Bændablaðið - 04.06.2020, Blaðsíða 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 202036
Ferðaskrifstofan Travel East
Iceland býður í sumar upp á lúxus
gönguferðir í Borgarfirði eystri
í samstarfi við Ferðaþjónustuna
Álfheima. Boðið er upp á þriggja
og fimm daga ferðir þar sem dvalið
er á hóteli Álfheima. Auk þess sem
boðið er upp á dagsferðir.
Arngrímur Viðar Ásgeirsson,
skipuleggjandi ferðanna, segir að
ferðirnar séu hugsaðar með þarfir
ferðaþyrstra Íslendinga í huga. „Það
er mikil aðsókn. Við erum komin með
um 60 bókanir, en það er nóg laust
því við erum með um 30 brottfarir frá
20. júní fram í miðjan ágúst. Eins og
víða annars staðar hurfu allar erlend-
ar bókanir út vegna COVD-19 og því
nóg pláss fyrir Íslendinga á hótelinu
sem er með 32 herbergi.“
Víknaslóðir
„Dagsferðirnar eru um Víknaslóðir
sem er þekkt göngusvæði frá
Héraðsflóa til Seyðisfjarðar. Við
einbeitum okkur að norðurhlutanum
með Stórurð, Stapavík, Brúnavík,
Breiðavík og Dimmadal undir
Dyrfjöllum, en þar sem fjölbreytnin
á svæðinu er mikil er af nógu að
taka og sveigjanleikinn mikill þegar
dvalið er á sama næturstað allan tím-
ann.“
12 til 18 kílómetra gönguleiðir
Arngrímur segir að gönguleiðirnar
séu valdar í samráði við heimamenn
og að þær séu allar greiðfærar og
12 til 18 kílómetra langar. Hann
segir að bætt hafi verið úr öllum að-
búnaði og þjónustu við ferðamenn
á Borgarfirði eystri undanfarin ár.
„Uppbygging í gistingu og veitingum
hefur verið mikil. Komin er góð
aðstaða til að slaka á eftir göngu-
daga í heitum pottum og gufubaði í
Musteri Spa og þá má ekki gleyma
því að búið er að malbika veginn um
Njarðvíkurskriður og verið að ljúka
við malbik á Vatnsskarði eystri, fjall-
vegi Borgfirðinga.
Þá hafa einhverjir verið að grínast
með það að fyrir Íslendinga sem vilja
fara í langferð þá sé Borgarfjörður
eystri málið því lengra er ekki hægt
að komast frá suðvesturhorninu í kíló-
metrum. Þetta er um 10 tíma ferðalag
ef það á að fara á einum degi.
Friðsæld og fegurð
Að sögn Arngríms hefur Borgarfjörður
eystri notið aukinna vinsælda síðustu
ár, bæði meðal Íslendinga og er-
lendra ferðamanna og margir
sækja í lundann en ekki síður
friðsældina og fegurð staðarins.
Nánari upplýsingar um ferð-
ir Travel East Iceland má finna
á www.ferdasumar.is og upp-
lýsingar um Borgarfjörð eystri
og gönguleiðir á www.borgar-
fjordureystri.is.
„Það er að sjálfsögðu
nauðsynlegt að taka líka bæjar-
rölt og skoða litla sjávarþorp-
ið Bakkagerði, vitja álfanna í
Álfaborg og kíkja á Kjarval í
Kirkjunni. Þá eru fjórir veitinga-
staðir í þorpinu og vonandi verð-
ur lifandi tónlist þar að finna
þegar líður á sumarið,“ segir
Arngrímur að lokum.
/VH
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Gönguferðir á Borgarfirði eystri:
Afslöppun, friðsæld og fegurð
Gönguleiðirnar eru valdar í samráði við heimamenn, allar greiðfærar og 12 til 18 kílómetra langar. Myndir / Arngrímur Viðar Ásgeirsson
Borgarfjörður eystri.
Gistiaðstaðan á Álfheimum sveita
hóteli.
Úr Stórurð.
Síðan 1927
Smurefni fyrir vélvæddan
landbúnað
Nútíma landbúnaður krefst mikils vélakosts. Gæðasmurefni skipta öllu máli fyrir virkni og
endingu véla. Olís veitir ráðgjöf um olíu- og smurefnanotkun fyrir allar landbúnaðarvélar.
Fyrirtækjasvið Olís | sími 515 1100 | olís.is
P
ip
a
r\
T
B
W
A
•
S
ÍA