Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.01.1979, Side 28

Íþróttablaðið - 01.01.1979, Side 28
oft æfir Jóhann eða keppir alla daga vikunnar. Æfing- arnar eru ýmist þrekæfingar, slagæfingar og svo spil. Eru þá oft tekin fyrir sérstök slög á hverri æfingu, eins og „dropp“, „smösh“ svo notuð séu þau orð sem badminton- menn nota sín á milli. Við spurðum Jóhann hvað hann vildi helst geta bætt hjá sér. — Ég held að ég þurfi aðallega að leggja meiri áherslu á að ná meiri yfirveg- un í spili". Þegar ég t.d. leik á móti útlendingum hættir mér til að verða dálítið spenntur og fæ ég ekki alltaf það besta út úr mínu spili. Ég hef mikinn áhuga á að komast til æfinga erlendis, til að æfa á móti sterkari og fjölbreyttari leik- mönnum en hér eru heima. Það er alltaf hætta á að menn staðni er komið er á toppinn, því að andstæðingarnir, sem í fremstu röð eru, eru yfirleitt hinir sömu. Það er því oft að þegar menn eru komnir á toppinn hér heima halda þeir sig þar í fjölmörg ár, þar til einhver yngri kemur, sem stendur þeim framar að snerpu tæknilega séð. Þannig verður þróunin afar hægfara. Annars held ég að þetta standi allt til bóta með auknum er- lendum samskiptum, því að þegar menn fá aðstöðu til að leika við sterkari og fjöl- breyttari andstæðinga lætur árangurinn yfirleitt ekki á sér standa.“ Þegar þetta blað kemur fyrir sjónir lesenda verður Jó- hann væntanlega með ís- lenska landsliðinu í viku- keppnisferð í Austurríki, þar sem fram fer Evrópukeppni landsliða. Síðan er það undir- búningurinn fyrir titilvömina í kringum páskana. En auk sinna eigin æfinga sér Jóhann um barnaþjálfun tvisvar í viku á vegum TBR og segist hafa mjög gaman af. Töluvert er af efnilegum krökkum, en þau þyrftu að fá fleiri æfinga- tíma. Um framtíðarmarkmið sín segir Jóhann að þau séu ein- faldlega að bæta árangurinn, og verða betri badminton- maður. Einnig á hann sér þann draum að komast á heimsmeistarakeppnina, sem haldin verður í Indónesíu árið 1980, en telur litlar líkur á að hægt verði að kljúfa þann kostnað, sem slíkri ferð væri samfara. Jóhann með félögum sínum í íslenzka landsliðinu. Fremri röð: Jóhanna Kjartansson, Kristín Magnúsdóttir, Kristín Kristjánsdóttir, Hanna Lára Pálsdóttir; Aftari röð: Broddi Kristjánsson, Guðmundur Adolfsson, Sigurður Kolbeins- son og Sigfús Ægir Árnason. Aftast: Walter Lenz og Garðar Alfonsson. 28

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.