Íþróttablaðið - 01.01.1979, Qupperneq 26
Óskarsson. — Til að byrja með
var þetta einungis tómstunda-
gaman, en Steinunn fékk fljótt
áhuga og byrjaði að æfa reglu-
lega. Hún tók í fyrsta sinn þátt í
móti árið 1972, er hún var 12 ára,
og sigraði þá öllum á óvart. Mót
þetta var svokallað Stefánsmót
sem KR-ingar héldu í Skálafelli.
Annars hefur Steinunn verið Ár-
menningur alla tíð, og sagði
Sæmundur að hún hefði verið
mjög heppin með þjálfara hjá því
félagi. Tómas Jónsson hefði lagt
undirstöðuna að þjálfun hennar,
en síðan hefðu erlendir þjálfarar
tekið við, nú síðast Svíinn Gud-
mund Södering, en hann er jafn-
framt þjálfari íslenzka skíða-
landsliðsins.
Vinsamlegast sendið mér
Nafn: myndalista ytir plakötin.
Heimili: PLÖTUPORTIÐ
Laugavegi 17 Pósthólf 1143
Póstnúmer: Símk_____ 121 Reykjavík Sími 27667
Sæmundur var að því spurður
hvernig Steinunn hefði hagað
æfingum sínum að undanförnu?
— Æfingar fyrir þetta
keppnistímabil hófust hjá henni í
maí sl. og stóðu síðan í allt sumar.
Hún æfði um klukkustund á dag,
hljóp úti og gerði síðan leikfimi-
æfingar inni í stofu, eða úti á
stétt. Skíðaæfingar hófust svo í
ágúst og september, en þá dvaldi
skíðalandsliðið í 12 daga á
Siglufirði við æfingar. í október
fór Steinunn svo til æfinga til
Ítalíu og var þar í hálfan mánuð.
í nóvember var svo æft í Blá-
fjöllunum í sex daga, og til stóð
að fara utan til æfinga í desem-
ber, en af því gat ekki orðið sök-
um snjóleysis á þeim stöðum sem
æfa átti á. Nú, og um áramótin
fór hún, svo ásamt fleirum úr
skíðalandsliðinu í þriggja vikna
æfingaferð til Frakklands, Sviss
og Austurríkis. í febrúar verður
æft hérlendis, en farið aftur út í
marz og þá verið í þrjár vikur við
æfingar. Hvað síðan tekur við er
enn óráðið, nema hvað skíða-
landsmótið verður haldið í apríl.
Eftir það verður Steinunn senni-
lega að einbeita sér að skólanum.
Sem fyrr greinir hefur Stein-
unn verið mjög sigursæl á þeim
mótum sem hún hefur keppt í
hérlendis, og má nefna að á síð-
asta skíðalandsmóti varð hún
þrefaldur íslandsmeistari, í svigi,
stórsvigi og Alpatvíkeppni, og
verður að teljast líkelgt að hún
nái að verja þá titla sína í vetur.
Steinunn hefur einnig náð ágæt-
um árangri í mótum sem hún
hefur tekið þátt í erlendis, svo
sem áður hefur verið vitnað til.
Má geta þess einnig að skömmu
eftir að hún fór nú utan til æfinga
tók hún þátt í allsterku skíðamóti
i Frakklandi og vann þar sigur.
Steinunn hefur hlotið alls sjö
íslandsmeistaratitla. 1976 varð
hún íslandsmeistari í stórsvigi og
Alpatvíkeppni, í sömu greinum
1977, og sem fyrr segir varð hún
þrefaldur íslandsmeistari í fyrra.
26