Bændablaðið - 04.06.2020, Qupperneq 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 202020
Fosfat, sem inniheldur frumefnið
fosfór, er nauðsynlegt öllu lífi á
jörðinni og er afar mikilvægt
við matvælaframleiðslu. Hratt
hefur hins vegar gengið á þekktar
fosfatbirgðir jarðar. Í fyrra var
varað við „fosfatkreppu“ sem
gæti haft alvarlegar afleiðingar
fyrir framleiðslu á matvælum í
heiminum.
Peningalegt virði fosfats á
heimsmarkaði er áætlað tæplega
32,6 milljarðar dollara samkvæmt
tölum á Market Study Report 27.
mars síðastliðinn. Þar er talið að
virði markaðarins muni vaxa um
3,8% á ári fram til 2026 og nemi
þá rúmum 40,6 milljörðum dollara.
Þótt allir helstu sérfræðingar á fos
fatmarkaði standi á bak við þessa
spá kann hún mögulega að sýna
vanmat á stöðunni þegar upp verður
staðið. Þann 18. maí síðastliðinn,
var á Market Watch spáð góðu gengi
í sölu á hráu fosfati (phosphorite)
á þessu ári, enda vöxtur í sölu á
áburði. Aðrir markaðssérfræðingar
halda þétt að sér spilunum og gefa
ekkert upp út fyrir sínar raðir.
Í frétt í breska blaðinu The
Guardian í september 2019 var haft
eftir vísindamönnum að án fosfats
gæti mannkynið aðeins framleitt
um helming þeirrar fæðu sem nú
er framleidd. Þar kom líka fram að
helstu fosfatframleiðslulönd heims
yrðu uppiskroppa með fosfat á
næstu 22 til 35 árum. Vegna hratt
aukinnar eftirspurnar kunni vinn
anlegar birgðir jafnvel að klárast
fyrir árið 2040. Augljóst er miðað
við þessar tölur að markaðsverð
á fosfati mun að óbreyttu hækka
gríðarlega á komandi árum og þar
með verð á áburði.
Stærsti hluti framleiðslunnar
fer í áburð
Um 83% af fosfatframleiðslu
heimsins fór á árinu 2019 í fram
leiðslu á áburði sem að mestu er
nýttur í ræktun nytjajurta. Fosfór
er einnig notaður í sprengiefni,
eldspýtur, flugelda, meindýraeitur,
tannkrem og þvottaefni og ýmislegt
fleira.
Stöðugt aukin notkun
leiðir til ófarnaðar
Reynt hefur verið að auka mat
vælaframleiðslu með stóraukinni
notkun á fosfatáburði. Þannig reyna
menn að kreista stöðugt meiri fram
leiðslugetu út úr hverjum hektara
jarðvegs og nytjaplantna með
óheyrilegri áburðargjöf. Það hefur
hins vegar haft þau áhrif að fosfat
skolast út í læki, ár og stöðuvötn
og valda þar skaða á lífríkinu. Í
rannsókn sem birt var í The Journal
Science 2015 var talað um þetta
sem einn helsta mengunarvandann
sem steðjaði að mannkyninu.
Samkvæmt tölum vísindaskrif
stofu bandarískra stjórnvalda,
(United States Geological Survey),
sem kynntar voru 2017, var áætlað
að heimsbirgðir af fosfati (Rock
Phosphate) hafi þá verið um 68
milljarðar tonna. Heimsframleiðslan
2016 var um 261 milljón tonn og
fór ört vaxandi. Miðað við að engin
framleiðsluaukning yrði hefðu fos
fórnámur heimsins átt að duga í 260
ár. Gallinn er að framleiðslan hefur
stigið með ógnarhraða frá 1946 og
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Hratt hefur gengið á fosfatbirgðir heimsins vegna stóraukinnar notkunar tilbúins áburðar í ræktun:
Skortur á fosfati gæti leitt til vandræða í
matvælaframleiðslu á komandi áratugum
– Vonir bundnar við að hægt sé að teygja lopann með vinnslu á fosfati sem finna má í mettuðum saltstöðuvötnum víða um heim
Fosfór eða „phosphorus“ er
eitt af frumefnum jarðar [P]
og er númer 15 í lotukerfinu.
Þetta efni uppgötvaðist fyrir
hreina tilviljun árið 1669 af
þýska efnafræðingnum og
kaupmanninum Hennig Brand
frá Hamborg.
Efnið finnst ekki í hreinu
ástandi á jörðinni, en er að finna
á nokkrum stöðum í námum sem
efnasambandið fosfat. Plöntur
vinna fosfat úr jarðvegi í sínu
lífsferli og því er nauðsynlegt að
bæta fosfati í jarðveg til að ná
fram skilvirkni við ræktun plantna.
Fosfat má t.d. fá úr kúamykju,
kindaskít og öðrum úrgangi dýra
en er þar í mun veikara formi en
í hreinum tilbúnum áburði sem
bændur bera á tún.
Fékk fosfór úr hlandinu en
ekkert gull
Henning Brand var í tilraunum
sínum að reyna að ná einu af
stóru markmiðum manna að búa
til gull. Brand var sannfærður um
að svarið væri mannlegt þvag, af
tveimur góðum ástæðum.
Í fyrsta lagi var gull og þvag
svipað að lit. Í öðru lagi kom
þvag úr mannslíkamanum, sem
efnafræðingar litu almennt á sem
fullkomnun sköpunarverksins.
Gerði hann tilraunir við gullfram
leiðsluna í garðskúr sínum þar
sem hann gerjaði umtalsvert
magn af hlandi. Síðan hitaði hann
afurðirnar og framkvæmdi það
sem kölluð er þurr eiming.
Lyktin af vinnslunni þótti svo
skelfileg að slíkt myndi örugglega
ekki valda minni deilum í dag en
matreiðsla á Þorláksmessuskötunni
á Íslandi. Í stað þess að fá gull úr
vinnslunni á þvaginu fékk hann
frumefnið fosfór eða P15.
Frumefnið fosfór uppgötvaðist fyrir tilviljun
Þetta málverk Joseph Wright frá árinu 1795 sýnir efnafræðing vinna
fosfór. Það gerði hann með því að gerja þvag manna. Síðan hitaði hann
afurðirnar og framkvæmdi þurra eimingu, eins og myndin sýnir, en lyktin
af vinnslunni þótti víst skelfileg.
Magadi-vatn í Kenía er mjög karbónríkt en botn þess er myndaður af eldfjallahrauni. Vatnið er salt og mjög rikt af örverum og dregur að fjölmörg dýr eins
og flamingóa og sebradýr.
Um 83% af heimframleiðslunni á fosfati fór í framleiðslu á áburði á árinu 2019.
Rautt fosfat.
Makadi-vatn er mjög salt og þegar vatnsyfirborðið lækkar vegna þurrka
myndast saltflekar sem inihalda m.a. rautt fosfat.
Ljóst fosfat-grjót. (Phosphate Rock)
Járnbrautarlest fullhlaðin af fos-
fat-grjóti í Métlaoui í Túnis.