Bændablaðið - 04.06.2020, Page 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 2020 21
sérstaklega mikið síðastliðin 15 ár
eða svo. Þess vegna gengur enn
hraðar á fosfatbirgðir en áður.
Marokkó og Vestur-Sahara
með mestu birgðirnar en
óörugga vinnslu
Áætlað er að í Marokkó og í Vestur-
Sahara séu langmestu birgðir af
fosfati í jörðu í heiminum, eða
um 50 milljarðar tonna. Gallinn er
bara að vinnslugeta á því svæði er
ekki næg, auk þess sem pólitískt
ástand er talið trufla námuvinnsl-
una. Næstmest er af fosfati í Kína,
eða 3,2 milljarðar tonna. Þá kemur
Alsír í þriðja sæti með 2,2 millj-
arða, Sýrland í fjórða sæti með 1,8
milljarða og Brasilía í fimmta sæti
með 1,7 milljarða tonna.
Mest fosfatframleiðsla
hefur verið í Kína
Þótt stærstu fosfatnámurnar séu í
Marokkó og Vestur-Sahara, eða um
70% af heimsbirgðunum, þá hefur
mesta námuvinnslan verið í Kína
undanfarin ár.
Framleiðslan í Kína dróst þó
saman árið 2018, eða úr 144 millj-
ónum tonna í 140 milljónir tonna.
Miðað við þá framleiðslu duga
fosfatbirgðir sem Kínverja eiga í
jörðu í 20 til 23 ár. Með stöðugt
aukinni eftirspurn styttist sá tími
til mikilla muna
Marokkó og Vestur-Sahara komu
svo í öðru sæti samanlagt með um
30 milljóna tonna framleiðslu árið
2018.
Minnkandi framleiðsla
í Bandaríkjunum
Þriðja stærsta námuvinnslulandið
2018 voru Bandaríkin með 27 millj-
ónir tonna og hafði framleiðslan þá
fallið þar í landi um 900.000 tonn
á milli ára.
Innan Norður-Ameríku er
mestu útfellingarnar á fosfati að
finna á Bone Valley-svæðinu í
Flórída, Soda Springs-svæðinu í
suðausturhluta Idaho og við strönd
Norður-Karólínu. Minni námur eru
staðsettar í Montana, Tennessee,
Georgíu og Suður-Karólínu.
Talið er að fosfatbirgðir Banda-
ríkjamanna með núverandi vinnslu
muni vart duga lengur en í 36 ár til
viðbótar.
Litla eyjaríkið Nauru og
nágranni hennar, Banaba-eyjar,
voru þekkt fyrir gríðarlegan fos-
fatsforða af bestu gæðum. Þar er
fosfatið nú nær uppurið.
Bergfosfat er þó einnig að
finna í Egyptalandi, Ísrael, Vestur-
Sahara, Navassa-eyju, Túnis, Tógó
og Jórdaníu.
Krafa um minna kadmíum-
innihald talið Rússum í hag
Þótt Rússland hafi einungis átt um
600 milljóna tonna birgðir af fosfati
í jörðu árið 2018, þá var það eigi að
síður fjórði stærsti framleiðandinn
á fosfati með 12,5 milljónir tonna
það ár. Hertar reglur, ekki síst í
ríkjum Evrópusambandsins, um að
dregið verði úr innihaldi kadmíums
í fosfati sem notað er í áburð virðist
hafa komið rússneskum framleið-
endum til góða, að því er segir á
vefsíðu Phosphate Investing News.
Í fimmta sæti í vinnslu á fos-
fati úr jörðu er Jórdanía með 8,8
milljónir tonna á árinu 2018. Síðan
kom Brasilía með 5,4 milljónir
tonna, Sádi-Arabía með 5,2 millj-
ónir, Egyptaland með 4,6 millj-
ónir, Ísrael með 3,9 milljónir og
samanlagt voru Víetnam og Túnis
svo með 3,3 milljónir tonna á árinu
2018.
Kannski er glæta í myrkrinu
Kannski er þó ljóstíru að finna í
myrkri þverrandi fosfatbirgðum
heimsins í nýlegri rannsókn jarð-
og geimvísindadeildar Washington-
háskóla. Lausnin gæti falist í nýt-
ingu risastórra uppþornaðra og
hálfuppþornaðra saltvatna sem
finna má í öllum sjö heimsálfunum.
Þau eru reyndar líka stundum
kölluð sódavötn, en í þeim hópi
er líka mikill fjöldi vatna sem eru
mjög mettuð af karbóni og seltu-
stigið allt að 35%.
Greint var frá þessum rann-
sóknum á heimasíðu Washington-
háskóla þann 30. desember síðast-
liðinn. Rannsóknir náðu til Mono
Lake-vatnsins í Kaliforníu, Lake
Magadi í Kenía og Lonar Lake
á Indlandi. Þessi karbónatríku
vötn styðja líf allt frá örverum til
flamingóa. Þessar lifandi verur hafa
síðan áhrif á efnafræði vatnanna
og við þetta samspil fellur til fos-
fór. Vísindamennirnir rannsökuðu
fosfórmagn í þessum karbónatríku
vötnum. Þó að nákvæmar mælingar
ráðist af árstíðum þegar sýnum var
safnað, komust vísindamennirnir
þó að því að vötnin hafi um það bil
50.000 sinnum meira fosfórmagn
en það sem finnst í sjó eða ám.
Í rannsókninni segir líka að fos-
fatmagn gæti orðið enn meira, eða
í allt að milljónföldum styrkleika
þess sem hægt er að finna í sjó.
Það gerist þegar vatn gufar upp í
þurrum árstíðum. Þetta á sér oft stað
meðfram ströndum eða í einangr-
uðum pollum sem eru aðskildir frá
meginhluta vatna.
Sjá fleiri gerðir á www.landsbjorg.is/vefverslun
Einnig má senda tölvupóst á sjukrakassi@landsbjorg.is
HEIMILIÐ
SUMARBÚSTAÐINN
VINNUSTAÐINN
ÖKUTÆKIÐ
ER SJÚKRAKASSINN Í LAGI Í ÞÍNU UMHVERFI?
Við eigum vandaða sjúkrakassa
af öllum stærðum og gerðum.
Bjóðum einnig frábæra þjónustu
á yfirferð á eldri kössum.
SKJÓÐA:
Er góð í traktorinn,
fjórhjólið, sleðann
og bílinn.
VÍS:
Hentar vel á heimilið, minni
vinnustaði og sumarbústaðinn.
Fosfór er í öllum lifandi frumum
en ekki í hreinu formi í náttúr
unni. Hann er mjög hvarfgjarn,
á sér margar birtingarmyndir og
er nauðsynlegur öllum lífverum.
Fosfór gefur frá sér dauft ljós er
hann binst við súrefni.
Orðið fosfór er komið úr
grísku, og þýðir í raun ljósberi
og er samsett úr orðunum phôs
sem þýðir „ljós“, og phoros
sem þýðir „sá sem ber, - þ.e.a.s.
ljósberi. Forn-Grikkir kölluðu
reikistjörnuna Venus fosforos.
Ríflega 80% af fosfór, eða öllu
heldur fosfati, fer í framleiðslu á
áburði sem að mestu er nýttur í
ræktun nytjajurta og í dýrafóður.
Fosfór er einnig notaður í
sprengi efni, eldspýtur, flugelda,
meindýraeitur, tannkrem og
þvottaefni. Hvítur fosfór er
vaxkennt efni við herbergishita
sem glóir í myrkri. Snerting við
húð getur valdið alvarlegum
brunasárum.
Brúna fosfathimnan á
eldspýtu stokkunum inniheldur
fosfór. Þegar eldspýtu með
brennistein á endanum er strokið
við fosfórhimnuna kviknar eldur.
Fosfórsprengjur hafa þann
eiginleika að mynda gríðarlegan
hita og eld sem ekki er hægt að
slökkva með vatni eða öðrum
slökkviefnum.
Fosfóráburður er oft notaður
sem sprengiefni, líka til góðra verka
meðal annars við jarðgangagerð
til að drýgja dínamít. Fosfat er
líka notað í margvíslega aðra
iðnaðarframleiðslu eins og
undraefnið „Black phosohrus“ til
að betrumbæta ljóstækni í tölvum.
Fosfór í öllum lifandi frumum
Fosfór er ekki bara notaður til góðs, heldur líka til djöfullegra verka. Hér er
verið að sprengja fosfórsprengjur yfir Mósúlborg í Írak. Fosfórsprengjur
hafa þann eiginleika að mynda gríðarlegan hita og eld sem ekki er hægt
að slökkva með vatni eða öðrum slökkviefnum. Afleiðingarnar fyrir fólk
sem fær slíkt á sig eru skelfilegar.
Brúna röndin á eldspýtustokkum
er úr fosfór og ef brennisteini er
strokið yfir hana kviknar eldur.
Fosfatnáma í Georgíuríki í Bandaríkjunum.
STARFSKRAFTUR VIÐ
SKÓLABÚ HÁSKÓLANS
Laust er til umsóknar fullt starf aðstoðarmanns á skólabúi
við Hestafræðideild Háskólans á Hólum. Hestafræðideild
háskólans veitir fagmenntun á sviði hestafræða, tamn-
inga, reiðmennsku og reiðkennslu og vinnur að þróun
og nýsköpun fræðasviðsins í rannsóknastarfi. Hólar eru
fjölskylduvænn staður og á staðnum er leik- og grunnskóli.
STARFSSVIÐ
Umhirða hesta og bústörf.
Almennt viðhald.
MENNTUNAR- OG HÆFNIKRÖFUR
Reynsla af umhirðu hesta og almennum bústörfum æskileg.
Aukin ökuréttindi og iðnmenntun kostur.
Góð hæfni í mannlegum samskiptum og samvinnu.
Um er að ræða 100% stöðu. Launakjör eru skv. kjarasamn-
ingi fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttar-
félags. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti
lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Umsóknarfrestur um starfið er til 19. júní 2020 og er æski-
legt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Vinsamlega sendið umsóknir ásamt ferilsskrá og stað-
festingu á menntun til Háskólans á Hólum á netfangið
umsoknir@holar.is, merkt skólabú. Nánari upplýsingar
veita Sveinn Ragnarsson deildarstjóri í síma 861 1128 og
Eysteinn Steingrímsson bústjóri í síma 898 6648. Athygli
er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því
að umsóknarfrestur rennur út.
Öllum umsóknum verður
svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
Bænda
18. júní