Bændablaðið - 04.06.2020, Qupperneq 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 2020 41
UTAN ÚR HEIMI
„European Green Deal” er tillaga að nýrri stefnu Evrópusambandsins í landbúnaðarmálum:
Hugmyndin að gera ESB fremst í
heimi í sjálfbærum landbúnaði
Mörg samtök bænda og smáframleiðenda óttast að þetta muni auka framleiðslukostnað verulega og draga úr samkeppnishæfni
Framkvæmdastjórn Evrópu
sambandsins hefur lagt fram til
lögur að nýrri stefnu, European
Green Deal, um hollari og sjálf
bærari matvæli innan sam
bandsins og stefna með því að
landbúnaðarbyltingu. Hér eru
lagðar línur með að sambandið
leggi sitt af mörkum til að upp
fylla Parísarsamninginn um
loftslagsmál, sjálfbærnimarkmið
Sameinuðu þjóðanna og alþjóð
leg markmið um líffræðilega
fjölbreytni.
Hin nýja stefna sambandsins
og liður innan hennar, sem kallast
Farm to Fork, er mikilvæg til að ná
þessum markmiðum. Stefnan felur
í sér allt matvælakerfið frá jörðu til
hafs og á matarborðið á evrópsk-
um heimilum. Framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins vill að mat-
vælaframleiðsla í sambandinu
setji staðla fyrir alþjóðleg sjálfbær
matvæli. Drifkraftar þeirra mark-
miða sem eru leiðarstef í stefn-
unni eru án efa frekari auðlegð og
störf. Framkvæmdastjórnin telur
uppbyggingu á hagkerfinu eftir
heimsfaraldurinn liggja í grænni
endurskipulagningu og að styrkja
eigi matvælaiðnaðinn með því að
verða best í heiminum í sjálfbærni.
Betrumbættur landbúnaður
Íslenskur landbúnaður er sterkur á
mörgum sviðum þegar kemur að
sjálfbærni, eins og gott dýraheil-
brigði og góð dýravelferð, lítil
notkun á sýklalyfjum og skor-
dýraeitri og lágt kolefnisfótspor.
Þessa þætti á að leggja enn frekari
áherslu á í Farm to Fork-lið stefn-
unnar.
Um 40% af fjárhagsáætlun
landbúnaðar verður eyrnamerkt
loftslagsmálefnum í stefnunni.
Einnig verður stefnt að því að
minnka notkun á kemískum
varnarefnum um 50% og
kemískum áburði um 20%
innan ársins 2030. Notkun á
sýklalyfjum í húsdýraframleiðslu
á að minnka um 50% og yfirvöld
vilja endurskoða regluverk um
dýravelferð. Framkvæmdastjórnin
mælir með að húsdýrahald innan
sambandsins verði kynnt sem
sjálfbærast og loftslagsvænast.
Árlega notar Evrópusambandið
um þrjátíu milljarða króna íslenskar
til að auglýsa og auka sölu á eigin
landbúnaðarvörum.
Ný áætlun varðandi merkingar
á matvælum getur orðið snúin
fyrir kjötframleiðendur en stefn-
an inniheldur ráðstafanir sem
eiga að leggja það af mörkum að
neytendur velji holl matvæli sem
framleidd eru á sjálfbæran hátt.
Framkvæmdastjórnin mun koma
með uppástungu að lögboðinni
næringarmerkingu ásamt því að
fá inn möguleika á sjálfbærni-
merkingum sem innihalda meðal
annars kolefnisfótspor. Í stefnunni
eru gjöld einnig nefnd sem mikil-
vægar aðgerðir til að örva sjálfbæra
framleiðslu og hollt mataræði fólks.
Líffræðileg fjölbreytni
og lögvernduð svæði
Á sama tíma og liðurinn From
Farm to Fork var kynntur birti
framkvæmdastjórnin einnig stefnu
sína í að viðhalda líffræðilegri fjöl-
breytni. Þar kemur fram að heildar-
stærð lands þar sem lífræn ræktun
er stunduð eigi að auka um 25%
fram til ársins 2030. Stungið er
upp á gríðarlega mikilli plöntun
trjáa, eða þriggja milljarða nýrra
trjáa, um leið og styrkja á verndun
náttúrusvæða. Stefnt er á að 30%
af öllum náttúrusvæðum verði
lögvernduð og að 10% muni njóta
strangrar lögverndunar gegn inn-
gripi mannfólks.
Mörg samtök bænda
og smáframleiðenda eru
gagnrýnin á stefnuna
Mörg bændasamtök og félög smá-
framleiðenda innan sambands ins
eru gagnrýnin á þætti í stefnunni
og óttast að metnaður hennar og
strangar reglur muni auka kostnað
verulega sem muni hafa samkeppn-
isókosti við erlend matvæli í för
með sér. Í Farm to Fork er sér-
staklega nefnt að matvæli sem
koma inn í sambandið erlendis
frá verði að uppfylla skilyrði
og reglur Evrópusambandsins.
Sérstakar tillögur og ráðstafanir í
matvælastefnunni og stefnunni um
líffræðilegan fjölbreytileika verða
meðhöndlaðar af meðlimalöndum
Evrópusambandsins og Evrópu-
þinginu, svo það er alls óljóst enn
hvort Framkvæmdastjórnin nái
öllum sínum markmiðum í gegn.
/ehg-landbruk.noMeld
Vélar, bátar, bílar, gámar eða vörur í lausu
Það skiptir ekki máli hvað þú þarft að flytja,
við getum flutt það fyrir þig landshorna á milli.
Reglulegar ferðir á flesta staði á landinu.
Hafðu samband og við finnum lausnina með þér.
fraktlausnir@fraktlausnir.is
Sími 519-2150 eða 773-1630
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
SÍUR Í
DRÁTTARVÉLAR
Bænda
18. júní