Bændablaðið - 04.06.2020, Page 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 202034
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Frá árinu 2006 hefur fyrirtækið
Útilegukortið ehf. gefið út sam-
nefnt aðgangskort að tjaldstæð-
um á Íslandi sem það hefur gert
samninga við. Þetta hefur mælst
afar vel fyrir og hafa mörg verka-
lýðsfélög niðurgreitt slík kort til
sinna félagsmanna.
Markmiðið með stofnun Útilegu
kortsins er að gefa íslenskum og
erlendum ferðamönnum kost á því
að ferðast um Ísland á ódýran og
hagkvæman hátt með gistingu á
sérvöldum tjaldsvæðum um landið.
Útilegukortið gildir á viðkomandi
tjaldsvæðum á meðan tjaldsvæðin
eru opin fyrir almenning út árið
2020 en þó ekki lengur en til 15.
september. Útilegukortið kostar
fullu verði aðeins 19.900 krónur.
Niðurgreiðslur verkalýðsfélaga
eru misjafnar en nema í sumum
tilfellum fast að helmingi þessa
gjalds.
Kortið veitir tveim fullorðnum
og fjórum börnum undir 16 ára
aldri fría gistingu á tjaldsvæðum
samstarfsaðila Útilegukortsins í allt
að 28 gistinætur á hverju starfsári
þess. Að vísu þurfa gestir að greiða
sérstaklega gistináttagjald og fyrir
rafmagn á tjaldstæðum ef það er
notað.
Engin takmörk eru fyrir því hve
oft má koma á hvert tjaldsvæði innan
gistináttanna 28 en einungis má
gista í fjórar nætur samfellt í hvert
skipti. Útilegukortið gildir fyrir
tjöld, tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi
og húsbíla.
Útilegukortið eykur viðskipti í
viðkomandi sveitarfélagi
Útilegukortið hefur greinilega haft
mikil áhrif á ferðir fólks um landið.
Greinilegt er að þau tjaldstæði sem
eru skráð á Útilegukortið eru oft
ásetnari en önnur. Því fjær höfuð
borginni sem tjaldsvæðin eru því
mikilvægara virðist vera að þau
bjóði fólki upp á að það geti þar nýtt
Útilegukortið. Það dregur að fólk
sem annars kæmi síður eða alls ekki.
Sveitarfélög sem oft reka þessi
tjaldstæði sjá því augljósan hag í
að taka þátt í þessu, jafnvel þótt
beinar tekjur fyrir leigu á hverju
tjaldstæði kunni að vera minni fyrir
hvern einstakling en ella. Ástæðan
er einföld. Aukin aðsókn að tjald
stæðum dregur fólk að þeim þéttbýl
iskjörnum sem þar eru í nágrenninu.
Ferðafólk sem kemur á þessi tjald
stæði er að sækjast eftir upplifun og
það þarf líka að nærast. Koma þess á
tjaldstæðin skapar því umtalsverða
veltu í þeim samfélögum þar sem
þau eru. Þetta hafa sveitarfélög í
auknum mæli verið að átta sig á og
má greinilega sjá þess merki víða
um land. /HKr.
Útilegukortið
• Þórisstaðir
• Varmaland
• Traðir, á Eyrunum
• Grundarfjörður
VESTURLAND
• Grettislaug á Reykhólum
• Drangsnes
• Flókalundur
• Patreksfjörður
• Tungudalur (Ísafjörður)
• Bolungarvík
VESTFIRÐIR
• Hvammstangi
• Skagaströnd
• Sauðárkrókur
• Siglufjörður
• Ólafsfjörður
• Lónsá
• Heiðarbær
• Kópasker
• Raufarhöfn
• Þórshöfn
• Möðrudalur – Fjalladýrð
NORÐURLAND
• Seyðisfjörður
• Reyðarfjörður
• Eskifjörður
• Norðfjörður
• Fáskrúðsfjörður
• Stöðvarfjörður
AUSTURLAND
• Kleifarmörk
• Langbrók
• Álfaskeið
• Skjól
• Hella Gaddstaðaflatir
• Stokkseyri
• Þorlákshöfn
• Grindavík
• Sandgerði
SUÐURLAND
Ísafjörður. Tjaldstæðið í Tungudal í Skutulsfirði. Mynd / HKr.
Útilífsmiðstöð skáta við Hamra á Akureyri:
Brýnt að hraða framkvæmdum við nýjar tjaldflatir
– Fjölgun ferðamanna og breyttur ferðamáti skapar álag á tjaldflatir
Fjölgun ferðamanna, breyttur
ferðamáti og ferðatími tjaldgesta
sem og mikið álag á tjaldflatir á
útilífsmiðstöðinni að Hömrum
við Akureyri, ásamt lokun tjald-
svæðis við Þórunnarstræti, leiðir
til þess að mjög mikilvægt er að
framkvæmdum við tvær nýjar
tjaldflatir norðan Hamra verði
hraðað sem kostur er.
Aðalfundur Hamra, útilífsmið
stöðvar skáta á Akureyri, var
haldinn á dögunum og þar var
ítrekuð beiðni við Akureyrarbæ
um að hraða vinnu við stækkun
svæðisins á Hömrum til norð
urs. Skorað er á bæjaryfirvöld að
tryggja fjármagn til verksins í ár
og næstu ár eftir því sem fram
kvæmdum miðar áfram.
Þá var á fundinum einnig rætt
um samning um uppbyggingu og eignarhald. Í greinargerð segir að í tilefni af því að liðin séu 20
ár frá því að formleg starfsemi
útilífs miðstöðvarinnar að Hömr
um hófst sé skorað enn og aftur
á bæjaryfirvöld að ganga til
samninga við skátahreyfinguna um
uppbyggingu útilífsmiðstöðvar.
Starfsemin eykst ár frá ári og
vonast eftir nýjum samningi
Árið 1998 var gerður rekstrar
samningur á milli skáta félagsins
Klakks og Akureyrar bæjar um
rekstur tjaldsvæðis Akureyrar. Í
samningnum er m.a. tekið fram
að litið sé á samninginn sem fyrsta
skrefið að samningi milli félagsins
og bæjarins um uppbyggingu
nýrra tjaldsvæða að Hömrum.
Svæðið að Hömrum hafi verið
formlega opnað árið 2000 og hafi
starfsemin aukist ár frá ári og er
tjaldsvæðið nú eitt af fjölsóttustu
og vinsælustu tjaldsvæðum
landsins með fyrirmyndar aðstöðu
og þjónustu, sem er í boði allt árið.
Árið 2008 var gerður nýr
rekstrar samningur um tjaldsvæðin
þar sem m.a. var kveðið á um að
samningurinn væri skref í átt að
frekari samningi um uppbyggingu,
rekstur og eignarhald framkvæmda
á svæðinu. Samningur þessi var til
5 ára og hefur verið endurnýjaður
óbreyttur síðan til tveggja ára í
senn. Við gerð rekstrar samningsins
2008 var endanlegri samningagerð
um uppbyggingu og eignarhald
slegið á frest.
„Það er von okkar að nú verði
gengið til samninga að nýju
og þeim lokið með undirritun
heildarsamnings,“ segir í tillög
unni. /MÞÞ
Svæðið að Hömrum Í Eyjafirði var formlega opnað árið 2000 og hefur starf-
semin aukist ár frá ári. Nú er tjaldsvæðið eitt af fjölsóttustu og vinsælustu
tjaldsvæðum landsins.