Bændablaðið - 04.06.2020, Síða 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 2020 43
Mímir er opinn!
Hamingjudagar alla daga
með tilboði á drykkjum.
Verið velkomin!
MIMIR.RESTAURANT +354 525 9970
MÁN – FÖS
12:00 – 23:00
LAU – SUN
15:00 – 23:00
Að undanförnu hefur skapast
talsverð umræða um beitarmál
sauðfjárbænda, einkum þeirra
bænda sem eru þátttakendur í
gæðastýrðri sauðfjárframleiðslu.
Gagnrýnin snýr að mestu að
framkvæmd landnýtingarþáttar
gæðastýringarinnar.
Landssamtök sauðfjárbænda
hafa af metnaði byggt upp
gæðastýringu í sauðfjárrækt sem
hluta af stuðningskerfi við íslenska
sauðfjárbændur. Vissulega hefur
verkefnið þróast og breyst frá
upphafi þess og ljóst að ekki er
kominn neinn endapunktur í þeim
efnum.
Gæðastýringin hefur
skilað miklum árangri
Þegar kemur að því að meta árangur
landnýtingarþáttar gæðastýringar
má horfa til fjölmargra atriða.
Það má til dæmis horfa til þess að
verkefnið hefur aukið þekkingu
bænda á landnýtingu og stuðlað
að því að nú er unnið markvisst að
aðgerðum á þeim beitarsvæðum
sem falla undir viðmiðunarmörk
gæðastýringarinnar. Vissulega
má deila um hvar við setjum slík
viðmiðunarmörk. Þessi viðmið
þarf að endurmeta reglulega og
tryggja að þau séu sett fram á
grunni vísindalegrar þekkingar. Er
sú landnýting sem nú er stunduð
að ganga á gæði landsins? Þeirri
spurningu hefur ekki verið svarað
í þessari umræðu. Árangur af
landgræðslu ræðst ekki endilega af
því hvort land sé friðað fyrir beit
eða ekki. Árangurinn ræðst ekki
síst af því fjármagni og þeirri vinnu
sem sett er í uppgræðsluverkefni.
Friðun getur hins vegar verið
nauðsynleg við ákveðnar
aðstæður og í tengslum
við gæðastýringuna hefur
verið unnið að því að friða
slíkt land. Gæðastýringin
er þannig byggð upp að
nýting lands, sem fellur
undir viðmið, stuðlar að því
að landið endurheimti fyrri
gæði en slík verkefni þurfa
að vinnast tíma.
Sauðfjárbændur fjár
magna stóran hluta land
græðslu verkefna ár hvert
Flestir bændur stunda
land græðslu með einhverj
um hætti, þó svo að
umfang sé ólíkt. Í samvinnu við
Landgræðsluna er unnið að tvenns
konar verkefnum. Annars vegar í
verkefninu Bændur græða landið
þar sem yfir 500 bændur eru
þátttakendur og unnið á um 5.300
ha. árlega. Hins vegar á vegum
Landbótasjóðs Landgræðslunnar
þar sem 300 aðilar koma að
með einum eða öðrum hætti að
60 verkefnum þar sem unnið
er á um 7.000 ha lands. Meðal
þeirra verkefna eru aðgerðir sem
skilgreindar eru í landnýtingarþætti
gæðastýringarinnar. Kostnaður
Landgræðslunnar við þessi
verkefni árið 2019 var um 145
milljónir. Á móti leggja bændur
fram vinnuframlag og ýmsan
annan kostnað sem til fellur við
framkvæmdina. Ekki er haldið
sérstaklega utanum vinnuframlag
og fjármagn sem bændur leggja til
þessara verkefna. Að auki stundar
fjöldi bænda uppgræðslu á sínum
jörðum án aðkomu Landgræðslu eða
annarra stofnanna. Líklega hleypur
framlag bænda til landgræðslu á
hundruðum milljóna ár hvert.
Hefur ástand beitarlands breyst
frá því að gæðastýring hófst?
Einn af veikleikum við framkvæmd
gæðastýringarinnar er sá að unnið
með gögn sem eru orðin 1015 ára
gömul. Gögnin eru uppruninn í
verkefninu Nytjaland sem unnið var
á árunum 20022008. Það verkefni
er sá grunnur landupplýsinga
sem gæðastýringin byggir á. Því
miður var ekki haldið áfram á
sínum tíma með verkefnið, því
það var sannarlega þörf á því að
þróa aðferðafræðina betur og bæta
þar með nákvæmni gagnanna og
ekki síður til þess að fylgjast með
framvindu gróðurfars.
Landgræðslan hefur eftirlit með
framkvæmd landnýtingaþáttar
gæðastýringarinnar og þar að
auki er það eitt af hlutverkum
Landgræðslunnar að fylgjast með
gróðurframvindu. Ef forsendur
gæðastýringarinnar eru jafn
rangar og gagnrýnin ber með
sér, þá hljóta áhrif þess að
koma fram í afturför lands.
Það væri gagnlegt fyrir þessa
umræðu ef Landgræðslan
myndi miðla upplýsingum um
breytingar gróðurfars síðustu
10 árin á þeim landssvæðum
sem landbótaáætlanir eru
virkar.
Aðstæður í landinu er mjög
ólíkar og engin ein lausn
hentar alls staðar. Verkefni um
mat að gróðurauðlindum sem
stofnsett var að frumkvæði
bænda árið 2017 er ætlað
til þess að þróa og bæta
stjórntæki við landnýtingu. Bændur
standa heils hugar á bak við það
verkefni, en því er ekki lokið og
það er þýðingarmikið að halda því
samstarfi áfram eigi markmiðin að
nást.
Umræða um lausagöngubann
Í fréttum Stöðvar 2 laugardaginn
30. maí lýsti landgræðslustjóri sinni
skoðun að banna ætti lausagöngu
búfjár á Íslandi. Í hans málflutningi
kom fram hvaða áhrif slíkt bann
myndi hafa. Hann telur m.a. að
það muni sparast miklir peningar
skattgreiðanda þegar kemur að
kostnaði girðinga vegna þess að þá
væri hægt að leggja niður girðingar
sem tengjast landgræðslu, skógrækt,
vegstæðum og sauðfjárveikivörnum.
Þá muni ekki þurfa að smala
lönd sem eru friðuð og þannig
spara bændum mikið umstang.
Það verður fróðlegt að sjá
útfærslur á þessum hugmyndum
landgræðslustjóra á næstu dögum.
Enda er Landgræðslustjóri varla að
koma fram með slíkar fullyrðingar
í fjölmiðlum án þess að hafa skoðað
málið í þaula.
Bændur eru einn fjölmennasti
hópur sem starfar að landgræðslu
hérlendis, ef ekki sá fjölmennasti.
Yfirlýsingar á borð við ummæli
Landgræðslustjóra 30. maí grafa
undan þeirri vinnu og koma þannig
niður á uppgræðslu landsins.
Hefðbundin nýting sameiginlegra
beitilanda á sér langa sögu sem
byggir í mörgum tilvikum á
stjórnarskrárvörðum réttindum.
Breytingar verða að vinnast í
samstarfi við bændur svipað og hefur
verið gert þar sem vel hefur tekist
til í verkefnum innan gæðastýringar.
Annars munu þær einfaldlega ekki
skila árangri.
Landnotkun sauðfjárbænda er
ekki yfir gagnrýni hafin. Víða er
þörf á því að sinna landbótum og
beitarstýringu af meiri krafti en gert
er í dag. Það er hins vegar skoðun
Landssamtaka sauðfjárbænda að
landnýtingarþáttur gæðastýringar
hafi ekki bara breytt hugarfari
bænda og heldur líka aukið verulega
samstarf við Landgræðsluna þegar
kemur að góðri nýtingu beitilands.
Landssamtök sauðfjárbænda harma
því þá ákvörðun Land græðslunnar að
setja samskipti við sauðfjárbændur
í þennan farveg. Óhjákvæmilegt
er annað en að Landssamtök
sauðfjárbænda kalli eftir samtali
við stjórnvöld um fjármögnun og
framkvæmda samstarfsverkefna
sauðfjárbænda og Landgræðslunnar.
Unnsteinn Snorri Snorrason
framkvæmdastjóri
Landssamtaka sauðfjárbænda
Gæðastýringin hefur skilað árangri
Unnsteinn Snorri Snorrason.