Bændablaðið - 04.06.2020, Blaðsíða 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 202022
Kynningarfundir um viðskipta
hraðalinn Til sjávar og sveita
– Aðstoð við matarfrumkvöðla að koma verkefnum sínum í framkvæmd
Fyrsti kynningarfundur
viðskipta hraðalsins Til sjávar
og sveita var haldinn í Nettó
Mjódd, Þönglabakka 1, þriðju-
daginn 26. maí. Hraðallinn er
hugsaður sem aðstoð fyrir
matarfrumkvöðla, að koma ver-
kefnum sínum hratt og örugg-
lega í framkvæmd.
Umsóknarfrestur um þátt töku
í hraðlinum er til og með 15. júní
næstkomandi en í viðskiptahraðl-
inum, sem er í umsjón Icelandic
Startups, er leitast við að draga
fram nýjar lausnir í landbúnaði og
sjávarútvegi með áherslu á fjöl-
breytta nýtingu hráefna víðs vegar
um landið, allan ársins hring.
Allt að tíu fyrirtæki eru valin
til þátttöku í tíu vikna viðskipta-
hraðal þar sem þau fá aðstoð frá
reyndum frumkvöðlum, fjárfest-
um og öðrum sérfræðingum við
að þróa viðskiptahugmyndir sínar.
Hvatt til nýsköpunar og
aðstoð við nýtingu tækifæra
Markmiðið er að hvetja til nýsköp-
unar, aðstoða frumkvöðla við að
byggja upp næstu kynslóð fyrir-
tækja og varpa ljósi á þau tækifæri
sem felast í sjálfbærri nýtingu auð-
linda á Íslandi. Viðskiptahraðallinn
býður upp á metnaðarfullan vett-
vang til vöruþróunar fyrir nýjar
lausnir í matvælaiðnaði og tengdum
greinum þar sem sérstök áhersla
verður lögð á aukinn þátt hönnunar.
Þá mun hraðallinn einnig verða
vettvangur fyrir þróun tæknilausna
á sviði smásölu. Viðskiptahraðlar
eru öflugt tæki til að styrkja og bæta
viðskiptahugmynd, efla tengslanet
og jafnvel koma fyrirtækinu á
kortið.
Fundir á Ísafirði og Selfossi
Fleiri kynningarfundir eru í kjöl-
farið haldnir á lands byggðinni, á
morgun, 5. júní, í Vestfjarðarstofu
á Ísafirði frá 15 til 17 og 8. júní
í Fjölheimum á Selfossi, einnig
frá 15 til 17.
Þegar hafa verið haldnir
kynningarfundir á Hvanneyri,
Egilsstöðum og Akureyri.
Verkefnið er sem fyrr segir í
umsjón Icelandic Startups, í sam-
starfi við Íslenska sjávar klasann
með stuðningi Matarauðs Íslands,
Nettó, Landbúnaðar klasans og
sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðuneytisins. /smh
Hópurinn sem stóð að kynningarfundinum í Mjódd. Myndir / Til sjávar og sveita
Gestir skoða umbúðirnar á Beef Jerky, sem framleitt er af fyrirtækinu Feed
the Viking – sem fór í gegnum viðskiptahraðalinn á síðasta ári.
Ísland aðili að norrænu samkomulagi um græna orku:
Á að knýja endurreisn eftir COVID19
Þórdís Kolbrún Reykfjörð
Gylfadóttir ferðamála-,
iðnaðar- og nýsköpun-
arráðherra tók um miðja
síðustu viku þátt í fjarfundi
norrænu orkumálaráðherr-
anna þar sem samþykkt var
stefnumótun um að sjálf-
bærar orkulausnir verði
drifkraftur í endurreisn
hagskerfisins eftir kórónu-
veirufaraldurinn.
Í tilkynningu úr atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðu-
neytinu segir að ráðherrarnir
hafi verið sammála um að
orkugeirinn væri vel undirbú-
inn undir þær áskoranir sem
blasi við í kjölfar faraldursins.
Norrænu ríkin séu í forystu á
sviði sjálfbærrar orkutækni og
orkugeirinn er meðal þeirra geira
þar sem vaxtar- og útflutnings-
möguleikar eru hvað mestir.
Mikilvægi orkugeirans
Ráðherrarnir lögðu áherslu á að
orkugeirinn léki lykilhlutverk
varðandi græna þróun í kjölfar
COVID-19. Lagt er upp með að
byggja eigi endurreisnaráætlunina
á evrópska græna sjálfbærniverk-
efninu Green Deal, sem snýst um
það hvernig samþætta megi endur-
nýjanlega orku yfir fleiri svið; sam-
göngur, iðnað og hitun.
Norrænn raforkumarkaður
„Orkumálaráðherrarnir samþykktu
á fundi sínum yfirlýsingu þar sem
dregin er upp stefnumótun um
norrænt raforkusamstarf til fram-
tíðar og einnig má líta á sem verk-
færi fyrir græna endurreisn eftir
COVID-19.
Í yfirlýsingunni er meðal annars
bent á aukna aðlögun sjálfbærrar orku
í öðrum geirum, eins og sam-
göngum og iðnaði, aukið samstarf
um vindorkuframleiðslu á hafi úti
í Eystrasalti, náið samstarf um
rannsóknir og nýsköpun ásamt
gegnsærri nálgun á skipulagi og
stækkun raforkunetsins á hverj-
um stað fyrir sig,“ segir í tilkynn-
ingu úr ráðuneytinu.
Haft er eftir Þórdísi
Kolbrúnu Reykfjörð Gylfa-
dóttur ferðamála-, iðnaðar- og
nýsköpunarráðherra að líkja
megi ástandinu nú við tíma
olíukreppunnar fyrir 50 árum
– þegar hitaveituvæðing átti sér
stað á Íslandi. „Það voru orku-
skipti þess tíma. Sú ákvörðun
færði þjóðinni efnahagslegan,
umhverfislegan og samfélags-
legan ábata og mun gera áfram.
Í því uppbyggingarstarfi sem blasir
við okkur í dag er ekki síður fullt af
tækifærum á sviði grænnar orku og
nýsköpunar. Framleiðsla rafelds-
neytis frá glatvarma og koldíoxíð,
og framleiðsla metanóls og vetnis
frá afurðum jarðvarmavirkjana, eru
gott dæmi um slík græn verkefni
framtíðarinnar. Okkar endurnýjan-
lega orka og nýsköpun henni tengd
er, nú eins og áður, uppspretta
nýrra tækifæra í endurreisninni
sem er fram undan,“ segir hún.
/smh
LÍF&STARF
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Matvælaframleiðsla:
Offramboð og verðhrun
á kasjúhnetum
Áhrif COVID-19 eru margvísleg
og meðal þeirra er offramboð
og verðlækkun á kasjúhnetum á
heimsmarkaði. Verð á hnetunum
er í sögulegu lágmarki.
Undanfarnar vikur hafa safnast
upp talsverðar birgðir af kasjú-
hnetum hjá hnetubændum í Gana
og Nígeríu vegna vandræða við
að koma hnetunum á markað.
Samdráttur í flutningum og hækk-
að verð á frakt hefur leitt til þess
að bændurnir sitja upp með hnet-
urnar. Þá hafa hnetuvinnslustöðvar
í Víetnam og á Indlandi víða lokað
vegna COVID-19. Auk þess hafa
Kína og Bandaríki Norður-Ameríku,
sem neyta mikið af kasjúhnetum,
sett hömlur á innflutning þeirra.
/VH
Heimsmarkaðsverð á kasjúhnetum
er í sögulegu lágmarki.
UTAN ÚR HEIMI
NYTJAR HAFSINS
Árið 2018 hóf Hafrannsókna-
stofnun í samvinnu við Biopol
á Skagaströnd og grænlensku
náttúrufræðistofnunina (GINR)
að merkja hrognkelsi á fæðuslóð
á víðáttumiklu hafsvæði í
Norðaustur-Atlantshafi.
Rannsóknir síðustu ára hafa
skilað margs konar þekkingu
um hrygningu hrognkelsa og far
þeirra á grunnslóð en skortur er á
upplýsingum um lífshætti þeirra
áður en þau koma að ströndum
Íslands til hrygningar.
Nær samfleytt um allt
Norðaustur-Atlantshaf
Á vefsíðu Hafrannsókna stofn unar
segir að í alþjóðlegum uppsjávar-
rannsóknaleiðangri, sem beinist
einkum að makríl, sýni yfirborðs-
tog með flotvörpu að hrognkelsi
er að finna samfleytt um nær allt
Norðaustur-Atlantshaf, ef frá er
skilið svæðið suður af Íslandi. Ekki
er hins vegar vitað hvort hrognkelsi
í Noregshafi hrygna við Ísland eða
Noreg.
Skoða far hrognkelsa
Markmið merkinga er að greina
far hrognkelsa, stofnsamsetningu,
vaxtarhraða og hversu lengi þau
halda sig á fæðuslóð áður en þau skila
sér til hrygningar. Þá er mögulegt að
merkingarnar og aðrar niðurstöður
muni nýtast til að meta nýliðun og
þannig gera kleift að spá fyrir um
stærð næstu hrygningargöngu.
Sýnir fæðuslóð
Í heild voru 761 hrognkelsi merkt
árin 2018 og 2019. Alls 7 fiskar hafa
verið endurheimtir, 5 grásleppur og
2 rauðmagar. Eitt hrognkelsanna
endurheimtist fjær merkingastað
en áður hefur sést. Það var merkt í
suðurhluta Irmingerhafs og endur-
heimtist við Langanes, í 1.230 km
fjarlægð. Fyrra metið var 587 km.
Þessar frumniðurstöður sýna að
fæðuslóð grásleppu sem hrygnir
við Ísland er bæði í Irmingerhafi
og Íslandshafi.
Til að auka umfang þessara
rannsókna er vonast til þess að
Norðmenn taki þátt í þeim frá og
með árinu 2021.
5.000 krónur fyrir merkið
Rannsóknin byggir á því að sjó-
menn skili inn merktum grásleppum.
Þóknun upp á 5.000 krónur er veitt
fyrir að skila inn heilum fiski með
merki Hafrannsóknastofnunar eða
Biopol. /VH
Hafrannsóknastofnun:
Endurheimtur á merktu
hrognkelsi
Merkingastaðir, rauðir hringir, og endurheimtustaðir, appelsínugulir hringir,
sjö hrognkelsa frá merkingum 2018 og 2019. Mynd / Hafrannsóknastofnun
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300