Bændablaðið - 04.06.2020, Page 57
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 2020 57
Stuttbuxurnar eru prjónaðar
með áferðarmynstri úr DROPS
Flora. Tilvalið verkefni á þau
minnstu fyrir sumarið.
Stærðir: (<0) 0/1 (1/3) 6/9 (12/18) mánaða
2 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
(40/44) 48/52 (56/62) 68/74 (80/86) 92
Garn: DROPS FLORA (fæst í Handverkskúnst)
(50) 50 (100) 100 (100) 100 g litur 08, brúnn
Prjónfesta: 24 lykkjur x 38 umferðir = 10x10
cm.
Prjónar: Sokka- og hringprjónar 40 cm, nr
2,5og 3
Silkiborði: um 1,5 metrar
ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út,
teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur) og
deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að
gera (t.d. 16) = 5,25.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni
uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 5. og 6.
hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn
prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat.
ÚTAUKNING-2 (á við um mitt að framan og mitt
aftan á stuttbuxum):
Prjónið fram að lykkju með prjónamerki, sláið
1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkjuna með
prjónamerki eins og áður, sláið 1 sinni uppá
prjóninn (= 2 lykkjur fleiri).
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður
snúinn svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur
eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1.
STUTTBUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna /
sokkaprjóna, ofan frá og niður.
Fitjið upp (84) 100 (112) 124 (132) 140 lykkjur á
hringprjón nr 2,5. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið
síðan stroff hringinn (= 1 slétt, 1 brugðið). Þegar
stroffið mælist 2½ cm, prjónið gataumferð fyrir
silkiborða þannig: *1 slétt, 1 brugðið, sláið 1
sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur brugðið
saman*, prjónið frá *-* út umferðina (= (21)
25 (28) 31 (33) 35 göt í umferð). Prjónið áfram
stroff eins og áður þar til stykkið mælist 4 cm frá
uppfitjunarkanti. Prjónið nú upphækkun aftan á
stuttbuxum eins og útskýrt er að neðan.
UPPHÆKKUN AÐ AFTAN:
Til að buxurnar passi betur eru þær prjónaðar
hærra að aftan en að framan. Þetta er gert með
því að prjóna stuttar umferðir fram og til baka
þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð
= mitt að aftan.
Byrjið frá réttu og prjónið 8 lykkjur stroff fram
hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið
16 lykkjur. Snúið, herðið á þræði og prjónið 24
lykkjur stroff, snúið, herðið á þræði og prjónið
32 lykkjur stroff. Snúið, herðið á þræði og prjónið
40 lykkjur stroff, snúið, herðið á þræði og prjónið
48 lykkjur stroff. Snúið, herðið á þræði og prjónið
stroff til baka mitt að aftan.
Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið 1 umferð
slétt þar sem aukið er út um (16) 20 (20) 24 (28)
28 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = (100)
120 (132) 148 (160) 168 lykkjur.
STUTTBUXUR:
Prjónið í hring eftir mynstri A.1 yfir allar
lykkjurnar. Þegar stuttbuxurnar mælast (14)
16 (17) 20 (21) 22 cm frá uppfitjunarkanti
mitt að framan er sett 1 prjónamerki mitt að
framan og 1 prjónamerki mitt að aftan. Í næstu
umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við
bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4
lykkjur fleiri). Aukið út í annarri hverri umferð
alls 6 sinnum = (124) 144 (156) 172 (184) 192
lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist (18)
20 (21) 24 (25) 26 cm frá uppfitjunarkanti mitt
að framan. Nú skiptist stykkið fyrir skálmar við
bæði prjónamerkin. Setjið helming af lykkjum
á þráð eða hjálparprjón og prjónið skálmar yfir
þær lykkjur sem eftir eru eins og útskýrt er að
neðan. Héðan er nú mælt.
SKÁLM: = (62) 72 (78) 86 (92) 96 lykkjur.
Skiptið lykkjum á sokkaprjóna nr 3 og prjónið
A.1 hringinn í (2) 2 (2) 2 (3) 3 cm. Skiptið yfir á
sokkaprjóna nr 2,5. Prjónið stroff hringinn (=
1 slétt, 1 brugðið) í 3 cm. Fellið laust af með
sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum
lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina
skálmina alveg eins.
Þræðið silkiborða upp og niður í gataumferð og
hnýtið slaufu mitt að framan.
Prjónakveðja,
mæðgurnar í Handverkskúnst
www.garn.is
Bænda
18. júní
Krúttlegar stuttbuxur
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
1 8 3 5 4
9 1 4 2
3 8 5 9 1
6 1 8 7 5 2
8 2 6 5 1
4 2 3 1 8 7
8 3 7 2 9
6 4 8 3
5 7 4 2 6
Þyngst
4 8 2 5
1 5 7
7 2 9 3
5 1 2 3 8
7 3 4 9
1 4 6 8 2
1 6 9 7
8 2 1
5 9 4 6
5 4 8
8 9 6
3 2
3 7 1
6 9 8
5 9 7
9 3
2 4
6 3 1
9 5 4
3 5 7 6
4 6 8
6 2 4
8 2 1
1 8 3
7 8 4 6
1 3 2
Þegar Mikki refur
settist hjá mér
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Gísli Frank er frumburður for-
eldra sinna í þriggja drengja
hópi. Þau búa á Syðri-Hofdölum
í Skagafirði.
Nafn: Gísli Frank Traustason.
Aldur: 10 ára.
Stjörnumerki: Tvíburi.
Búseta: Syðri-Hofdalir, Skagafirði.
Skóli: Varmahlíðarskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Útivist og íþróttir.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hundar.
Uppáhaldsmatur: Tortilla pönnu-
kökur með hakki.
Uppáhaldshljómsveit: Álfta-
gerðis bræður og Little Big.
Uppáhaldskvikmynd: The sectret
life of Pets.
Fyrsta minning þín? Þegar ég
fór að sjá Dýrin í Hálsaskógi í
Þjóðleikhúsinu og Mikki refur kom
og settist við hliðina á mér, ég var
3 ára þegar þetta var.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Já, fótbolta og körfu-
bolta.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Ljósmyndari.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Ég held ég geri bara
aldrei neitt klikkað.
Hvað ætlarðu að gera skemmtilegt
í sumar? Vera með fjölskyldunni og
veiða.
Næst » Gísli Frank skorar á Sigur-
björgu Ingu Sigfúsdóttur að svara
næst.
Sími: 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is
21,9% fólks
á höfuðborgarsvæðinu
les Bændablaðið
21,9% 41,9%
á landsbyggðinni
á höfuðborgarsvæðinu
29,2%
landsmanna lesa
Bændablaðið
Lestur Bændablaðsins: BÆNDABLAÐIÐ ER GEFIÐ ÚT Í 32 ÞÚSUND
EINTÖKUM Á TVEGGJA VIKNA FRESTI
Heimild: Prentmiðlakönnun Gallup, okt.-des. 2019. Aldur 12-80 ára.
Hvar auglýsir þú?