Íþróttablaðið - 01.01.1979, Page 34
Var lengi búinn að dreym
Það kom ekki á óvart að
Karl Þórðarson skyldi vera
valinn „Knattspyrnumaður
ársins". Karl átti afbragðsgott
keppnistímabil á árinu, var
potturinn og pannan í leik liðs
síns, Akurnesinga, og sýndi
mikla hæfni í leikjum sínum.
Hann lék alla landsleiki ís-
lendinga á árinu, og stóð sig
vel í þeim, en sennilega verður
þó lengst í minnum höfð
frammistaða hans í leikjum
Akurnesinga við vestur-þýzka
meistaraliðið FC Köln í
Evrópubikarkeppni meistara-
liða, en líklegt er að frammi-
staða Karls í fyrri leiknum
sem fram fór ytra hafi öðru
fremur orðið til þess að erlend
stórfélög fóru að gefa honum
gætur. Bárust Karli tvö góð
atvinnutilboð skömmu fyrir
jól, og undirritaði hann samn-
ing við belgíska 1. deildar fé-
lagið, La Louviere, en það fé-
lag fékk einnig annan íslend-
ing í sínar raðir, Þorstein
Bjarnason, markvörð frá
Keflavík. Karl Þórðarson er
þriðji Akurnesingurinn sem
gerist atvinnuknattspyrnu-
maður á skömmum tíma.
Teitur Þórðarson leikur með
sænska liðinu Öster og Pétur
Pétursson gerði s.l. haust
samning við hollenzka stór-
liðið Feyenoord.
Karl Þórðarson á ekki langt
að sækja knattspyrnuáhuga
sinn og hæfni. Faðir hans,
Þórður Jónsson, var á sínum
tíma einn allra bezti knatt-
spyrnumaður landsins, og
föðurbróðir Karls er Ríkharð-
ur Jónsson, sem óþarfi mun að
kynna íslenzkum íþrótta-
áhugamönnum.
— Þetta er búið að vera
mér ógleymanlegt og
skemmtilegt ár, sagði Karl í
viðtali við íþróttablaðið, — og
vitanlega jók það gleðina
meira en allt annað að ég
eignaðist strák á gamlársdag.
Því má segja að það hafi orðið
tímamót í lífi mínu á meira en
einn hátt á árinu.
— Ég er búinn að leika
knattspyrnu svo lengi sem ég
man eftir mér, sagði Karl. —
Ég man vel eftir pabba sem
knattspyrnumanni, og fór
margar ferðir á völlinn með
honum. Sjálfsagt á knatt-
spyrnuáhugi minn rætur að
rekja til þess, svo og þess, að
knattspyrnuáhugi hefur alltaf
verið geysilega mikill á Akra-
nesi, og það raunar þótt sjálf-
sagt að strákar eyddu megin-
hluta frístunda sinna til knatt-
spyrnuæfinga. Ég held að það
sé öðru fremur þessi almenni
áhugi á Akranesi, sem orðið
hefur til þess að við höfum átt
lið í fremstu röð á íslandi í
langan tíma, og munum
sennilega eiga.
í sumar urðu titlaskipti hjá
Val og Akurnesingum. Valur
varð Islandsmeistari en Akra-
nes bikarmeistari, öfugt við
það sem var árið 1976. Var
þetta jafnframt í fyrsta sinn
sem Akurnesingar hlutu bik-
armeistaratitilinn. Iþrótta-
blaðið spurði Karl Þórðarson,
hvernig honum hefði fundist
keppnistímabilið vera?
— Það var að mörgu leyti
skemmtilegt, sagði Karl. —
Lið Vals og Akraness voru að
vísu í sérflokki í íslandsmót-
inu, og er það skoðun mín að
við hefðum ekki síður verð-
í
•V %
.. .. . - ...
Karl íbaráttu við Valsmennina Atla Eðvaldsso
íleik ÍA og Vals ííslandsmótinu s.l. sumar.
34