Bændablaðið - 04.06.2020, Side 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 202018
HROSS&HESTAMENNSKA
Þótt fyrirhuguðu Landsmóti hestamanna 2020, sem fram átti að fara á Hellu, hafi verið frestað til 2022, þá verður þar eigi að síður haldin vegleg sýning á úrvali kynbótahrossa og stóðhestum í
lok júní. Þátttökurétt á þessari sýningu eiga meðal annars tíu hæst dæmdu kynbótahross vorsins í öllum flokkum hryssna og stóðhesta.
Félag hrossabænda, RML, Horses of Iceland og Rangárbakkar með stórsýningu á Hellu 27. júní:
Landssýning kynbótahrossa í beinu streymi
– Áttatíu hæst dæmdu kynbótahross landsins ásamt stóðhestum með afkvæmaverðlaun
Félag hrossabænda, Ráðgjafar
miðstöð landbúnaðar ins, Horses
of Iceland og Rangár bakkar,
þjóðarleikvangs íslenska hests
ins, blása til Landssýningar kyn
bótahrossa á Gaddstaðaflötum
við Hellu laugardaginn 27. júní
og verður beint streymi frá við
burðinum.
Þátttökurétt í sýningunni eiga
tíu hæst dæmdu kynbótahross
vorsins í öllum flokkum hryssna
og stóðhesta, alls 80 bestu hross
landsins. Hrossin verða kynnt
ítarlega og verðlaunuð á grunni
dóma vorsins. Hestaáhugafólk um
víða veröld getur horft á streymið
heima í stofu og hlustað á lýsingar
á íslensku, ensku eða þýsku. Hæst
dæmdu hross sýninga vorsins
2020 munu lýsa upp tölvu- og
sjónvarpsskjái heimsbyggðar-
innar!
Sveinn Steinarsson, formaður
Félags hrossabænda, segir: „Það
er mikilvægt fyrir hrossaræktend-
ur að geta kynnt þá gripi sem hafa
verið í tamningu og þjálfun og búið
að leggja mikla vinnu í og stefnt
var með á Landsmót.“ Landsmóti
hestamanna 2020 hefur verið fre-
stað um tvö ár vegna COVID-19
faraldursins, en hæst dæmdu kyn-
bótahross landsins eru ávallt sýnd
á Landsmóti, sem haldið er annað
hvert ár.
Á Landssýningu kynbótahrossa
verða einnig afkvæmasýningar
stóðhesta, en þeir stóðhestar sem
eiga rétt á fyrstu og heiðursverð-
launum fyrir afkvæmi geta komið
fram og verða verðlaunaðir. Allir
þeir verðlaunagripir sem veittir eru
á Landsmótum í einstaklingssýn-
ingum og fyrir afkvæma hesta verða
veittir við þetta tilefni.
Þorvaldur Kristjánsson, ráðu-
nautur í hrossarækt, segir: „í
ljósi aðstæðna og niður fellingar
Lands móts er mikilvægt að veita
ræktendum og hestaeigendum
vettvang til að stefna að og kynna
sína ræktun. Þarna verða efstu
hross vorsins í hverjum flokki
heiðruð og afkvæmahestar kynnt-
ir og verðlaunaðir – þetta er afar
gott framtak. Það er nauðsynlegt
að við sameinumst öll um þennan
dag íslenska hestinum og íslenskri
hrossarækt til heiðurs og fram-
dráttar; sýna heiminum að Ísland,
upprunaland íslenska hestsins,
er sannarlega uppspretta gæða í
hrossavali.“
Vonast er til þess að hægt verði
að fylgjast með á staðnum, en það
mun taka mið af þeim samkomu-
takmörkunum sem verða þegar
að viðburðinum kemur. Nánari
dagskrá verður kynnt þegar nær
dregur.
Jelena Ohm, verkefnastjóri
Horses of Iceland, segir: „Beint
streymi frá viðburðinum er stórt
tækifæri fyrir okkur til að ná til
miklu stærri markhópa en þeirra
sem hefðu mætt á staðinn í eigin
persónu. Þannig getum við jafnvel
vakið athygli iðkenda hestaíþrótta
á öðrum hrossakynjum og sýnt
fram á gæði í íslenskri hrossarækt
og íslenskum hestaíþróttum.“
Um Horses of Iceland
Tilgangur markaðsverkefnisins
Horses of Iceland er að byggja
upp orðspor íslenska hestsins um
heim allan til að leggja grunn að
aukinni verðmætasköpun og út-
breiðslu hestsins á heimsvísu.
Íslandsstofa sér um framkvæmd
verkefnisins og starfar með verk-
efnastjórn sem skipuð er full trúum
úr hestasamfélaginu, Félagi hrossa-
bænda (FHB), Landssambandi
hestamannafélaga (LH), Félagi
tamningamanna (FT), auk útflutn-
ingsaðila og fulltrúa frá atvinnu-
vega- og nýsköpunar ráðuneyti,
mennta- og menningarmálaráðu-
neyti og Samtökum ferðaþjón-
ustunnar.
Vefsíða: www.horsesoficeland.is
Samfélagsmiðlar: Facebook,
Instagram, Twitter, Pinterest,
Tumblr
Nánari upplýsingar veitir Jelena
Ohm, verkefnastjóri Horses of
Iceland, jelena@islandsstofa.is.
Jelena Ohm, verkefnastjóri Horses
of Iceland.
Litirnir eru fjölmargir
og hægt að fá
sérblandaða hjá okkur.
HÁGÆÐA
VIÐARVÖRN FRÁ
SLIPPFÉLAGINU
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
Sími 588 8000
slippfelagid.is 2,2%
5,2%
9,1%
5,8%
19,0%
21,9%
41,9%
0,0%
5,0%
10,0%
15,0%
20,0%
25,0%
30,0%
35,0%
40,0%
45,0%
Mannlíf Viðskiptablaðið DV Stundin Morgunblaðið Fréttablaðið Bændablaðið
Prentmiðlar - meðallestur á landsbyggðinni