Bændablaðið - 04.06.2020, Page 58
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 202058
Á áttunda áratug liðinnar
aldar óx svonefndum vistkven
frelsunar fræðum fiskur um
hrygg. „Vistkvenfrelsun er það
svið kvenfrelsunar, þar sem litið
er til umhverfishyggju (environ
mentalism) og tengsla kvenna við
jörðina sem grundvöll greiningar
og starfs.“ (Wikipedia) Kjötneysla
er í brennidepli:
„Kjötneysla er í eðli sínu
kynbundin aðgerð, sem er nátengd
kerfisbundinni hlutgervingu
kvenna og (annarra) dýra,“ segir
norður-ameríski heimspekingurinn,
Christina van Dyke, í bókarkafla
sínum; „Karlmannlegt kjöt og
kynbundið át“ (Í safnritinu: Heim-
spekin er komin til kvöldverðar:
rökræður um siðferði átsins.
(Philosophy Comes to Dinner:
Argument About the Esthics of
Eating (2016)).
Grundvallarkennisetning vist-
kvenfrelsunar eins og annarra
sviða kvenfrelsunarfræða, er sótt til
frumherjans, Elizabeth Cady Stanton
(1815-1902) árið 1868, tuttugu
árum, eftir að hún færði í letur
frelsisyfirlýsingu kvenna í Seneca
Falls. Kennisetningin hljómar svo:
„Karlinn er þrunginn tortímingu;
harðneskjulegur [og] sjálfselskur.
Hann unnir stríði, ofbeldi [og]
sigurvinningi, miklast af sjálfum
sér og leggur að fótum sér. Eins
og í hinum veraldlega heimi sáir
hann í siðferðið ósætti, glundroða,
sjúkdómum og dauða.“
Franskir kvenfrelsarar með
heimspekijöfurinn,Simone de
Beauvoir (1918-1986) í broddi
fylkingar, plægðu fyrstar þann akur,
sem nú er kallaður kvenvistfræði
(eco-feminism) upp úr miðri
nítjándu öldinni. Í verki sínu, „Síðra
kyninu“ (eða „hinu“ kyninu; Le
Deuxiéme Sexe), gaf hún tóninn í
anda fræðamóður sinnar frá Norður-
Ameríku: „Hvarvetna og á öllum
skeiðum sögunnar hafa karlar
notið þess blygðunarlaust að vera
herrar sköpunarverksins.“ Náttúra
og kona eru lögð að jöfnu sem
kúgunarviðfang karlsins.
Næst kveður sér hljóðs á
frönsku vígstöðvunum, Francoise
d‘Eaubonne (1920-2005) í bókinni,
„Kvenfrelsun eða dauðinn ella“
(Féminisme ou la Mort), sem
útkom árið 1974. Þar heldur hún
því fram, að feðraveldið hafi kúgað
og drottnað yfir konum, litskinnum,
börnum, fátæklingum og náttúrunni,
og hafi þegar valdið óbætanlegum
skaða.
Nú tóku norður-amerískir
kvenfrelsarar við keflinu, m.a. Mary
Daly (1928-2010) með bók sinni
„Kynvistfræði. Grundvallarsiðferði
róttækrar kvenfrelsunar“ (Gyn/
Ecology: The Metaethics of Radical
Feminism).“ Bókin kom út árið 1978.
Samkvæmt Mary sagði Francoise
d‘Eaubonne, að „engin „bylting“
undir forystu karlmanna myndi
spyrna við hryllingi offjölgunar
mannkyns og eyðileggingar
auðlinda. Ég geri þessa forsendu
að minni, en nálgun mín
og áhersla er önnur. Enda
þótt mér séu hugleikin allra
handa tilbrigði mengunar
í reðurtæknisamfélagi
[voru], er í bók þessari,
„ K y n v i s t f r æ ð i “
( G y n E c o l o g y –
„kvenlækningar!“) einkum
fjallað um hug/anda/líkams-
mengun, sem átt hefur sér
stað við goðsagnir og
tungumál feðraveldisins á
öllum stigum.“
Árið 1990 gaf nemandi
Mary, Carol J. Adams (f.
1951), út afar merka bók,
„Kynjastjórmál kjötsins:
Gagnrýnin kenning á grundvelli
grænkerakvenfrelsunar“ (The
Sexual Politics of Meat: A Feminst-
Vegetarian Critical Theory (1990).
Fjórtán árum síðar fylgdi hún bókinni
eftir með verkinu, „Kjötklámi“ (The
Pornography of Meat).
Í hnotskurn er boðskapur höfund-
ar sá, að snar þáttur menningar
vorrar sé að smætta dýr í neysluvöru.
Kjötið og neysla þess sé athöfn, sem
tákni drottnun karla á konum. Rauði
þráðurinn í bókinni er limlesting
karla á dýrum, sem minnir á
misnotkun karla á konum, hvernig
þeir notfæra sér og niðurlægja
konukroppinn.
Dýrið er beitt ofbeldi, segir Carol:
„Þegar dýrum er slátrað, verða þau
fjarstödd viðmið. Dýrið og nafnið
og líkaminn er firrtur til að dýr megi
verða að kjöti. Líf dýra er forsenda
... tilurðar kjötsins. Lifandi dýr
gætu ekki verið kjöt. Þannig kemur
dauður líkami í stað lifandi dýrs.
Kjötát ætti sér ekki stað án dýra.
Engu að síður eru þau fjarstödd við
átið, því þeim hefur verið umbreytt
í fæðu.“
Karlar virðast ekki vilja gangast
við dýraofbeldinu:
„Tungumálið varpar hulu
á raunveruleika kjötátsins og
styrkir þannig táknræna merkingu
þess, [þ.e.] að það sé eðlislægt
feðraveldinu og körlum. Kjötát
verður að tákni þess, sem sjónum
er hulið, en ævinlega til staðar –
drottnun feðraveldisins yfir dýrum
og tungumáli.“ ...
„Að sumu leyti eru allir meðvitaðir
um kjöt og kynjastjórnmál. Þegar
við hugsum sem svo, að karlmenn
– sérstaklega karlíþrótta menn – hafi
þurft fyrir kjöt eða þegar eiginkonur,
sem gefið hafa kjöt upp á bátinn,
elda það fyrir karla sína, koma í ljós
tengsl kjötáts og þróttmikils karls.“
Konur eru annars flokks borgarar,
hið síðra kyn Simone de Beauvoir:
„Konur, annars flokks borgarar,
leggja sér fremur til munns það, sem
álitið er vera annars flokks fæða í
feðraveldis menningunni; græn meti,
ávexti og korn, í stað kjöt. Með kyn-
fólskunni, sem í kjötsnæðingnum er
fólgin, er endurtekin stéttaaðgrein-
ingin [milli kvenna og karla] með
viðauka; þeirri goðsögn, sem tekur
sér bólfestu í öllum stéttum manna,
að kjöt sé karlmennafæða og að
hvoma í sig kjöti sé karlmannlegur
gjörningur.“
Kjötát karla felur í sér ofbeldi
gegn dýrum á sama hátt og gegn
konum:
„Á sama hátt og kven frelsarar
lýstu því yfir, að „nauðgun“ væri
ofbeldi, en ekki kynlíf, stendur
hugur grænkera til þess að tala um
ofbeldi kjötátsins.“ ... „Karlar sem
berja konur [sínar] nota oft og tíðum
kjötleysi sem afsökun fyrir ofbeldi
gegn þeim.“
Því snýst kvenfrelsun ekki ein-
vörðungu um konur:
„Fremur er um að ræða víðtæk-
ari kúgunargreiningu, sem felur í
sér frelsunarhugsjón langt út yfir
mörk frjálslyndisjafnréttis, og tekur
til annars konar lífs handan þess
mannlega.“...
„Það er trú okkar, að kven-
frelsunar fræði sé umbreytingar-
heimspeki, sem miði að umbótum
á öllu lífi jarðar, öllum tilbrigðum
þess, öllum náttúrulegum einingum
þess. Það trú okkar, að kúgun í öllum
myndum sé samtengd. Frelsi einnar
lífveru er hjóm, þar til tekst að frelsa
allar frá misnotkun, niðurlægingu,
rányrkju, mengun og viðskiptum.“
(Carol J. Adams og Josephine
Donovan: Animals and Women:
Feminist Theoretical Explorations)
Persónuleg yfirlýsing Carol
hljómar svo:
„Ég er grænkera kvenfrelsari, þar
eð ég er eitt dýr meðal margra og ég
óska þess ekki, að þetta samband
einkennist af neyslustigveldi.“
Arnar Sverrisson
Höfundur er ellilífeyrisþegi og
uppgjafarbóndi m.m.
Þýðingar eru hans.
HEIMSPEKI – MENNING&SAGA
Kjöt og kynjastjórnmál
Arnar Sverrisson.
Bændablaðið er
mest lesna blaðið
á landsbyggðinni
Hvar auglýsir þú?
Lestur prentmiðla á
landsbyggðinni
ViðskiptablaðiðMannlíf
H
eim
ild: Prentm
iðlakönnun G
allup. K
önnunartím
i okt.-des. 2019.
50%
40%
30%
20%
10%
Stundin DV Morgunblaðið Fréttablaðið Bændablaðið
Bændablaðið / Bændahöllin við Hagatorg / Sími: 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is
Lestur Bændablaðsins:
41,9%
21,9%19%
5,8%
9,1%
5,2%2,2%
41,9% 21,9% 29,2%
á landsbyggðinni á höfuðborgarsvæðinu landsmanna lesa
Bændablaðið
BÆNDABLAÐIÐ ER GEFIÐ ÚT Í 32 ÞÚSUND
EINTÖKUM Á TVEGGJA VIKNA FRESTI
Er kroppurinn
í lagi?
Mörg búverk krefjast þess að bóndinn
sé í líkamlega góðu formi. Hann verður
að búa yfir styrk, lipurð og þoli til að
mæta ólíkum verkefnum dagsins.
Þess vegna er mikilvægt að halda
sér í formi, gera reglulega æfingar
og leggja áherslu á að styrkja alla
vöðva líkamans.
Er þitt bú
öruggur
og góður
vinnustaður?
Kynntu þér leiðbeiningaefni um öryggi
og vinnuvernd í landbúnaði á bondi.is
PO
RT
h
ön
nu
n