Bændablaðið - 04.06.2020, Síða 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 202038
Heilbrigðisyfirvöld í Banda
ríkjum NorðurAmeríku hafa
sent frá sér viðvörun þar sem
varað er við að rottur í að
minnsta kosti tveimur borgum,
New York og New Orleans, sé
óvenju árásargjarnar vegna
minni fæðu í kjölfar COVID 19.
Fjöldi kvartana í Chicago vegna
aukins ágangs rotta í matarleit
hefur margfaldast undanfarnar
vikur að sögn yfirvalda í borginni.
Árásarhegðun rottanna er rakin
til minni matarúrgangs í gámum
við veitingahús, á götum og í götu-
ræsum í kjölfar þess að færri eru á
ferli vegna COVID-19. Myndbönd
sýna að rottur sem sótt hafa í
ruslagáma, sem fram til þessa hafa
verið örugg uppspretta fyrir þær,
eru að slást um hvern bita og snúið
sér að kannibalisma og farin á éta
eigin afkvæmi.
Í viðvöruninni er sagt að rottur
séu farnar að dreifa úr sér á stærri
svæði og fólk beðið að hafa sam-
band við meindýraeyði og fjar-
lægja fugla- og dýrafóður af opnum
svæðum verði það vart við rottur
á svæðum þar sem þær hafa ekki
verið algengar áður.
Rottur eru yfirleitt í fæðuleit á
nóttunni en samkvæmt frásögn íbúa
í New Orleans kom viðkomandi að
um 30 rottum saman á einni aðal-
götu borgarinnar, Bourbon Street,
um hábjartan dag að éta matarleifar
sem einhver hafði kastað frá sér.
Samkvæmt áætlunum var ein
rotta í New York fyrir hverjar 36
manneskjur árið 1949 en ári seinna
var áætlað að í borginni væri ein
rotta á hverja eina manneskju.
Aukinn fjöldi rotta eða sýnileiki
þeirra er meiri í kjölfar náttúru-
hamfara og farsótta. /VH
UTAN ÚR HEIMI
Árásarhegðun rotta er rakin til minni
matarúrgangs í gámum við veitinga-
hús, á götum og í göturæsum í kjöl-
far þess að færri eru á ferli vegna
COVID-19.
COVID-19 og meindýr í Bandaríkjunum:
Rottur árásargjarnari
vegna fæðuskorts
Gríðarleg aukning í
tilfellum svínapestar
Tilfellum afrískrar svínapestar
hefur fjölgað gríðarlega undan
farin ár og fer pestin eins og eldur
í sinu um heiminn. Skráð tilfelli í
apríl á þessu ári eru álíka mörg
og allt árið 2019.
Árið 2018 barst afrísk svínapest
til Kína með þeim afleiðingum að
tugþúsundir svína drápust og í fram-
haldinu var, samkvæmt opinberum
tölum í Kína, 1,1 milljón svínum
slátrað og hræin annaðhvort urðuð
eða brennd. Óopinberar tölur segja
að talan sé of lág og að hún sé nær
200 milljónum svína. Samkvæmt
tölum hollenska bankans Rabobank,
sem hefur fjárfest mikið í kínversk-
um matvælaiðnaði, gæti svo farið að
40% af 360 milljón svínum í Kína
verði fargað á þessu ári.
Alþjóðadýraheilbrigðisstofnunin,
OIE, hefur gefið út að sú tala sé ekki
fjarri lagi þeirra áætlunum. Auk
þess sem stofnunin hefur gefið út
að skráð tilfelli svínapestar í apríl á
þessu ári, 5,4 milljónir, séu hratt að
nálgast sama fjölda og allt árið 2019,
eða 6,9 milljón dýr.
Svína-ebóla
Þrátt fyrir að vírusinn sem veldur
afrískri svínapest sé ekki beint
hættulegur mönnum hefur verið bent
á að hann geti hæglega stökkbreyst
og orðið það, þar sem líffræðilega
sé ekki mikill munur á mönnum og
svínum. Pestin berst hæglega milli
sýktra dýra með snertingu, með
mönnum, áhöldum, fóðri og með
flugum. Sjúkdómurinn er stundum
kallaður svína-ebóla.
Áhersla á COVID-19
Ein ástæða mikillar aukningar í til-
fellum svínapestar er sögð vera að
yfirvöld í Kína og víðar í heiminum
hafi dregið úr árvekni sinni gagn-
vart pestinni og lagt alla áherslu á
að draga úr útbreiðslu COVID-19.
Afrísk svínapest, ASF, er bráð-
smitandi sjúkdómur sem berst hratt
milli svína, bæði villtra og eldis-
gripa, og er dánartíðni dýranna
vegna sjúkdómsins nánast 100%.
Vírusinn sem veldur pestinni er mun
öflugri en sá sem veldur COVID-
19 að því leyti að hann getur lifað
í frosnum afurðum svína í marga
mánuði.
Afrísk svínapest hefur verið
þekkt í um 100 ár en ekki hefur tekist
að finna bóluefni gegn vírusnum.
Hröð útbreiðsla um heiminn
Útbreiðsla svínapestar um heiminn
hefur aukist hratt undanfarin ár og
þekkist hún í nánast öllum heims-
álfum og er talið að eins og staðan er
í dag sé ekki lengur hægt að stöðva
útbreiðslu hennar. Fyrr á þessu
ári greindist pestin í fyrsta sinn
í norðurhluta Indlands og Papúa
Nýju-Gíneu.
Samkvæmt Alþjóðadýra heil-
brigðis stofnuninni greinast mörg ný
tilfelli svínapestar í hverri viku og
alls óvíst er hvort öll ný tilfelli séu
skráð og er þar vísað til takmarkaðra
upplýsinga frá Kína.
Mikil verðhækkun í Kína
Frá 2018 hafa yfirvöld í Kína lagt
áherslu á að tæknivæða svínabúskap
í landinu á kostnað smábænda. Verð
á svínakjöti hefur hækkað mikið og
kínverski svínaframleiðandinn WH
Group – Wens & Muyuan hagnast
gríðarlega.
Ýmislegt bendir einnig til að
Kínverjar séu að sætta sig við
flensuna og hættir að farga sýktum
dýrum og setji afurðir þeirra líkt og
afurðir heilbrigðra dýra á markað.
Auk þess sem Kínverjar hafa flutt
inn mikið af svínakjöti. /VH
LÍF&STARF
Paprikur, nammi namm.
Ræktun til gagns og gamans:
Paprikuplantan sem bætti sig
Elín Árnadóttir var í leikskóla
deild Krikaskóla þegar hún kom
heim með paprikuplöntu fyrir
þremur árum. Krakkarnir í
hennar hreiðri gróðursettu fræ
innan úr papriku í mold og var
paprikuplantan sennilega orðin
um tíu sentímetrar á hæð þegar
þau tóku hana heim.
Elín var í fyrstu mjög svartsýn
um plöntuna sína enda sagðist
hún hafa verið síðasti nemandinn
að velja sér plöntu og fengið þá
minnstu. „Ég hafði ekki mikla trú
á plöntunni en mamma hughreysti
mig og sagði mér að tala við hana
og hvetja hana til að vaxa sem mér
fannst reyndar mjög furðulegt en
gerði það samt,“ segir Elín.
Leitað upplýsinga
Sigurveig Magnúsardóttir, móðir
Elínar, segir að þrátt fyrir það hafi
trú dótturinnar á plöntunni ekki
aukist og var hún viss um að það
væri eina plantan úr leikskólanum
sem ekki myndi bera aldin. „Elín
var reyndar fremur döpur yfir þessu
og taldi að foreldrarnir stæðu sig
ekki nógu vel í að aðstoða hana.
Næsta skref var því að leita til garð-
yrkjufræðings og fá upplýsingar
um ræktunina. Okkur var bent á að
setja plöntuna í stærri pott og gefa
henni áburð. Einnig fengum við ráð-
leggingar um frjóvgun plöntunnar
með eyrnapinna, þ.e.a.s. að færa
frjó á milli blómanna og gæta þess
að það væri alltaf vatn í disknum
undir blómapottinum. Í kjölfarið
fóru hlutirnir að gerast og höfðum
við varla undan að vökva blessaða
plöntuna. Stundum þarf að vökva
tvisvar sama daginn þar sem hún
er mjög þyrst.“
Greinarnar svignuðu
„Fljótlega fór plantan að mynda
paprikur sem voru svo stórar að
Plantan er núna búin að gefa svo margar paprikur að Elín hefur misst
töluna á þeim.
Svínum fargað vegna svínapestar.