíþjóð. Námið snýr að sjálfbærri framleiðslu
og nýtingu sjávarafurða og er hugsað sem þverfagleg
tenging milli fiskveiða, fiskeldis og annarrar lífrænnar
matvælaframleiðslu í sjó eða ferskvatni, með sérstakri
áherslu á nýsköpun og frumkvöðla.
UMSÓKNARFRESTUR TIL 15. JÚNÍ 2020
Kynntu þér málið nánar á www.holar.is
w
w
w
.h
ol
ar
.is
ný
pr
en
t e
hf
.
|
0
5
/2
0
2
0
MARBIO
- samnorrænt meistaranám
ÖFLUG VÖKVADRIFIN VERKFÆRI FRÁ HYCON
DÖNSK GÆÐASMÍÐI OG ÁRATUGA REYNSLA
Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík / 551 5464 / wendel.is
Brothamrar Kjarnaborvélar Steypusagir Vatnsdælur GlussadælurNiðurrekstarhamrar
Víkurvagnar ehf. – Hyrjarhöfði 8. – 110 Reykjavík
Sími 577-1090 – www.vikurvagnar.is – sala@vikurvagnar.is
STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI
MIKIÐ ÚRVAL KERRUVARAHLUTA
VÍKURVAGNAR EHF.
RAFMAGNSBÚNAÐUR
BREMSUR
BEISLI
DEKK
LJÓS
LED LJÓS
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
TINDAR OG
HNÍFAR
GOTT ÚRVAL
sjávarafurð sem seld er frá Íslandi
miðað við verð á kíló. Dýrasta varan
fer á sushi-markað og kostar nálægt
20 þúsund krónum kílóið, að því er
fram kemur í nýlegu og áhugaverðu
viðtali í páskablaði Fiskifrétta við
forsvarsmenn Royal Iceland sem
veiðir og vinnur ígulker.
Konungur beitunnar
Beitukóngur er skelfiskur með
kuðungslaga skel. Fullvaxinn
beitukóngur er um 7 til 10
sentímetrar. Við Ísland hefur
beitukóngur verið veiddur til matar
og til beitu og þaðan er nafnið
komið.
Á síðasta ári veiddust um 350 tonn
af beitukóngi að aflaverðmæti rúmar
45 milljónir króna. Beitukóngur er
veiddur í gildrur. Aðeins einn bátur
stundaði veiðarnar á síðasta ári að
einhverju marki.
Tilraunaveiðar á beitukóngi
hófust í Breiðafirði árið 1996 og var
landað 500 tonnum það ár. Síðan
hefur aflinn verið sveiflukenndur
vegna markaðsaðstæðna. Mest
fengust tæp 1.300 tonn árið 1997.
Beitukóngur er soðinn í skelinni og
seldur að stærstum hluta til Kína en
markaðir eru víðar.
Beitukóngur leggur sér ýmsar
tegundir til munns, meðal annars
hörpudisk. Þá sýnir hann einstök
klókindi. Hann klifrar upp á aðra
hlið skeljarinnar, bíður þar til hún
opnast og stingur síðan kuðungnum
inn í opið þannig að skelin getur ekki
lokað sér. Síðan teygir beitukóngur
rana sinn inn í skelina og étur
skelfiskinn.
Tindaskata bjargar Þorláksmessu
Tindaskata er smágerð skötutegund,
oftast um 40 til 70 sentímetrar að
lengd. Annað nafn á henni og jafnvel
algengara er tindabikkja.
Um 885 tonn af tindaskötu bárust
á land á síðasta ári að aflaverðmæti
um 18,5 milljónir króna. Hún fæst
mikið sem meðafli við línuveiðar og
var lengi vel ekki kærkominn fengur.
Henni var oft hent fyrir borð en síðan
var farið að vinna hana.
Nýting innanlands hefur svo
aukist seinni árin vegna skorts á
hefðbundinni skötu. Kæst tindaskata
er nú algeng á borðum landsmanna
á Þorláksmessu. Hún hefur einnig
verið fryst til úflutnings, t.d. fyrir
markað í Frakkalandi.
Stinglax, meðafli við togveiðar
Stinglax er þunnur og langvaxinn
fiskur sem verður rúmlega 120
sentímetrar að lengd. Hann finnst
víða í Atlantshafi og er meðal annars
veiddur á línu við eyjuna Madeira og
þykir ágætur matfiskur.
Hér við land finnst hann aðallega
djúpt suður af landinu og veiðist sem
meðafli við togveiðar. Aflinn hér
jókst nokkuð fyrir áratug eða svo
þegar fáein frystiskip fóru að leggja
sig lítillega eftir stinglaxi þegar þess
gafst kostur. Aflinn fór mest í 365
tonn árið 2012. Síðustu ár hefur
hann minnkað og aðeins veiddust
65 tonn árið 2019 að verðmæti tæpar
11 milljónir króna.
Veiðar á skötu í skötulíki
Við Ísland þekkjast í kringum 15
tegundir skötu. Ein þeirra og sú
mikilvægasta gengur einfaldlega
undir nafninu skata. Hún er oftast
100 til 150 sentímetrar að lengd.
Skata var og er eftirsótt og náði
afli hennar á Íslandsmiðum mest
rúmum 2.500 tonnum árið 1951
þegar erlend skip voru hér að veiðum.
Mestan afla fengu íslensk skip árið
1958, eða rúm 1.270 tonn. Erlendis
svo sem í Frakklandi er skata etin
fersk en Íslendingar vilja hana aðeins
kæsta eða salta sem kunnugt er.
Vegna ofveiði víða hefur
skötustofninn dregist verulega saman
og er talinn í útrýmingarhættu. Á
síðasta ári veiddust aðeins 175 tonn
af skötu við Ísland að verðmæti
rúmar 9 milljónir króna. Eins og
getið er hér að framan hleypur
tindaskatan í skarðið þegar skötuna
vantar.
Hin eina og sanna skata er samofin
ísleskri þjóðmenningu og fáir fiskar
koma fyrir í jafnmörgum orðtökum
og samlíkingum og skatan. Flest eru
þau á einhvern hátt niðrandi. Sagt er
að eitthvað sé í skötulíki þegar illa er
að verki staðið. Pör sem ekki voru
gift voru í eina tíð nefnd skötuhjú
og þótti ekki fínt. Þegar eitthvað fer
úrskeiðis er sagt að menn skripli á
skötunni.
Og er þá ekki hægt að segja í ljósi
aðstæðna að veiðar á skötu séu nú í
skötulíki!