Bændablaðið - 04.06.2020, Síða 33
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 2020 33
Díana Jóhannsdóttir, sviðs stjóri
atvinnusviðs hjá Vestfjarða stofu,
segir mikinn hug í ferðaþjónustu-
aðilum á Vest fjörðum varðandi
móttöku ferðamanna í sumar.
Hún segir stöðuna þó nokkuð
sérstaka þar sem litlar líkur séu á
að erlendir ferðamenn skili sér til
landsins í sumar.
Margir eru að skoða hvaða
möguleika sé hægt að setja saman
fyrir innanlandsmarkað. Sum þjón-
usta hentar betur fyrir Íslendinga
en útlendinga. Samt er töluverð
jákvæðni í fólki varðandi erlendu
ferðamennina þar sem það hafa
verið að berast töluverður fjöldi
af fyrirspurnum. Fólk er að reyna
að fresta ferðum sínum lengra inn
í sumarið. Margt fólk bindur enn
vonir við að geta haldið sig við fyr-
irhugaða Íslandsferð.“
Skemmtiferðaskip halda enn
inni bókunum fyrir ágúst
Hún nefnir sem dæmi að
skemmtiferðaskipin, sem hafi verið
mjög mikilvæg fyrir ferðaþjónustu-
fyrirtækin á Vestfjörðum undanfar-
in ár, haldi enn opnum bókunum til
Vestfjarða í ágúst. Hún telur þó ekki
mjög raunsætt að reikna með þeim
þar sem erfiðlega gangi að bóka í
skipin vegna neikvæðrar reynslu
fólks sem upplifa þurfti kyrrsetningu
um borð í mörgum skipum vegna
COVID-19.
Veðrið hefur oft úrslitaáhrif
– Nú virðist vera töluverður áhugi á
meðal Íslendinga um að ferðast til
Vestfjarða, er sá áhugi ekki að skila
sér til ykkar?
„Jú, en það verður mjög hörð
samkeppni um þessa ferðamenn úti
um allt land. Á endanum held ég að
það verði veðrið sem stýrir því mjög
mikið hvert Íslendingarnir eru tilbún-
ir að fara.“
Gott veður síðustu tvö sumur
Díana segir að síðustu tvö sumur hafi
veður verið mjög gott til ferðalaga
á Vestfjörðum og vonast hún til að
lukkan verði líka með þeim þetta
sumarið.
Reyndar er veður oft mjög breyti-
legt innan Vestfjarða og þó veður-
stofukortið sýni ekkert sérstakt veður,
þá getur verið glampandi sól og logn
víða inni á fjörðum. Oft hefur verið
kvartað yfir opinberum hitamæling-
um á mæli eins og í Bolungarvík,
sem er oft í norðaustlægum áttum
að sýna nokkrum gráðum lægra hita-
stig en raunin er, t.d. inni á Ísafirði
(Skutulsfirði) eða innar í Djúpinu og
í fjörðum þar fyrir vestan.
Margt að skoða
Margvísleg upplifun stendur til boða
á Vestfjörðum, eins og góðar sund-
laugar, áhugaverð söfn, fjölbreyttar
skoðunarferðir, gönguferðir og sigl-
ingar. Það má t.d. nefna Sjóferðir
Hafsteins og Kiddýar á Ísafirði,
sem flytja fólk á stórum og öfl-
ugum bátum m.a. í eyjuna Vigur í
Ísafjarðardjúpi og í hina mjög ein-
stöku ferðaparadís í friðlandinu á
Hornströndum.
Sjávarþorpin í hverjum firði
heilla líka marga og auk fuglabjarga
á Hornströndum er hægt að aka alla
leið að Látrabjargi á sunnanverðum
Vestfjörðum. Það sem hrífur marga
Íslendinga sem ferðast á það svæði
eru hvítu sandarnir sem þar eru í
hverri vík og engu líkara en að fólk
sé komið á strendur við Miðjarðarhaf
eða á Kanarí. /HKr.
Allt til girðingarvinnu
STAURAR
STRAUMGJAFAR
NET
HLIÐ
GADDAVÍR
ÞANVÍR
VÍRATENGI
STREKKJARAR
EINANGRARAR o.m.fl.
REYKJAVÍK
LYNGHÁLSI 3
SÍMI: 540 1125
LÍFLAND SÖLUDEILD
BRÚARVOGI 1-3
SÍMI: 540 1100
lifland@lifland.is
AKUREYRI
ÓSEYRI 1
SÍMI: 540 1150
BORGARNESI
BORGARBRAUT 55
SÍMI: 540 1154
BLÖNDUÓSI
EFSTUBRAUT 1
SÍMI: 540 1155
HVOLSVELLI
ORMSVELLI 5
SÍMI: 487 8888
Kíktu á vefverslun okkar og
skoðaðu úrvalið eða hafðu
samband við söluráðgjafa í
síma 540 1100 til þess að
fá tilboð í þína girðingu.
Myrkholt · Bláskógarbyggð
Sími 486 8757
gljasteinn@gljasteinn.is · www.gljasteinn.is
Gíslaskáli
Árbúðir
Fremstaver
Skálinn
Áningastaðir
á Kili
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Ferðasumarið 2020:
Bjartsýni og jákvæðni
ríkir á Vestfjörðum
Eyjan Vigur í Ísafjarðardjúpi. Mynd / HKr.
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
Við bjóðum upp á allar stærðir
og gerðir af Ingersoll Rand loftpressum.
Mjög hljóðlátar og einfaldar í viðhaldi.
Bjóðum upp á þjónustusamninga
og leggjum mikla áherslu á að veita
góða viðgerðar- og varahlutaþjónustu.
Gerðu kröfur — hafðu samband við
Gunnar í síma 590 5135 eða sendu línu
á gma@klettur.is og kynntu þér þína
möguleika.
Loftpressur
í hæsta
gæðaflokki