Bændablaðið - 04.06.2020, Page 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 2020 45
ir í grafhýsi Tutankhamun faraó,
frá 1350 fyrir Krist, í Egyptalandi.
Rótinni hafði verið komið fyrir
meðal gimsteina í gröfinni en ekki
matar og ekki er vitað af hverju.
Samkvæmt kínverskri lækn
ingabók, Pen tsh‘ao, frá um 2700
fyrir upphaf okkar tímatals er sætrót
góð við kvillum á öndunarvegi og
eins konar töfrajurt sem gerði ung
linga úr skakklappa gamalmennum.
Gríski sagnfræðingurinn
Heródótus, uppi 484 til 425 fyrir
Krist, var um tíma í útlegð við
Svartahaf á mörkum veldis Skýtha
á sléttum Asíu sem var á hápunkti
sínum frá 650 til 339 fyrir Krist og
hafði um tíma tögl og halgdir með
verslun um Silkiveginn. Heródótus
dáðist mjög að herkænsku og hesta
mennsku Skýtha og sagði þá þola
langar útiverur án vatns með því að
tyggja sætrót og drekka meramjólk
og lagði til að Grikkir tækju þá sér
til fyrirmyndar.
Grikkinn Theóprhadus, uppi 371
til 287 fyrir Krist, sem er stund
um kallaður faðir grasafræðinnar,
segir í riti sínu Historia Plantarum
að sætrót sé góð við astma og
öðrum öndunarerfiðleikum. Auk
þess sem hann segir að gott sé að
blanda saman lakkrís og hunangi
og nota sem græðandi fyrir sár á
húð og í maga.
Gríski læknirinn og grasa
fræðing urinn Pedanius Dioscorides,
uppi 40 til 90 fyrir Krist, mun vera
sá sem gaf plöntunni gríska heitið
sætrót. Dioscorides er höfundur De
materia medica sem fjallaði um
lækningamátt plantna og var grunn
rit í þeim fræðum í 1.500 ár. Hann
segir rótina góða við meinsemd
um í brjósti, sárum í munni, maga,
pruritus ani og gyllinæð.
Á tímum krossfaranna, 1095
til 1272 eftir Krist, þegar kristnir
menn ætluðu að frelsa Landið helga
undan yfirráðum múslima, voru
munkar ósjaldan með í för. Algengt
var að nota lakkrís í drykki í Mið
Austurlöndum og naut drykkurinn
talsverðra vinsælda meðal þeirra
sem virtu áfengisbann.
Munkar af reglu klúníakbræðra,
sem tilheyrðu Benediktusar
reglunni sem var afsprengi endur
bóta innan miðaldakirkjunnar, eru
sagðir hafa flutt með sér afleggjara
að sætrót til höfuðklausturs síns í
Macon í NorðurFrakklandi eftir
eina krossferðina. Benediktusar
reglan var á blómaskeiði sínu, 950
til 1130 eftir Krist, ein sú öflugasta í
Evrópu og hafði mikil trúarleg áhrif
og meðal stuðningsmanna hennar
var Urban fyrsti páfi, uppi 1035
til 1099, og höfuð kirkjunnar frá
1088 til 1099. Við lok tólftu aldar
voru um 300 klaustur í Evrópu og
á Bretlandseyjum sem tilheyrðu
Benediktusarreglunni og í flest
um þeirra var ræktuð sætrót til að
bragðbæta mjöð.
Ensku herbalistarnir John
Gerald, uppi 1545 til 1612, og
Nicholas Culpeper, uppi 1616 til
1654, skrifuðu báðir bækur um
lækningar og jurtir. Í báðum bókum
Gerald og Culpeper, Generall
Historie of Plantes og Complete
Herbal, segir að sætrót sé nyt
samleg lækningaplanta og nytjar
hennar sagðar vera þær sömu og
hjá Dioscorides rúmum 1.500 árum
áður.
Danski læknirinn og náttúru
fræðingurinn Simon Paulli, uppi
1603 til 1680, sem var meðal
annars hirðlæknir Friðriks þriðja
Danakonungs og höfundur bókar
innar Quadripartitum Botanicum
um lækningar með plöntum mælti
með því að tyggja sætrót gegn
nýrna og þvagfærasýkingum.
Ræktun
Sætrót dafnar best á milli 30 og 45°
norðlægrar breiddar. Plantan kýs
kalkríkan, næringarríkan, vel fram
ræstan, lausan og djúpan jarðveg
og beina sól. Plantan þolir frost og
þarf í raun frostakafla yfir veturinn
til að fá hvíld.
Auðvelt er að fjölga sætrót með
rótargræðlingum og í ræktun nær
hún yfirleitt fullri stærð til nytja á
þremur árum.
Nytjar
Á Indlandi er hefð á áttunda degi
áttunda mánaðarins, afmælisdegi
Búdda, að færa Búddalíkneskjum
skál með lakkrísrót sem fórn.
Sætrót er enn í dag vinsæl meðal
herbalista og jurtalækna auk þess
sem lakkrís er mikið notaður í sæl
gæti og bæði munn og reyktóbak,
tyggigúmmí og tannkrem, enda
rótin 30 til 50 sinnum sætari en
sykur í sama magni.
Efnasamsetning sætróta er flók
in en sætuefni hennar kemur úr efni
sem kallast glycyrrhhizinsýra og
hækkar blóðþrýsting við neyslu og
því er í dag ekki mælt með því að
borða mikið af henni í einu.
Glycyrrhhizinsýra er ólíkt sykri
að uppbyggingu og endist betur.
Í rótinni finnst einnig efnasam
band sem kallast phytoestrogen
eða plöntuestrógen og líkist kyn
hormóninu estrógen sem stjórnar
tíðahring kvenna og getur dregið
úr myndun karlhormóna.
Englendingar í Yorkskíri voru
fyrstir til að blanda saman lakkrís úr
sætrót og sykri og framleiða úr því
lakkríssælgæti eins og við þekkjum
það í dag.
Við lestur á innihaldslýsingu á
umbúðum utan af lakkrís sést að
hann er búinn til úr sykri, hveiti,
arabísku gúmmíi, gelatíni og bragð
efnum, þar á meðal lítils háttar af
lakkrísrót. Einnig er algengt að sæl
gæti með lakkrís í sé blandað með
salmíaki, svo er allt þetta húðað
með einhvers konar vaxi til þess að
gefa fallega áferð. Það sem kallað
er lakkrís í dag á því ekkert skylt
við sætvið.
Lakkrís sem sælgæti nýtur mik
illa vinsælda í Evrópu, Ástralíu,
NýjaSjálandi og á Íslandi.
Á Spáni, Ítalíu og Frakklandi
er hægt að fá ferska sætrót hjá
götusölum sem grafa ræturn
ar upp, skola þær og selja til að
draga úr andremmu. Í Sýrlandi og
Egyptalandi eru drykkir með lakk
rísbragði eða lakkríste vinsæl.
Samkvæmt kínverskum jurta
lækningum kallast sætrót gancao,
eða sætgras og sagt stemmandi í
lyfjablöndur. Rótin þekkist einnig í
indverskum Ayurvedalækningum.
Lauf plöntunnar eru notuð til að
búa til svartan lit og í Mongólíu
eru laufblöð plöntunnar þurrkuð
og notuð í te. Rótin er einnig notuð
til að bragðbæta skyndimat eins og
núðlur.
Óæskilegur í stórum skömmtum
Lakkrís er óæskilegur í stórum
skömmtum og samkvæmt Matvæla
og lyfjastofnum Bandaríkjanna
á ekki að neyta meira en 70 til
150 gramma af lakkrís á dag.
Lakkríssælgæti er ekki sagt gott
fyrir barnshafandi konur og fólk
sem þjáist af hjarta eða nýrnasjúk
dómum.
Meðal fylgiáhrifa mikillar
lakkrísneyslu geta verið óregluleg
hormónastarfsemi, bjúgmyndun,
aukinn blóðþrýstingur, hjartsláttar
truflanir, andnauð, höfuðverkur,
þyngdaraukning og máttleysi.
Lakkrís a Íslandi
Í 8. tölublaði Heilbrigðistíðinda
frá 1871 segir að hundaveiki hafi
lagst á hunda landsmanna undan
farin ár og að einkenni veikinnar
séu hósti og hryglur, heitt og þurrt
trýni og að gröftur renni úr nösum
og augum hundanna. „Opt fylgir
veiki þessari megn höfuðverkur,
svo hundurinn verður sem óður,
hleypur fram og aptur, snýst í hringi
og vill stundum bía allt, sem fyrir
honum verður. […] Eins ber það
líka opt við, að hundurinn verður
líkt sem hálftruflaður eptir veik
ina, ef höfuðverkurinn hefur verið
mjög megn. Sjónleysi eða sjón
depra fylgir líka þráfaldlega veiki
þessari.“
Síðar í greininni segir: „Mörg
meðul er brúkið við veiki þessari,
en hjer skal einungis getið hinna
beztu. Í byrjun veikinnar má gefa
„TerpentinEmulsjon“ (terpentínu
olía 2 kvint, gúmmkvoða 2 kvint,
vatn 16 lóð) eða seyði af enúlu
rót með salmíaki og lakkríssafa í
(Inf. rad. enulæ 16 lóð, succ, liquiri.
sal. ammonac af báðum 1 kvnt).
af hvoru þessu gefist ein matskeið
tvisvar til þrisvar daglega.“
Um aldamótin 1900 er farið að
auglýsa lakkrís í blöðum sem sæl
gæti og þrjá gerðir í boði; calabria
lakkrís sem mun vera ítalskur og
kostaði einn eyri, franskur lakkrís
á 10 aura og enskur lakkrís sem
kostar líka 10 aura.
Í dag er lakkrís að finna í margs
konar sælgæti hér á landi, meðal
annars í súkkulaði og ís og ef ég
man rétt er lakkrís eitt af bragðefn
unum í maltöli.
Lakkrísrót ræktuð og safnað við Aleppó í Sýrlandi skömmu eftir aldamótin 1900.
Sætviður er fjölær runni sem nær
rúmlegs eins metra hæð. Ofan
jarðarhlutinn vex upp af trékenndri
og greindri, djúpri og ilmsterkri
stólparót.
Blómin um einn sentímetri að lengd,
fjólublá yfir í að vera bláhvít, nokkur
saman í axi.
Aldinið ílangur, flatur og eilítið
hærður belgur, 2 til 3 sentímetrar
að lengd með 2 til 8 fræjum.
Laufblöðin samsett með 9 til 17 egg eða lensulaga smáblöðum sem eru 7
til 15 sentímetrar að lengd. Smáblöðin 1,5 til 4 sentímetrar að lengd og 0,8
til 2 að breidd.
Sætrót í geymslu.