Íþróttablaðið - 01.01.1979, Side 17
— Nei, en það munaði litlu í
fyrra, er Valsmennirnir komu
sterkari út í seinnihluta mótsins
og hrifsuðu titilinn af okkur. Nú
við stefnum auðvitað markvisst
að því að vinna titilinn þótt
möguleikar okkar hafi óneitan-
lega minnkað við tapið á móti
FH, en Valur hefur aðeins 2 stiga
forystu í deildinni þannig að það
getur allt gerzt ennþá.
— Hvaða áhrif hefur það haft
á Víkinga að fá Pólverjann
Bodan, sem þjálfara?
— Mjög góð. Bodan er mjög
fær maður og skemmtilegur, og
kann gífurlega mikið. Tungu-
málavandræði há ekki og honum
hefur tekizt mjög vel að miðla
sinni þekkingu til okkar. Hann
hefur góðan aga og nýtur virð-
ingar leikmanna.
— Yfirleitt tekur töluverðan
tíma fyrir nýjan þjálfara að inn-
leiða sín leikkerfi. Hvernig hefur
þetta gengið hjá ykkur?
— í fiestum tilvikum er talið að
það taki þjálfara 2 ár að ná full-
um tökum á nýju liði, þannig að
árangur skili sér að fullu. Ég held
að Bodan sé þar undantekning.
Honum hefur þegar tekizt mjög
vel upp. Hann byrjaði snemma í
haust á æfingu að innleiða nýtt
leikkerfi. Það gekk ekki vel hjá
okkur að ná tökum á því, eins og
gengur og gerist í fyrsta skipti,
sem eitthvað er æft. Allt í einu
hætti hann við þetta kerfi og
kynnti nýtt. Við mótmæltum
þessu, en hann hlustaði ekki á
okkur og áður en tíminn var lið-
inn var hann búinn að kynna 6 ný
kerfi fyrir okkur. Á næstu æfingu
á eftir voru allir leikmennirnir
búnir að fá tilfinningu fyrir þess-
um kerfum og síðan hefur þetta
gengið ákaflega vel. Hins vegar
eigum við auðvitað mikið eftir
ólært og má segja að Bodan sé
rétt búinn að leggja grunninn að
liðsþjálfuninni, dæmið er miklu
stærra og þetta er fyrsti kafli.
— Áfengi og iþróttamenn hafa
verið nokkuð í fréttum undan-
farið. Telur þú að þarna sé
vandamál á ferðinni?
— Ég held það sé ekkert
vandamál. Það er löngu liðin tíð
að menn líti á erfiðar keppnis-
ferðir, sem skemmtiferðir. í
landsliðinu gilda t.d. engar
ákveðnar reglur, en menn hafa
tekið sig saman um að neyta ekki
áfengis viku fyrir leik heima og
það hvarflar ekki að nokkrum
manni að bragða það í ferðum,
eins og við vorum að koma úr,
þar sem leiknir eru 4—5 leikir á
jafnmörgum dögum. Kæruleysi í
þeim efnum þekkist ekki.
— Hvernig finnst þér landslið-
ið hafa þróazt. Nú hafa ýmsir
orðið til að gagnrýna langan
samning við ungan mann eins og
Jóhann Inga?
— Ég er mjög ánægður með
landsliðsþjálfunina. Ég tel að það
sé oft sterkur leikur að ráða menn
með nýjar hugmyndir. Jóhann
Ingi er með 4 ára samning og
hann þekkir mennina, sem verið
hafa í unglingalandsliðinu. Það
verður hans að stjórna liði, sem
verður á heimsmeistarakeppn-
inni 1982 og ýmsir af þeim, sem
nú eru í landsliðinu verða vænt-
Árni sloppinn úr gæslu og skorar í landsléik
17