Bændablaðið - 04.06.2020, Qupperneq 27
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 2020 27
Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Óseyrarbraut 12 | 220 Hafnarfirði
Hafðu
samband
568 0100
www.stolpigamar.is
Gámurinn
er þarfaþing
Þurrgámar
Hitastýrðir gámar
Geymslugámar
Einangraðir gámar
Fleti og tankgámar
Gámar með hliðaropnun
Til leigu eða sölu: Gámahús og salernishús
Færanleg starfsmannaðstaða
Bos gámar og skemmur
UTAN ÚR HEIMI
Kórónasmit frá farandverkafólki
í þýskum sláturhúsum
Þýski sláturhúsageirinn er nú
kominn í kastljós fjölmiðla eftir
að um fjórðungur starfsmanna
hjá Müller Fleisch´s sláturhús-
inu í Baden-Würtenber greindust
smitaðir af kórónavírus.
Greint var frá þessu á vefsíðu
Global Meat í morgun (fimmtudag
14. maí), en þar kemur fram að
svæðisstjórn í Enzkreis hafi upp-
lýst að 400 af 1.100 starfsmönnum
sláturhússins hafi greinst jákvæðir af
COVID-19 eftir sýnatöku. Um 150
hafa náð sér að fullu og eru mættir
aftur til starfa, en þurfa samt enn
að lúta takmörkunum samkvæmt
einangrun. Er þeim einungis heimilt
að ferðast á milli heimilis og vinnu-
staðar. Forsvarsmenn sláturhússins
hafa samþykkt að taka upp skipulag
samkvæmt faraldursviðbrögðum 2
nú fyrri vikulokin og innleiða það
eins fljótt og auðið er.
Smit hefur fundist víða
Müller Fleisch´s eru ekki einu slát-
urhúsin í Þýskalandi sem eru að
glíma við smit, en mikið er um er-
lenda farandverkamenn sem stoppa
stutt í þessari grein.
Stjórnsýsludómstóll í Münster
gaf út skipun um að Westleisch
kjötvinnslunni í Coesfeld yrði lokað
eftir að hafnað var beiðni fyrir-
tækisins um að opna að nýju eftir
tímabundna lokun vegna COVID-
19. Gefin var skipun um að loka
kjötvinnslunni í kjölfar þess að 171
starfsmaður greindist jákvæður fyrir
smiti af völdum COVID-19. Búið
er að taka sýni af 952 starfsmönn-
um fyrirtækisins og hafa 461 reynst
smitaður.
Stjórnsýsludómstóll
gerir athugasemdir
Smittíðnin í þýskum slátur húsum
hefur vakið umræður um aðbúnað
starfsfólks í slátur húsum og kjöt-
vinnslum. Stjórnsýslu dómstóllinn í
Münster hefur gert athugasemdir við
að sláturhúsin setji gróðasjónarmið
ofar hagsmunum starfsmanna. Er
vandinn meðal annars sagður liggja
í því að mikið rót sé á starfsfólki og
stöðugt verið að skipta út innfluttu
verkafólki sem stoppi stutt. Vegna
þess sé vaxandi hætta á nýjum far-
aldri eftir sex mánuði.
Haft er eftir Bastian Rosenau,
héraðsstjóra í Enzkreis, að finna
þyrfti langtímalausnir í starfsmanna-
haldi sláturhúsanna til að minnka
líkur á að faraldurinn blossi upp að
nýju.
„Við verðum að hugsa um sjálf-
bærni og langtímaúrræði,“ sagði
Rosenau. /HKr.
COVID-19 smit meðal farandverkafólks sem starfar í þýskum sláturhúsum
og kjötvinnslum hefur valdið vandræðum.
Lokað hjá Danish Crown í Skærbæk
vegna smits í Þýskalandi
Svínasláturhúsi Danish Crown í
Skærbæk á Suður-Jótlandi var
lokað tímabundið um miðjan
maí vegna kórónaveirusmits sem
komið hafði upp hjá Westcrown,
sem jafnframt er helsti viðskipta-
vinur kjötvinnslunnar.
Lokun svínakjötsvinnslunnar
í Danmörku kemur í kjölfar lok-
ana á fjölmörgum sláturhúsum og
úrbeiningastöðvum í Þýskalandi
þar sem fjöldi farandverkamanna
hafi sýkst af COVID-19. Eitt
þeirra fyrirtækja, þar sem fjöl-
margir starfsmenn reyndust vera
smitaðir var Westcrown, sem er
sameignarfélag Danish Croen og
German Westfleisch. Það fyrirtæki
er í Dissen í Norður-Rín-Westphalia
ríki þar sem ákveðið var að taka
sýni hjá öllum starfsmönnum slát-
urhúsa.
Fyrir fjórum vikum hafði sýni
verið tekið hjá 280 starfsmönnum
Westcrown og reyndust 90 þeirra
vera smitaðir af COVID-19. Var fyr-
irtækinu lokað í kjölfarið og vegna
mikilla viðskipta þess við Danish
Crown í Skærbæk í Danmörku var
ákveðið að loka þar líka þótt þar
væri ekki vitað um smit. Reyndu
forsvarsmenn danska fyrirtækisins
að leita eftir nýjum viðskiptavinum
vegna lokunar hjá þeim þýska.
/HKr.
Svínasláturhús Danish Crown í Skærbæk á Suður-Jótlandi þurfti að loka
þegar lokað var hjá stærsta viðskiptavininum í Þýskalandi. Mynd /Danish Crown
Gylfaflöt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200 • www.velfang.is • Frostagata 2a • 600 Akureyri • www.claas.is
VERKIN TALA
F
R
U
M
-
w
w
w
.f
ru
m
.is
Þetta snýst allt um þig…
Nýja CLAAS – ARION 400 vélin er alveg eins og
þú vilt hafa hana.
Hver dagur færir þér ný verkefni og það ert þú sem þarft að takast á við þau.
Þegar þú kaupir dráttarvél þá þarf hún að vera alveg eins og þú vilt hafa hana.
Þú vilt dráttarvél sem gerir einmitt það sem þú vilt að hún geri og að hún uppfylli allar
þínar kröfur og væntingar. Hvorki meira og örugglega ekki minna.
Þess vegna vilt þú ekki bara næstu dráttarvél sem er til á lager.
Þú færð nýju ARION 400 dráttarvélina nákvæmlega eins og þú vilt hafa hana
ARION 460 / 450 / 440 / 430 / 420 / 410 66–103 kW (90–140 hö). www.arion400.claas.com
Hefur þú brennandi áhuga á vélum og vilt vinna í lifandi og
skemm� legu umhverfi ? Vélfang leitar að öfl ugum og
ábyrgum iðger amanni í fullt starf á vélaverkstæðið okkar.
Nánari upplýsingar veita Eyjólfur 8400 820
Umsóknir sendist á eyjolfur@velfang.is
Vélfang ehf. er sölu- og þjónustuaði l i á sviði v innu- og landbúnaðarvéla.
Vélfang ehf. var val ið Framúrskarandi fyr i rtæki 2015, 2016, 2017, 2018 og 2019.
Hjá Vélfangi starfar hópur fólks sem hefur það að markmiði
að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu.
Hæfniskröfur:
• Reynsla af vélaviðgerðum nauðsynleg.
• Menntun við hæfi kostur.
• Rík þjónustulund, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum.
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Gott með að vinna í teymi.
Viðkomandi þarf að geta hafi ð störf sem allra fyrst.
Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Gylfaflöt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200 • velfang.is
Óseyri 8 • 603 Akureyri • velfang@velfang.is
-VERKIN TALA
Viðgerðarmaður á vélaverkstæði
Vélfangs á Akureyri
• Góð kjör í boði fyrir réttan aðila